Skinfaxi - 01.02.2003, Side 14
Fíkn er fjötur
„Viljum ná til foreldranna"
- segir Pétur Guðmundsson sem var einn af skipuleggjendum verkefnisins „Fíkn er fjötur"
Ungmennafélag íslands og
Kammerkór Reykjavíkur stóðu
í mars fyrir sannkölluðum stór-
tónleikum víða um land undir
yfirskriftinni „Fíkn er fjötur".
Um 1200 manns komu að fram-
kvæmd tónleikanna og söfn-
uðust hundruð þúsunda sem
renna til baráttunnar gegn
fíkniefnadjöflinum, en „Fíkn
er fjötur" er gott innlegg í þá
miklu baráttu. Blaðamaður
Skinfaxa hitti Pétur Guð-
mundsson, einn af forsprökk-
um þessa tónleikahalds og
meðlim í Kammerkórnum, og
átti við hann gott spjall um
tónleikana.
Ungur en stórhuga Kammerkór
Þrátt fyrir ungan ald-
ur hefur Kammerkór
Pétur Guðmundsson hefur frá því hann
man eftir sér verið syngjandi og nýtur
Kammerkór Reykjavíkur nú krafta hans,
en áður hefur Pétur sungið með mörgum
kórum og sönghópum. Hann er fæddur
og uppalinn Húnvetningur og á því ekki
langt að sækja sönghæfileikana.
„Mikil tónlist var í fjölskyldunni og má
segja að það hafi verið regla á heimilinu
þegar ég var strákur að við systkinin
sungum á hverjum degi," segir Pétur. „I
dag syng ég með Kammerkór Reykjavíkur
sem við stofnuðum fyrir réttu ári síðan
nokkrir félagarnir."
Reykjavíkur heldur
betur látið að sér kve-
ða með tónleikunum
„Fíkn er fjötur".
Mikil tónlist var
í fjölskyldunni
og má segja að
það hafi verið
regla á
heimilinu þegar
ég var strákur að
við systkinin
sungum á
hverjum degi.
„Segja má að tónleik-
arnir í samvinnu við
UMFI hafi verið aðrir
stórtónleikarnir sem
við stöndum að því í
fyrra héldum við tón-
leika til styrktar Götu-
smiðjunni. Þá söng
kórinn reyndar ekki
heldur sá um skipu-
lagninguna en hvað tónleikana „Fíkn er
fjötur" varðar sáum við um skipulagn-
inguna og sungum ásamt mörgum öðrum
kórum og einsöngvurum," segir Pétur.
Sannkallað stórvirki
Þátttakendur í tónleikunum í Reykjavík
voru ásamt Kammerkórnum, Kammerkór
Seltjarnarneskirkju, Kammerkór Suður-
lands Skálholti, Kvennakór Reykjavíkur,
Flensborgarkórinn, Skaftfellingakórinn,
Þrestir frá Hafnarfirði, Arnesingakórinn og
Kvennakór Hafnarfjarðar. Þá tóku einsöng-
vararnir Signý Sæmundsdóttir, Kristín S.
Snædal, Snorri Wium og Davíð Ólafsson
einnig þátt. Söngstjóri yfir þessum mikla