Skinfaxi - 01.02.2003, Side 7
Unglingalandsmót 2003
Á ísafiröi og nágrenni leynasPtftargar náttúruperlur
sem landsmótsgestir ættu að skoða ^ '
upplýsingamiðstöð með afþreyingu. Svo
væri annað svæði sem heitir hátíðarsvæði
þar sem dansleikir, verðlaunaafhendingar
og aðrir viðburðir fara fram. Þorpin verða
þó í mikill nálægð hvort við annað þannig
að allir viðburðirnir fari fram á sama
svæði.
Þá hefur ísafjörður sýna sérstöðu og við
munum reyna að byggja á henni. Við mun-
um vinna náið með ferðamálayfirvöldum á
staðnum og bjóða upp á ferðir m.a. á
Hornstrandir og fleiri staði sem hægt er að
finna á ísafirði og nágrenni."
Þið ætlið m.a. að gefa út blað í tilefni
mótsins og ferðamálayfirvöld á Vestfjörð-
um ætla að taka þátt í gerð þessa blaðs
með það að markmiði að kynna fyrir
mótsgestum hvað Vestfirðir hafa upp á að
bjóða. Áttu von á að mótsgestir noti tæki-
færið til að skoða helstu náttúruperlur
Vestfjarða? „Ég er ekki í nokkrum vafa um
það að fólk mun nota tækifærið og gefa sér
tíma til að fullkomna ferðina með því að
skoða og upplifa þessa fallegu náttúru.
Með því að upplýsa fólk um þessa
möguleika sem náttúran hefur upp á að
bjóða þá held ég að fólk fari fyrr af stað og
gefi sér meiri tíma áður en það fer heim
aftur. Enda ætla ferðaaðilar á Vestfjörðum
að sjá til þess að fólk geti nálgast þessa
staði og fengið að upplifa þá."
Unglingalandsmótið í fyrra var öllum
opið. Verður áframhald þar á?
„Já, þessi breyting tókst mjög vel og því
engin ástæða til að breyta því enda finnst
mér það grunnforsenda að allir eigi rétt á
að vera með.
Þátttakendur þurfa því ekki að vera
ungmennafélagar eða í félagi yfir höfuð
því við ætlum t.d. að vera með nýbreytni í
skráningu fyrir fótboltann. Þátttakendur
geta skráð sig í gegnum netið og svo er
raðað í lið af handahófi. Þannig þurfa
keppendur ekki að safna liði áður en þeir
mæta heldur lenda þeir með einhverjum
sem þeir þekkja ekki. Þessi safnlið munu
taka þátt í hinni hefðbundnu keppni í
fótbolta og verða skírð sérstökum nöfnum.
Þetta er tilraun sem við vonumst til að
börnin og unglingarnir nýti sér vel.
Þannig að þátttakendur geta með þessu
nýja fyrirkomulagi eignast nýja vini og
myndað traust vinasambönd?
„Já, einmitt. Með þessu fyrirkomulagi
erum við að auvelda tengslamyndum á
milli þátttakenda og sköpum þannig vina-
sambönd sem endast vonandi til æviloka."
Aldursmörkin 11 -18 ára
Einhverjar veigamiklar breytingar frá
mótinu í fyrra?
„Já, þar sem sjálfræðisaldurinn hefur verið
hækkaður upp í 18 ár fannst okkur eðlilegt
að fylgja þeirri breytingu. Þess vegna hefur
verið samþykkt að hækka aldursmörk
þátttakenda í íþróttakeppninni á unglinga-
landsmótinu upp í 18 ár og því geta allir
sem eru á aldrinum 11 - 18 ára tekið þátt í
íþróttakeppni á mótinu."
í hvaða íþróttagreinum verður keppt á
mótinu?
„Keppt verður í 8 íþróttagreinum: knatt-
spyrna (7 í liði), körfuknattleikur, hand-
knattleikur (12-13 ára), frjálsar íþróttir,
sund, golf, skák og glíma. I sundi verður
keppt í 50m og lOOm skriðsundi, 50m og
lOOm bringusundi, 200m fjórsundi og
4x50m skriðsundi. I frjálsum verður keppt
í 60m og lOOm hlaupi, Víðavangshlaupi
langstökki, hástökki, kúluvarpi og spjót-
kasti."
Hvað er fleira á dagskrá? „Það verður
einnig hæfileikakeppni í samvinnu við
Samfés samtök félagsmiðstöðva á Islandi.
Keppnin er fyrir þá sem vilja láta ljós sitt
skína á einhvern annan hátt en í íþróttum.
Unglingar á aldrinum 13 - 18 ára geta verið
með. Þrjú bestu atriðin hljóta viðurkenn-
ingu og verða sýnd á kvöldvöku. Þetta er
tilvalið fyrir bekki, félagsmiðstöðvar og
einstaklinga að skrá sig til keppni."
Einhver þekkt andlit sem koma og
skemmta?
„Samið hefur verið við hljómsveitina Á
móti sól sem mun skemmta á dansleikjum
á laugardags- og sunnudagskvöldið. Þeir
munu gefa út plötu í júní og fylgja henni
eftir með hljómleikum og dansleikjum um
land allt og þar er Unglingalandsmótið á
ísafirði hápunktur herferðar hljómsveitar-
innar Á móti sól."
Þannig að búast má við miklu lífi og fjöri
á ísafirði?
„Við ætlum að skapa karnivalstemmingu
fyrir alla fjölskylduna. Bærinn verður
iðandi af lífi allan tíman og eitthvað að
gerast út um allan bæ og í nærliggjandi
byggðarlögum. Isfirðingar ætla að taka vel
á móti gestum sínum enda ekki á hverjum
degi sem þeir fá tækifæri að gera það um
Verslunarmannahelgina. Ég get lofað því
að þetta verður upplifun fyrir alla
fjölskylduna sem talað verður um í mörg ár
á eftir."
Hvernig geta menn skráð sig á mótið eða
fengið nánari upplýsingar?
„Skráning á mótið fer fram á netinu á
heimasíðu unglingalandsmótsins,
www.umfi.is/ulm2003.
Félög og einstaklingar eru beðin að skrá
sig til þátttöku á netinu, en þó er hægt að
hringja í síma 568 2929 og skrá sig og fá
nánari upplýsingar. Skráningarfrestur er til
15. júlí 2003."
Keppnisgjald fyrir hvern einstakling
verður kr 4.500. Innifalið í keppnisgjaldinu
er þátttaka í keppni, dansleikir og öll önn-
ur skemmtun og aðstaða fyrir fjölskylduna.
Einnig fá þátttakendur tösku, mótsbol og
óvæntan glaðning.
Það verður einnig hæfileikakeppni í samvinnu við Samfés
samtök félagsmiðstöðva á íslandi. Keppnin er fyrir þá sem
vilja láta ljós sitt skína á einhvern annan hátt en í íþróttum.
Unglingar á aldrinum 13 -18 ára geta verið með.