Skinfaxi - 01.02.2003, Blaðsíða 8
Unglingalandsmót UIVIFÍ á ísafirði 2003
Lofa frábærri skemmtun
Hljómsveitin Á móti sól ætiar að taka þátt í gleðinni á Unglingalandsmótinu
Ætla að taka þátt í gleðinni og njóta
alls þess sem Isafjörður hefur upp á
að bjóða
„Við verðum með tvo almenna útidansleiki
á Unglingalandsmótinu, laugardag og
sunnudag, þar sem við lofum frábærri
skemmtun. Síðan ætlum við bara að taka
þátt í gleðinnni með mótsgestum alla
helgina og njóta alls þess sem ísafjörður
hefur upp á að bjóða/' sagði Magni þegar
hann var spurður út í hvað þeir ætluðu að
gera á Unglingalandsmótinu. En hvernig
stóð á því að þeir félagar ákváðuð að leika
á ULM á ísafirði um verslunarmannahel-
gina þegar þeir gátu valið úr fjölda
verkefna? „Við erum búnir að spila þrisvar
á Þjóðhátíð og mig grunar að þetta sé eini
viðburðurinn sem gæti toppað þá lífs-
reynslu. Auk þess sem allt I sambandi við
þessa hátíð hljómaði mjög vel í okkar
eyrum."
Nú má segja að verslunarmannahelgin sé
stærsta og feitasta helgi hljómsveita ár
hvert á íslandi með öllum þeim úthátíð-
um sem í boði eru. Voru þið lengi að taka
þá ákvörðun að mæta á Isafjörð?
„Ég get ekki sagt það - Þetta er bara einn af
þessum hlutum sem maður á augljóslega
að gera."
Nú er áfengisneysla bönnuð á ULM.
Hafði það einhver áhrif á val ykkar og er
Það verður ein allra vinsælasta
hljómsveit landsins, A móti sól
sem mun skemmta gestum á
Unglingalandsmótinu á Isafirði
um verslunarmannahelgina. Þeir
félagar, Þórir, Heimir, Stefán,
Sævar og Magni, sem skipa
hljómsveitina lofa miklu fjöri og
bíða spenntir eftir mótinu. Þeir
halda tvenna tónleika og munu
væntanlega leika nokkra af
helstu smellum hljómsveitar-
innar t.a.m. Sæt, Á þig, Spenntur
og Afmæli. Þá er hljómsveitin að
gefa út nýja plötu í sumar og er
ætlunin að kynna hana m.a. á
Unglingalandsmótinu. Valdimar
Kristófersson ræddi við Magna
Ásgeirsson söngvara um Ung-
lingalandsmótið og hljómsveit-
ina.
skemmtilegra að spila fyrir framan als-
gáða áhorfendur en drukkna? „Það hafði
engin áhrif á valið. Það er stemmningin
hverju sinni sem skiptir máli og við vitum
það að þarna eiga allir eftir að skemmta sér
konunglega án áfengis."
Fimm vinir sáttir við lífið
Hvað með hljómsveitina sjálfa. A hvaða
tímamótum stendur hún í dag? „Við erum
bara fimm vinir sem eru sáttir við lífið og
tilveruna. Það eru ákveðin tímamót ekki
satt?"
Þið hafið ekki hugsað ykkur að semja
einn smell fyrir Unglingalandsmótið sem