Skinfaxi - 01.02.2003, Blaðsíða 26
Hreimur Heimisson
„Hef alla tíð ætlað mér að
verða það sem ég er í dag“
- segir Hreimur Örn Heimsson tónlistarmaður í viðtalið við Skinfaxa
Tónlistarmaðurinn Hreimur Örn Heim-
isson í hljómsveitinni Land og synir tók
þátt í verkefninu „Hættum að reykja"
sem UMFÍ stendur að fyrir tilstilli
tónlistarmannsins Jóhanns G. Jóhanns-
sonar. Hreim þarf vart að kynna þar sem
hann hefur um nokkurt skeið verið einn
af vinsælustu tónlistarmönnum þjóð-
arinnar. Skapti Örn Ólafsson mælti sér
mót við kappann í Stúdíó Sýrlandi ekki
alls fyrir löngu, en þar hefur hljómsveitin
Land og synir verið að undanförnu við
upptökur á nýrri breiðskífu. Tilefnið var
að spjalla við Hreim um tónlistina og
verkefnið „Hættum að reykja."
„Varð að gera eitthvað - vinna við eitthvað"
„Það er nú skrýtin saga að segja frá," segir Hreimur Örn þegar
hann er spurður út í sína æsku. „Það má segja að fram að tólf ára
aldri lifði ég afskaplega tilbreytingarlausu lífi og ekkert að gerast
hjá mér. Ég er síðan sendur í sveit að Brekkum í Holtum og vann
þar eitt sumar. Fljótlega eftir það ákveða mamma og pabbi að
flytja í sveitina sem ég var ekkert sáttur við," segir Hreimur. Það
eina sem hann gerði var að leika sér í Nintendo leikjatölvu og spila
fótbolta. „Síðan verða mikil sinnaskipti og ég varð að fara að gera
eitthvað - vinna við eitthvað," segir hann og bætir við að á þessum
tímapunkti hafi æska hans byrjað fyrir alvöru. Hreimur Örn býr í
sveitinni frá þrettán ára aldri og þar til hann er átján ára, en þá
flutti fjölskyldan til Noregs og Hreimur flytur til Reykjavíkur.
Hljómsveitin Land og synir er hér komin til sögunnar og höfðu
strákarnir starfað í eitt ár þegar Hreimur flytur í borgina. „Arið
1998 ákvað ég að sjá hvert hugurinn stefndi og hvað ég vildi gera.
Nema hvað þá gekk líka svona rosalega vel með hljómsveitina og
ég er ekki enn farinn til Noregs," segir Hreimur sem rifjaði því
næst upp fyrir blaðamanni fyrstu kynni sín af tónlist. „Ég var
einskonar íþróttaálfur í skólanum og tók þátt í öllum íþróttum
sem boðið var upp á. Síðan var haldin einhver hæfileikakeppni
sem ég varð náttúrulega að taka þátt í. Allri höfðu nú reiknað með
að stúlka að nafni Karólína myndi vinna en það varð heldur betur
uppi fótur og fit þegar atkvæðagreiðsla í salnum kaus mig sem
sigurvegara og hana í annað sæti," segir Hreimur Örn sem sigraði
með Elvis Presley slagara. „Það kom mér heldur betur í opna
skjöldu að ég skildi vinna og má segja að lagið hafi verið lítið æft.
Rétt áður en ég fór upp á svið hljóp ég að Arna Þór, vini mínum og
fyrrverandi gítarleikara í Landi og sonum, og bað hann um að
kenna mér að tvista."
„Fékk ekkert út úr þessu"
Þegar Hreimur er spurður út í þátttöku sína í undankeppni
Eurovision ekki alls fyrir löngu sagði hann þá reynslu ekki
góða. „Ef ég á að segja eins og er þá var þetta ömurlegt. Þetta var
ekki gaman og ég fékk ekkert út úr þessu nema hrikaleg mistök
tæknistjóra Sjónvarps," segir Hreimur en í beinni útsendingu sjón-
varpsins var röng upptaka af laginu spiluð. „Þetta endaði svo sem
í góðu. Ég fékk afsökunarbeiðni frá sjónvarpinu en ef ég á að vera
hreinskilinn þá skildi þetta ekki mikið eftir sig. Kannski vegna
þess að ég var ekki að syngja lag eftir sjálfan mig," segir hann.