Skinfaxi - 01.02.2003, Side 10
Unglingalandsmót UMFÍ á ísafirði 2003
„Verið hjartanlega velkomin á
Unglingalandsmót UMFÍ á ísafirði,,
- segir Ingi Þór Ágústsson formaður unglingalandsmótsnefndar UMFÍ
Ingi Þór Ágústsson er 31. árs, fæddur og
uppalinn á Isafirði. Kvæntur Sesselju Österby
og saman eiga þau tvær dætur, 8 og 14 ára. Ingi
Þór er menntaður hjúkrunarfræðingur og
vinnur á skurðstofu á sjúkrahúsinu á ísafirði.
Hann var sundmaður á sínum yngri árum en
þjálfar nú sundfélagið á ísafirði. Þá á Ingi Þór
sæti í bæjarstjórn Isafjarðarbæjar og er
formaður íþrótta- og æskulýðsnefndar bæj-
arins. Hans helstu áhugamál eru íþróttir alls-
konar, sérstaklega köfun sem hann reynir að
stunda þegar hann hefur tíma til þess. Ásamt
öllu þessu er Ingi Þór formaður unglinga-
landsmótsnefndar UMFÍ, en um verslunar-
mannahelgina mun mótið fara þar fram. Skin-
faxi fékk formanninn, þjálfarann, bæjar-
fulltrúann og hjúkrunarfræðinginn í létta
yfirheyrslu að því tilefni.
Gefandi starf
Hefur þú starfað lengi innan Ungmenna-
hreyfingarinnar?
„Ég er nokkuð nýr í starfi innan ung-
mennahreyfingarinnar. Isfirskir íþrótta-
menn voru hér áður í ÍBÍ og það íþrótta-
bandalag tilheyrði ISI eingöngu. Það var
síðan árið 2000 sem ÍBÍ sameinaðist HVÍ og
úr varð HSV sem gekk í raðir UMFÍ. Það
voru virkilega ánægjuleg tíðindi fyrir mig
því að ég hef verið mikill aðdáandi ung-
mennafélagsandanns í áraraðir. Ég hef
setið í stjórn HSV frá upphafi, fyrst sem
meðstjórnandi, síðar sem gjaldkeri en ég
sagði mig úr stjórn HSV í byrjun desember
2002. Starf innan Ungmennahreyfingar-
innar hefur gefið mér mjög mikið og hefur
þessi tími verið mjög gefandi og styrkjandi
fyrir mig sem persónu."
Segðu mér aðeins frá unglingalands-
mótinu sem fram fer á ísafirði í ágúst?
„Þetta verður ein allsherjar íþrótta- og
fjölskylduhátíð. Við viljum skapa vettvang
fyrir alla fjölskylduna til að koma saman
og vera saman eina helgi, fjarri áfengi og
vímu hverskonar. Fjölskyldan á að koma
saman á þetta mót, keppa í íþróttum,
skemmta sér saman og njóta samverunnar
hvort við annað."
Hvernig eru aðstæður á ísafirði fyrir mót
sem þetta?
„ísfirðingar eru þekktir fyrir að taka vel á
móti sínum gestum. Aðstæður eru eins og
best verður á kosið fyrir þetta mót. Tjald-
stæðin verða á mjög góðum stað, aðstæður
fyrir þær íþróttagreinar sem keppt verður í
eru til fyrirmyndar. I einhverja uppbygg-
ingu þarf að fara en það er ætlunin að gera
atrennubraut fyrir langstökk og svæði fyrir
hástökkskeppni klárt við aðalvöll bæjarins.
Nú nýverið samþykkti síðan bæjarstjórn
ísafjarðarbæjar að ráðast í byggingu á
gervigrasvelli sem á að vera tilbúinn fyrir
þetta mót."
Undirbúningur í góðum höndum
Hvernig er undirbúningi fyrir mótið
háttað, hefur hann staðið lengi yfir?
HSV tók að sér þetta mót með mjög
skömmum fyrirvara. Um leið og ljóst var
að mótið færi vestur á firði var ákveðið að
skipa undirbúningsnefnd sem hefur á að
skipa þremur einstaklingum frá UMFÍ,
þremur frá HSV og einum frá Isafjarðarbæ.
Jafnframt þessu var ráðin framkvæmda-
stjóri fyrir mótið og hófst hann strax handa
við að skipuleggja starfið framundan sem
er mikið og verður að ganga hratt og
örugglega fyrir sig. Síðasta unglinga-
landsmót var haldið með stórkostlegum
hætti í Stykkishólmi fyrir ári síðan. Þeir
fengu tvö ár til að undirbúa sitt mót en við
höfum sjö mánuði til að gera betur og
halda hér stórkostlegt mót fyrir alla
fjölskylduna. Mikill tími og fjármunir
munu fara í það að auglýsa mótið þannig
að allir viti af þessum atburði. Búið er að
finna alla sérgreinastjóra sem stjórna
íþróttaþætti mótsins og einnig hefur
frábært par, sem eru bæði íþróttafræðingar,
tekið að sér að vera mótsstjórar, þannig að
íþróttakeppni mótsins er í góðum málum.
Þessar vikurnar er verið að ræða við alla
aðila sem munu koma að þessu móti beint