Skinfaxi - 01.02.2003, Page 6
Unglingalandsmót UMFÍ á ísafirði 2003
Stærsta og flottasta áskorunin
segir Jón Pétur Róbertsson framkvæmdastjóri Unglingalandsmótsins 2003
5
Um verslunarmannahelgina verður Unglingalandsmót UMFÍ, það sjötta í röðinni, haldið á
ísafirði. Mótið hefur notið mikilla vinsælda og vakið mikla athygli enda framtakið gott.
Stöðug aukning hefur verið á mótið á milli ára sem er ein alsherjar fjölskylduskemmtun. Að
mörgu þarf að huga fyrir slíkt mót og er undirbúningur löngu hafinn. Sá sem stýrir fleyinu er
Jón Pétur Róbertsson, framkvæmdastjóri ULM 2003 og Valdimar Kristófersson settist niður
með honum í höfuðstöðvum UMFÍ Fellsmúla þar sem Jón er með aðstöðu.
Fjölskylduhátíð undir réttum formerkjum
Eftir ULM í fyrra sem fram fór í Stykkishólmi tók stjórn UMFÍ þá ákvörðun að gera
ULM að árlegum viðburði og blaðamanni þóttu fróðlegt að vita hvað lægi að baki
þessum breytingum?
„Viðtökurnar hafa verið geysilega góðar og það hefur alltaf verið látið vel af mótinu.
I fyrra mættu t.d. 1.300 keppendur og hátt í 6.000 gestir þrátt fyrir grenjandi rigningu
allan tímann. Það er því kannski fyrst og fremst verið af svara þörfinni/' segir Jón. „Þá
hefur íslenska ríkið og þingmenn sem fylgst hafa með og mætt á ULM í gegnum árin
tekið eftir þeim mikla fjölda keppenda og
foreldra sem sem leggja leið sína á mótið. Þeir
hafa hvatt UMFI til að halda mótið árlega og til
að sýna stuðning sinn í verki þá lagði Fjárlaga-
nefnd í gegnum Menntamálaráðuneytið fram
upphæð til undirbúnings mótinu.
I raun má segja að þetta sé eina tækifærið fyrir
börn og unglinga til að hittast og gera sér glað-
an dag með foreldrum sínum um verslunar-
mannahelgina. ULM er eina hátíðin sem hægt
er að kalla fjölskylduhátíð undir réttum for-
merkjum því mótið er vímuefnalaust," segir
Jón.
Hvernig hefur gengið að hafa mótið vímu-
efnalaust?
„Þetta mót hefur fengið það mikla virðingu
fólks um allt land að það leggur strax að jöfnu
að Unglingalandsmót UMFI sé sama sem heil-
brigði og jákvæður lífstíll. Reynsla síðustu
tveggja móta sem haldin hafa verið um
verslunarmannahelgina hefur verið mjög góð
og enginn vandamál hafa komið upp sem
tengjast vímuefnum."
Það voru fimm Héraðssambönd sem sóttu um
að halda ULM og Isafjörður varð fyrir valinu.
Hvernig líst þér á?
„Ég er búinn að fara vestur núna í þrígang og
mér líst mjög vel á staðinn. Þetta er stærsta og
flottasta áskorunin. Það er alltaf verið að tala
um hvar Isafjörður sé á kortinu og hversu langt
sé að fara þangað sem er ekki rétt. Markmiðið
er að kynna mótið vel og sýna framá hversu
stutt sé á Isafjörð. Ég er sannfærður um að fólk
horfi á þetta sem spennandi kost. Þarna fá
mótsgestir tækifæri til að kynnast nýjum stað
þar sem náttúrufegurðinn er ólýsanleg og
öðruvísi en annarsstaðar á landinu."
ísafjörður hefur sérstöðu
Hvernig hefur undirbúningi miðað?
„Nokkuð vel. Við munum eðlilega byggja á
reynslu fyrri móta og nota hana í grunninn.
Mótið í fyrra tókst vel og uppbyggingin verður
því svipuð en eðlilega reynum við að þróa
mótið áfram og reyna að gera enn betur. Ég hef
t.d. áhuga á að sett verði upp landsmótsþorp
sem verður aðeins fyrir utan sjálft mótssvæðið.
Það verður byggt upp á verslun, veitingum og