Skinfaxi - 01.02.2003, Side 11
UnglingalairtteiTrat-gflOfr
og óbeint, þ.e.a.s. aðila í ferðamálum, aðila
í þjónustu, löggæsluaðila og björgunar-
sveitir. Þannig að mikil vinna er eftir en
margt hefur þegar verið tryggt og gengið
frá. Undirbúningur fyrir þetta mót er í
góðum höndum og ég get fullvissað alla
aðila að allt verður klárt á réttum tíma."
Hvað er búist við mörgum þátttakendum
í landsmótinu?
„Þessi spurning er alltaf erfið. Við vonumst
svo sannarlega til þess að allir foreldrar
landsins spyrji sig ákveðinnar spurningar
þegar verslunarmartnahelgin er skipulögð
„Hvar vil ég hafa barnið mitt þessa helgi".
Þegar þessari spurningu er svarað þá
kemur í ljós að unglingalandsmót er mjög
góður kostur fyrir alla þá sem vilja sjá
barnið sitt í vímuefnalausu umhverfi, við
keppni í íþróttum með mjög fjölbreyti-
legum skemmtiatriðum um allan bæ alla
helgina. Við erum að vonast til þess að allt
að 6-10 þúsund einstaklingar leggi leið sína
í faðm fjalla blárra um verslunarmanna-
helgina 2003."
Ungt félag stendur að
Landsmótinu í ár
Hverjir geta tekið þátt í Landsmótinu?
„Það geta allir íþróttamenn landsins sem
eru á aldrinum 11-18 ára tekið þátt á þessu
móti. Þeir sem vilja taka þátt geta skráð sig
á heimasíðu mótsins innan nokkra daga en
þar þurfa þeir að tilgreina undir hvaða
íþróttabandalagi eða ungmennafélagi þeir
keppa fyrir. Við viljum fá krakka á þessum
aldri hingað vestur þessa helgi. Best væri
að krakkarnir kæmu í fylgd sinna foreldra-
/forráðamanna. Ef ekki er hægt að koma
því við þá verða krakkar að koma í fylgd
með ábyrgðarmanni sem kernur með þeim
og ber ábyrgð á þeim á meðan á dvöl þeirri
stendur."
Að þessu sinni er Landsmótið í umsjón
Héraðssambands Vestfjarða. Segðu Skin-
faxa aðeins frá héraðssambandinu?
„Héraðssamband Vestfirðinga (HSV) var
stofnað við sameiningu ÍBÍ og HVÍ
snemma árs 2000. Þetta er ungt félag sem
sett hefur markið hátt. Við höfum tekið
þátt á einu landsmóti UMFÍ, á Egilsstöðum
það sama ár og stóðum okkur mjög vel.
Eins og margir vita sóttum við um að halda
landmótið árið 2004 en því miður varð
ekkert úr því að þessu sinni. Mikið hefur
því gengið á þessi 3 ár síðan félagið var
stofnað. 1 dag eru rúmlega 3000 félags-
menn í HSV sem segir okkur að margir eru
að stunda íþróttir innan ísafjarðarbæjar. Til
þess að gera HSV kleift að standa vel að
sinni starfsemi gekk ísafjarðarbær að
samstarfssamningi við félagið en hann
gerði félaginu kleift að ráða sér fram-
kvæmdastjóra. Sá framkvæmdastjóri var
ráðinn til starfa nú rétt eftir áramótin og er
að vinna vel að hag félagsins. HSV stefnir
enn hærra á næstu árum og er því Ung-
lingalandsmótið mikill heiður fyrir okkur
og gerir félaginu kleift að styrkja innviðimi
í þá átt að ná lengra."
Fjölbreytt dagskrá á Landsmóti
f hvaða greinum er keppt á Landsmótinu?
„Það er keppt í frjálsum, fótbolta, körfu-
bolta, handbolta, sundi, glímu, skák og
golfi. íþróttamenn ættu því að finna grein
við sitt hæfi og mæta fylktu liði á mótið til
keppni við sína jafnaldra."
Að þessu sinni er í fyrsta skipti keppt í
listum og menningu á Unglingalands-
móti. Segðu Skinfaxa aðeins frá því.
