Skinfaxi - 01.02.2003, Blaðsíða 16
Kynningarfulltrúi UMFÍ
Starfsemi hreyfingarinnar er hluti af
hverri fjölskyldu í landinu,
segir Páll Guðmundsson kynningarfulltrúi UMFÍ
Síðast liðið sumar tók Páll Guðmundsson við
starfi kynningarfulltrúa hjá Ungmennafélagi
Islands. Um var að ræða nýtt starf sem meðal
annars er fólgið í að kynna starfsemi UMFÍ bæði
út á við til fjölmiðla og landsmanna og eins inn
á við í hreyfinguna og til félagsmanna. Páll er
borinn og barnfæddur Selfyssingur, vann í
kaupfélaginu sem gutti og þaðan lá leiðin í
Samvinnuskólann á Bifröst og síðan í Iþrótta-
kennaraskóla Islands á Laugarvatni. Páll byr-
jaði ungur að æfa íþróttir og mætti á sína fyrstu
æfingu hjá Ungmennafélagi Selfoss fimm ára
gamall hjá frjálsíþróttadeildinni.
Hverfabardagar og gömlu
góðu leikirnir
„Það var fátt annað sem komst
að hjá manni en íþróttir þegar
maður var polli. Reyndar voru
hverfabardagar með sverðum,
spjótum og skjöldum vinsælir,
og eins gömlu góðu leikirnir,
kíló, brennó, fallin spítan og
fleira, en annars voru það
íþróttirnar sem áttu hug manns
allan," segir Páll og rifjar upp
gamla tíma. „Ég hætti reyndar
fljótlega í frjálsum eftir að það
var útséð að ég kæmist ekki
lengra en 2 metra í langstökki
án atrennu og ekki yfir 120 cm í
hástökki og snéri mér að
boltaíþróttum, „segir Páll
brosandi sem fyrir tveimur
árum lagði skóna á hilluna eftir
næstum 20 ára farsælann
knattspyrnuferil í meistara-
flokki.
„Jú, ég átti mjög ánægjulegan
feril sem knattspyrnumaður.
Lék meðal annars með ÍA,
Leiftri og ÍBV og um skeið í
Noregi og Grikklandi. Það var
mjög gaman að fá tækifæri til
að ferðast mikið bæði innan-
lands og erlendis og eins líka að
kynnast þeim fjölmörgu aðilum
sem maður í gegnum boltann."
Páll stundaði nám við Sam-
vinnuskólann á Bifröst og
Iþróttakennaraskólann á
Laugarvatni. „Þetta voru báðir
mjög skemmtilegir skólar, mik-
ið líf og fjör á báðum stöðum og
dvöl í heimavistarskóla er mjög
skemmtileg og góð reynsla.
Ekki skemmir fyrir að bæði
Laugarvatn og Bifröst eru
einstaklega fallegir staðir enda
voru nemendur í skólum dug-
legir að stunda margvíslega
útivist."
Skemmtilegt starf
Páll tók við starfi kynningar-
fulltrúa síðast liðið sumar.
Hvernig hefur starfið lagst í
hann?
„Þetta er búið að vera mjög
gaman. Starfsemi UMFÍ og
ungmennafélagshreyfingar-
innar er miklu fjölbreyttari og
víðtækari en ég hafði gert mér í
hugarlund. Það má segja að
starfsemi hreyfingarinnar sé
hluti af hverri fjölskyldu í
landinu, því hreyfingin starfar
á sviði íþrótta, umhverfismála,
menningar, erlendra samskipta
og fræðslu með það að leiðar-
ljósi að hvetja alla til þátttöku
og allir eigi að hafa möguleika
til að taka þátt í starfinu og
þessi atriði sem ég taldi upp
eru áhugamál hjá fjölskyldu-
fólki almennt í landinu."
I vetur hafa Páll og Valdimar
Gunnarsson fræðslustjóri
UMFI verið á ferð um landið
og heimsótt skóla og félög til
meðal annars að kynna starf-
semi UMFÍ. „Við höfum verið
að heimsækja skóla vítt og
breytt um landið, bæði fram-
haldsskóla og grunnskóla og
höfum rætt við krakka og bent
þeim á möguleika til að taka
þátt í íþróttum og félagsstarfi.
Við höfum haft Orn Arnarson
evrópumeistara í sundi með í
för og höfum við alls staðar
fengið fínar móttökur hjá
krökkunum.
Við höfum lagt á það áherslu
að þátttakan sé mikilvæg og
hver og einn geti sett sér
markmið út frá eigin getu og
áhuga. Þetta snýst ekki allt um
það að vera bestur. Síðan hefur
Valdimar verið á fullu með
Leiðtogaskólann og staðið fyrir
formannanámskeiðum og
leiðtogaþjálfun sem hafa gen-
gið mjög vel."