Skinfaxi - 01.02.2003, Blaðsíða 4
Fréttapunktar frá UMFÍ
Umhverfisverðlaun UIVIFÍ
og Pokasjóðs
Fimmtudaginn 27. mars afhenti umhverfisráð-
herra, Siv Friðleifsdóttir umhverfisverðlaun UMFI
og Pokasjóðs. Umhverfisverðlaunin voru veitt í
Gunnarsholti. Umhverfisverðlaunin hlaut að þessu
sinni Sveinn Runólfsson, forstjóri Landgræðslu
rikisins fyrir framúrskarandi störf í þágu
umhverfismála. Að lokinni afhendingu verðlauna
voru flutt ávörp og bornar fram veitingar.
Umhverfisverðlaun UMFÍ og Pokasjóðs eru nú
veitt í sjöunda sinn. Verðlaun þessi voru veitt í
fyrsta sinn árið 1996 og hafa þau áður verið veitt
eftirfarandi aðilum: Hótel Geysi, Sorpu, Austur
Héraði, Lauganesskóla, Hvanneyrarstað og Ferða-
málasamtökum Vestfjarða.
I starfi ungmennafélagshreyfingarinnar er meðal
annars unnið að því styrkja sambúð íslendinga við
landið, bæta umgengni og efla skilning á starfsemi
lifríkisins. Eins og segir í sígildri yfirskrift hreyf-
ingarinnar: ræktun lýðs og lands.
Pokasjóður, sem áður hét Umhverfissjóður
verslunarinnar úthlutar styrkjum til verkefna sem
heyra undir almannaheill. Má þar nefna verkefni
eins og umhverfismál, menningarmál, listir,
íþróttir og mannúðarmál.
Markmið Pokasjóðsins eru þau að stuðla að bættu
umhverfi landsins, fegrun þess og uppgræðslu. Til
að ná þessum markmiðum mun sjóðurinn veita fé
til stærri verkefna sem uppfylla þau skilyrði sem
stjórn hans setur hverju sinni. Pokasjóðurinn fær
tekjur af sölu plastburðarpoka í verslunum en
merki á haldi hvers poka segir til um hvort versl-
unin greiði í sjóðinn eða ekki. I dag greiða 160 ver-
slanir í sjóðinn og eru þær staðsettar um allt land.
Ungmennafélag íslands og Pokasjóður hafa á
undanförnum árum átt gott samstarf að
verkefnum sem varða umhverfismál.
Umhverfisverðlaun UMFI og Pokasjóðs eru nú í
fyrsta skipti veitt einstaklingi. Störf Sveins
Runólfssonar að umhverfismálum og uppbygg-
ingu lands hafa vakið athygli þeirra sem láta sig
umhverfismál skipta.
Badminton í
sumar
Ungmennafélag Islands í samstarfi
við Badmintonsamband Islands ætla
í sumar að bjóða félögum uppá
badmintonnámskeið vítt og breitt
um landið.
UMFÍ og DGI í Danmörku hafa
undirritað samning um aukið sam-
starf um kynningu á badminton-
íþróttinni og munu tveir danskir
þjálfarar vera hér í sumar og bjóða
uppá námskeið hjá þeim félögum
sem þess óska.
Námskeiðin er hægt að sérsníða að
hverjum stað og eru bæði ætluð
byrjendum og lengra komnum og
einnig er hægt að vera með sér
námskeið fyrir þjálfara. Hvað þeir
dvelja lengi á hverjum stað ræðst af
því hve mörg félög óska eftir því að
fá þá til sín, en þess tími getur verið
frá 1 - 3 daga. Ef mikil aðsókn verður
í að fá þjálfarana þá getur staðan
orðið þannig að ekki vinnst tími til
að heimsækja alla. Þá ræður fyrstir
panta fyrstir fá.
UMFÍ greiðir öll laun þjálfaranna og
ferðir þeirra á staðinn. Félögin sjá
um húsnæði og fæði á meðan þeir
dvelja hjá þeim. Tíminn sem um er
að ræða er frá 14. júlí til 14. ágúst.
