Skinfaxi - 01.02.2003, Síða 15
fjölda söngvara, sem taldi um 450 manns,
var Sigurður Bragason.
Þá voru haldnir tónleikar á Selfossi, Borg-
arnesi, ísafirði, Akureyri og Egilsstöðum.
Þjónustumiðstöðvar UMFI á þessum stöð-
um sáu um skipulagningu þeirra tónleika í
samtarfi við tónlistarfólk á viðkomandi
stöðum. Rúmlega 1200 manns komu að
þessu tónleikahaldi um land allt og hátt í
2000 manns sóttu tónleikana þannig að um
sannkallað stórvirki var að ræða.
Áherslan á foreldrana
Eftir tónleika Kammerkórsins í fyrra,
þegar Götusmiðjan var styrkt, segir Pétur
að margar spurningar hafi komið upp er
varðar hvert fólk eigi að leita þegar
fíkniefnadjöfullinn lætur á sér kræla.
„Þetta voru fyrirspurnir sem ég gat ekki
svarað þannig að við í Kammerkórnum
leituðum til Ungmennafélags íslands og
ræddum við Björn B. Jónsson formann og
eru tónleikarnir „Fíkn er fjötur" ávöxtur
þess samstarfs," segir Pétur. í forvarnar-
verkefninu „Fíkn er fjötur" verður lögð
áhersla á að fræða foreldra um fyrstu
einkenni og rétt viðbrögð við fíkniefna-
notkun unglinga. Það fræðslustarf fer fram
í samstarfi við forvarnardeild lögregl-
unnar. Allur ágóði af tónleikunum rann í
sérstakan forvarnarsjóð UMFI.
Fræðslubæklingi dreift til foreldra
Fræðslubæklingnum „Frá fikti til dauða"
verður síðan dreift til allra foreldra barna í
landinu sem eru á aldrinum 13-15 ára. Þar
verður, eins og áður segir, lögð áhersla á að
leiðbeina foreldrum og fræða þá um fyrstu
einkenni fíkniefnanotkunar. Meðal ein-
kenna eru:
- Barnið þitt skiptir oft um vini og er tregt
til að láta þig fá síma hjá þeim eða foreld-
rum þeirra
- Þau sofa illa og/eða lítið/mikið, snúa
sólarhringnum við
- Barnið þitt lendir í útistöðum við lögreglu
og skóla. Allir eru að ofsækja það.
- Þú stendur barnið þitt ítrekað að ósann-
indum eða einhverjum „skrítnum" sögum
um af hverju það braut reglur (of seint
heim, skrópaði í skólanum, peningar horf-
nir af heimilinu, eigur þess horfnar úr
herberginu, „vinur" á tæki, tól eða efni sem
það hefur undir höndum, o.s.frv.).
- Andleg líðan/hegðun barnsins breytist
þannig að það verður mjög skapstyggt,
það má ekkert segja við það, jafnvel beitir
unglingurinn ofbeldi eða eyðileggur hluti.
Eðlilegustu og einföldustu tilætlanir verða
óbærileg afskipti og valdníðsla. Þannig
halda þau foreldrum sínum í óvissu og
óöryggi.
- Utlit breytist oftast til þeirra áttar að þau
hætta að hugsa eins um persónulegt hrein-
læti og hætta að þrífa sig og umhverfi sitt.
Þau sækjast oft í alls konar tákn sem skil-
greina þau sem tilheyrandi jaðarhópum,
s.s. tattú ofl.
Verkefninu framhaldið í haust
Hvað framhald á verkefninu „Fíkn er
fjötur" varðar segir Pétur að hugmyndin
sé að taka aftur upp þráðinn í haust.
„Þá er hugmyndin að halda minni tónleika
með kannski sönghópum og jafnvel í
samstarf þið Þjóðkirkjuna. Sú vinna er ekki
komin langt en ég hef trú á að hægt verði
að halda áfram þessu mikla og góða starfi
sem verkefnið „Fíkn er fjötur" er," segir
Pétur sem vildi þakka ungmennafélög-
unum fyrir gott samstarf víð skipulagn-
ingu tónleikanna.
Ding Dong...
alla virka daga
milli kl. 06.30 og 10.00
Topp tónlistarstöðin
www.fm957.is