„Já, við ætlum að gera þennan þátt að stóru
atriði á þessu móti. Við erum í góðu
samstarfi við Samfés og höfum skipað
sérstakan verkefnishóp til að stjórna
framkvæmd á þessu atriði. Félagsmiðstöð-
var út um allt land eru þessa dagana að
þróa með sér atriði sem þær ætla síðan að
mæta með á hæfileikakeppni unglinga-
landsmótsins. Það verður gaman að sjá
atriðin sem koma vestur og bíð ég í ofvæni
eftir þessum þætti mótsins. Krakkarnir í
þessu eiga eflaust eftir að lita svolítið bæj-
arlífið með sinni sýn."
Þá er einnig keppt í foreldraþrautum á
mótinu, er Landsmótið ein alsherjar fjöl-
skylduskemmtun?
„Við viljum fá alla fjölskylduna til að taka
þátt á einn eða annan hátt í þessu móti. Fá
pabbana og mömmurnar til að hópa sig
saman og keppa í margvíslegum þrautum.
Afar og ömmur, frændur og frænkur
saman í liði. Eg sé fyrir mér að þetta gæti
verið mjög skemmtilegt fyrir fjölskylduna.
Allir meðlimir hennar hafa því tækifæri til
að taka þátt í keppni á mótinu, sér og
öðrum til skemmtunar. Það er von mín að
fólk sleppi sér augnablik þessa helgi og
finni barnið í sjálfum sér og leyfi því að
njóta sín. Allir verða að viðhalda barninu í
sjálfum sér, hvað er skemmtilegra en að
gera það á móti sem þessu?"
Nú er þetta í þriðja sinn sem Landsmótið
er haldið um verslunarmannahelgi, eru
þið komnir í samkeppni við aðrar
útihátíðir eins og Þjóðhátíð og Galtalæk?
„Jú, það má segja það. Við viljum að
fjölskyldur landsins hafi val á því hvar og
þá hvernig þær vilja eyða dýrmætum tíma
sínum þessa helgi. Vilja foreldrar sjá á eftir
börnunum sínum á hátíðir, þar sem
vímuefni hverskonar er allsráðandi, eða
vilja þau senda börnin sín á vímuefnalausa
íþróttahátíð sem skipulögð eru af Ung-
mennahreyfingunni. Nú hafa fjölskyldur
landsins val og við vitum að þær velja vel."
Oflugir bakhjarlar
A móti sól mun spila fyrir dansi á Lands-
mótinu. Það ætti ekki að skemma fyrir?
„Nei alls ekki. Á móti Sól mun verða
aðalhljómsveit Unglingalandsmótsins. Við
erum sannarlega ánægð með að samningar
hafa tekist við hljómsveitina. Þeir munu
verða á Isafirði alla helgina og spila á
kvöldvökum mótsins."
Til að mót sem þetta geti orðið að veru-
leika koma við sögu margir styrktaraðilar.
Hverjir eru helstu bakhjarlar mótsins í
ár?
„Stærsti einstaki styrktaraðili mótsins er
Menntamálaráðuneytið sem styrkir þetta
mót um 10 milljónir króna. Það er sannar-
lega ánægjulegt að ráðamenn þjóðarinnar
komi svona vel að þessu. Menntamála-
ráðuneytið leggur fram mjög myndarlega
með fjárupphæð til að gefa fjölskyldum
landsins val um þessa helgi. Einnig eru það
nokkur yndisleg fyrirtæki sem hafa styrkt
okkur myndarlega í ár. Þau eru Visa,
Bifreiðar- og Landbúnaðarvélar, Islands-
banki, Ölgerð Egils Skallagrímssonar,
Flugfélag íslands og 66°norður. Svo má alls
ekki gleyma að áfengis-og vímuvarnarráð
styrkir okkur einnig mjög myndarlega. Það
fjármagn sem þessir aðilar leggja fram eru
ómetanlegir í því að halda þetta mót. Þau
eru einnig að gefa öllurn fjölskyldum
landsins kost á því að velja rétt um
verslunarmannahelgina."
Þannig að þú býst við góðu og skemm-
tilegu Landsmóti á Isafirði dagana 1. - 3.
ágúst nk.?
„Ó, já. íbúar í ísafjarðarbæ bíða spenntir
eftir því að geta stjanað við þá gesti sem
heimsækja okkur um verslunarmanna-
helgina 2003. Verið hjartanlega velkomin á
Unglingalandsmót UMFI á Isafirði öll sem
eitt."
B.UNGLINGA
LAMDSMOT
UMFÍ
ÍSAFIRÐI 1 .-3. ÁGÚST