Leiðtogaskóli
UMFÍ og NSU
I sumar verður Leiðtogaskóli NSU
haldinn á Laugarvatni 7. -13. júlí.
Þetta er í annað sinn sem þessi skóli
er haldinn á Islandi. Síðasta sumar
var hann haldinn á Gufuskálum en
verður nú á Laugarvatni. Leiðtoga-
skólinn er ætlaður ungu fólki á
aldrinum 18 -25 ára sem hefur áhuga
á að vera í forystu í félagsstörfum.
Nauðsynlegt er að þátttakendur geti
tjáð sig á skandinavísku og ensku.
Þátttakendur koma frá öllum Norð-
urlöndunum og verða á bilinu 30 - 35
þar af eru Islendingarnir 6. Skólinn
er styrktur af Youth programmi
Evrópusambandsins og Nordisk
Ungdomskomitee og er þátttak-
endum að kostnaðarlausu.
Fyrirlesarar eru allir helstu sérfræð-
ingar okkar á þessu sviði. Skólinn í
fyrra vakti mikla athygli og mikil
aðsókn er í hann í ár. Það eru félögin
sem tilnefna þátttakendur þannig að
þeir sem hafa áhuga sækja um í
gegnum sitt ungmennafélag.
Hættum að
reykja
hvatningarátak
Framhaldsstarf hvatningarátaks
UMFÍ er nú i fullum gangi. Efnt
hefur verið til samkeppni SYNGIÐ
SJALF, þar sem börn og unglingar
eru hvött til að syngja lögin á
geisladisknum Hættum að reykja og
senda upptöku á kasettu eða geisla-
diski til Þjónustumiðstöðvar UMFÍ.
Þá er einnig hafin SLAGORÐASAM-
KEPPNI gegn reykingum og
VERÐLAUNAGETRAUN. Veglegir
vinningar tengdir íþróttum, tónlist
og ferðalögum verða veittir fyrir
besta flutning á lagi, rétt svör og
besta slagorð.
Geisladiskurinn Hættum að reykja
með Birgittu Haukdal, Jónsa í Svört-
um fötum, Hreimi í Landi og sonum
og Jóhönnu Guðrúnu nýtur mikilla
vinsælda hjá ungu fólki en á
disknum eru lögin Tóm tjara, Svæla
svæla og Furðuverk.
Geisladiskinn Hættum að reykja er
hægt að panta hjá UMFI og hægt að
nota til fjárölfunar fyrir ungmenna-
félög og deildir, skóla eða félagsmið-
stöðvar. Upptökur með lögum,
slagorð eða svör í getraunaleiknum
sendist til Þjónustumiðstöðvar
UMFÍ, Fellsmúla 26, 108 Reykjavík,
rnerkt „'Hættum að reykja - syngið
sjálf", Hættum að reykja
slagoðrasamkeppni"
Samningur við
Þjónustumið-
stöðvar UMFÍ á
landsbyggðinni
í febrúar sl. var á Egilsstöðum skrif-
að undir samning á milli Ungmenna-
félags Islands og fimm héraðssam-
banda um rekstur þjónustumið-
stöðva UMFÍ á landsbyggðinni. Hér-
ðassamböndin eru HSK, UÍA, HSV,
UMSE og UMSB. Hlutverk þjónustu-
miðstöðvanna er að þjónusta félags-
menn á sínum svæðum og einnig
nærliggjandi héraðssambanda. Jafn-
framt að stýra verkefnum UMFÍ á
svæðinu og miðla upplýsingum til
félaga og deilda og fjölmiðla; hvort
heldur er um ræðir fræðslu eða
kynningarmál, landsverkefni eða
mót innan hreyfingarinnar. Þjón-
ustumiðstöðvarnar UMFÍ og við-
komandi héraðssambanda eru
staðsettar í Borgarnesi, ísafirði,
Akureyri, Egilsstöðum og Selfossi