Skinfaxi - 01.02.2003, Page 13
Unglingalandsmót UMFÍ á ísafirði 2003
Unglingalandsmótið er frábært framtak
- segir Helga Guðrún Jónsdóttir kynningarfulltrúi B&L sem styrkir landsmótið í ár.
Á dögunum gerðu Ungmennafélag
íslands og B&L með sér samning
vegna Unglingalandsmóts sem
haldið verður á ísafirði um
verslunarmannahelgina. Skinfaxi
fór á stúfana og spjallaði við Helgu
Guðrúnu Jónsdóttur, kynningar-
fulltrúa B&L, um samninginn og
öryggi í bílum.
Leist vel á verkefnið
Helga Guðrún er stjórnmála-
fræðingur að mennt og hefur
sl. 13 ár unnið á sviði al-
mannatengsla. „Fyrst starfaði
ég hjá frjálsum félagssamtök-
um en síðar sem sjálfstætt
starfandi ráðgjafi. Á árunum
1998 til 2000 tók ég mér reynd-
ar frí frá almannatengslunum
þegar ég réði mig til starfa hjá
Skrifstofu jafnréttismála, en
áður en ég sneri mér alfarið að
almannatengslum var ég m.a.
kennari og í dagskrárgerð á
RÚV,“ sagði Helga Guðrún sem
í október á síðasta ári bauðst
starf kynningarstjóra hjá B&L.
„Þetta er skemmtilegt og kref-
jandi starf, sem snýst bæði um
almenna og sérhæfða upp-
lýsingamiðlun um þá bíla sem
við höfum á boðstólum. Ég er
því meira eða minna að fást við
textagerð fyrir heimasíðuna
okkar, fréttatilkynningar, kynn-
ingarbæklinga og þess háttar,"
sagði hún.
Nú gerði B&L samning við
UMFÍ vegna unglingalands-
móts sem fram fer á ísafirði
dagana 1.-3. ágúst nk. í
hverju er þessi samningur
fólginn? „Við leggjum UMFÍ til
bíl, nýjan Megane frá Renault,
sem nýtist félaginu við þá
umfangsmiklu skipulagningu
sem þarf að eiga sér stað, svo
landsmótið verði að veruleika,"
sagði Helga Guðrún.
„Fulltrúar UMFÍ komu að máli
við okkur og þar sem okkur leist
vel á verkefnið ákváðum við að
leggja því lið,“ sagði Helga
Guðrún þegar hún var spurð að
því hvernig stæði á því að B&L
styrkti UMFÍ með þessum
hætti. „Þetta er frábært framtak,
sérstaklega þar sem landsmót-
ið er haldið um Verslunarmann-
ahelgi. Það er mikilvægt að
fjölskyldufólk hafi úr skemmti-
legum kostum að velja um
þessa mestu ferða- og skemmt-
anahelgi ársins,“ sagði hún.
UMFÍ keyrir um á
öruggum bíl
Þegar talið barst að öryggis-
búnaði í íslenskum bílum sagði
Guðrún Helga hann vera
þokkalegan þrátt fyrir tiltölulega
ungan aldur. „Það er síðan
svolítið mismunandi eftir fram-
leiðendum, hversu vel hann er
úr garði gerður. Renault hefur
um árabil hlotið fremstu viður-
kenningar bílaiðnaðarins fyrir
þróun öryggisbúnaðar og er af
mörgum talinn leiðandi á því
sviði,“ sagði hún og hélt áfram.
„Þá er í Evrópu starfandi sjálf-
stæða eftirlitsstofnunin Euro
NCAP sem gerir staðlaðar
öryggisprófanir á bílum. Þeim
er fyrst og fremst ætlað að
miðla aðgengilegum upplýs-
ingum til neytenda um öryggi
bíla og hvet ég alla sem áhuga
hafa á þessum málum að fara á
heimasíðuna þeirra," sagði Hel-
ga Guðrún. En heimasíða
þeirra er: www.euroncap.com
Um öryggi Renault sagði kynn-
ingarfulltrúinn: „Öruggustu bíl-
arnir fá fimm stjörnur, en stjörn-
unum fækkar síðan jafnt og þétt
eftir því sem öryggisbúnaðurinn
er lakari. Renault er eini bíla-
framleiðandinn sem hefur tekist
að fá fimm stjörnur í þrígang hjá
EuroNCAP." Það er því Ijóst að
UMFÍ mun keyra á öruggum bíl
fram að Landsmóti í byrjun
ágúst.
Hvað með notkun öryggis-
belta, eru íslendingar með-
vitaðir um notkun og öryggi
beltanna? „Það held ég, ég
verð a.m.k. ekki vör við annað.
Við verðum hins vegar að gera
okkur grein fyrir því að beltin
eru hönnuð með hliðsjón af
fullorðnum einstaklingum, ekki
börnum og til þess að beltin
gagnist þeim jafnt og full-
orðnum, verða þau að vera í
réttum stólum, eftir stærð og
þyngd,“ sagði Helga Guðrún.
„Renault sérhannar t.d. og
framleiðir bílstóla fyrir hvern
stærðar- og aldursflokk fyrir sig.
Þá eru sumir stólar þannig
gerðir að þá má laga að örygg-
isþörfum barnsins eftir því sem
það stækkar." Þá benti Guðrún
Helga á mikilvægi og öryggis-
gildi beltastrekkjara, og -demp-
ara eða farghemla, sem geta
komið í veg fyrir alvarleg meið-
sli af völdum beltana.
„Verðum að flýta
okkur hægt“
Guðrún Helga telur áróður
hafa mikið að segja þegar
kemur að því að draga úr um-
ferðarslysum hjá ungu fólki.
„Sér í lagi áróður sem ætlað er
að breyta því viðhorfi að „svalir
strákar", sem geta reyndar
verið af báðum kynjum, geti
gengið í augun á öðrum með
áhættusömum akstri,“ sagði
hún en taldi þó fleira þurfa að
koma til. „Mikilvægasta verk-
efnið er að bæta umferðar-
menninguna okkar, en stundum
skortir gagnkvæma tilitssemi í
umferðinni hjá okkur. Við verð-
um að temja okkur að flýta okk-
ur hægt,“ sagði Guðrún Helga.
Þá taldi hún athyglisvert að
krakkar sem eru virkir í mótor-
sporti eða jafnvel mikið á vél-
sleðum virðast síður lenda í
umferðaslysum, sem vekur upp
spurningar um hvort nægilega
vel sé staðið að slíkum málum
hér heima, t.d. hvað keppnis-
og æfingabrautir í mótorsporti
varðar.
Aö lokum, mælir þú með bíl-
um frá B&L? „Eitt af því sem
gerir starf mitt jafn skemmtilegt
og raun ber vitni, er að við erum
að selja góða bíla (BMW, Land
Rover, Renault og Hyundai). Ég
get því hiklaust mælt með öllum
okkar bílum, hvort sem þeir eru
í hærri kantinum eða þeim lægri
hvað verð snertir. Þá er það
ekki aðeins bíllinn sem skiptir
máli, heldureinnig þjónustuum-
hverfið sem umboðið stendur
fyrir. Hjá B&L leggjum við mikla
áherslu á góða þjónustu, meðal
annars með öflugri sí- og
endurmenntun fyrir starfsmenn
þjónustuverkstæðisins okkar
hjá B&L-skólanum,“ sagði Guð-
rún Helga.