Skinfaxi - 01.02.2003, Síða 19
Landsmót UMFÍ 2004
Þurfum að láta hendur
standa fram úr ermum,
segir Ómar Bragi Stefánsson framkvæmdastjóri Landsmótsins 2004
í byrjun mars var Ómar Bragi Stefánsson íþrótta-
æskulýðs- og menningarfulltrúi í Skagafirði
ráðinn framkvæmdastjóri Landsmóts LFMFI sem
haldið verður á Sauðárkróki dagana 8. - 11. júlí árið
2004. Þetta verður 24. Landsmótið í röðinni en það
fyrsta var haldið á Akureyri 1909 og eru mótin
haldin á þriggja til fjögurra ára fresti. Síðast var
Landsmótið haldið á Egilsstöðum árið 2001. Ómar
hóf störf í byrjun maí en að mörgu þarf að huga
fyrir slíkt mót enda eru Landsmót UMFI stærstu
íþrótta- og menningaviðburðir landsins. Það hvílir
því mikil ábyrgð á herðum Ómars. Valdimar
Kristófersson heyrði hljóðið í honum og spurði
hann m.a. hvaða þýðingu þessi viðburður hefði
fyrir Sauðárkrók og íþróttalífið í bænum?
Vítamínsprauta í mannlífið
„Viðburður sem þessi getur haft
gríðarlega mikla þýðingu fyrir
stað eins og Sauðárkrók og Skaga-
fjörð allan. Væntanlega verður
töluverð kynningarstarfsemi sem
fer í gang með haustinu og þar
koma líkast til fjölmargir að mál-
um. Skagfirðingar geta nýtt sér
þetta tækifæri vel til að kynna
hvað þeir hafa uppá að bjóða á
fjölmörgum sviðum t.d. ferðaþjón-
ustuaðilar og tekið vel á móti
gestum sem vonandi fjölmenna
hingað næsta sumar. Landsmótið
virkar vonandi sem góð vítamín-
sprauta í allt mannlífið hérna fyrir
norðan og að sjálfsögðu ekki síst á
íþróttalífið sem þó er mjög öflugt
fyrir, aðstaða íþróttafólks mun
stórbatna og það eitt mun hvetja
fleiri til að vera með í íþróttum,"
segir Ómar.
Króknum árið 1971, en ég var
nú bara lítill gutti þá. Ég hef
verið með á nokkrum Lands-
móturn og keppti í knattspyrnu
ásamt félögum mínum undir
merki UMSS."
Og hvernig upplifðir þú lands-
mótin?
„Landsmótin eru afar sérstök og
mega alls ekki leggjast af.
Þetta er í sjálfu sér ekki bara
íþróttamót heldur einnig stór
menningarviðburður. Mannlífið
er mjög fjölskrúðugt og það er
einstök stemning sem myndast á
Landsmótum sem hvergi er
annarsstaðar. Á Landsmótum
keppa margir af helstu íþrótta-
mönnum landsins og eins fjöl-
margir aðrir minni spámenn en
allir eru mættir til að vera með.
Tjaldbúðalífið er einnig í algjör-
um sérflokki."
Þetta er í
sjálfu sér
ekki bara
íþróttamót
heldur einnig
stór menn-
ingar-
viðburður.
Mannlífið er
síðustu Landsmótum, bæði frá Borgarnesi
og eins frá Egilsstöðum því það er að
sjálfsögðu óþarfi að finna alltaf upp hjólið.
Ég hef átt fundi með fólki sem þekkir vel til
Landsmóta og eins hefur töluverður tími
farið í að vinna upp skipurit og vinnuferla.
Einnig er ég byrjaður í vinnu við fjármögn-
un mótsins og ég er þess fullviss að góðir
aðilar koma þar að málum með okkur. En
aðallega er það að fá góða yfirsýn yfir öll
verkefnin og skipuleggja sig vel."
mjög fjöl-
skrúðugt og
Stefnt á ýmsar nýjungar
Hefur þú sjálfur verið þátttak-
andi eða fylgst með landsmótum
UMFÍ í gegnum árin?
„Já, ég hef verið með á nokkrum
mótum en fyrsta mótið sem ég
fylgdist með og man eftir var
auðvitað Landsmótið hér á
Það er rétt rúmt ár í mótið og þú
ert að hefja störf um þessar
mundir. Að hverju þarf að huga
svona fyrst til að byrja með?
„Það er mjög mikið verk fram-
undan en ég hef undanfarnar
vikur verið að lesa gögn frá
það er
einstök
stemning sem
myndast á
Landsmótum
sem hvergi er
annarsstaðar.
Það er kannski erfitt að segja til um það á
þessu stigi en mega gestir búast við
einhverjum nýjungum á Sauðárkróki?
„Já, það ætla ég að vona. Dagskráin sjálf
liggur ekki fyrir fullmótuð, en ýmsar hug-
myndir eru á lofti og vissulega stefnum við
á ýmsar nýjungar sem koma til með að setja
sinn svip á mótið."