Skinfaxi - 01.02.2003, Page 20
Landsmót UMEÍ 2004
Hvað með aðstöðuna á Sauðárkróki?
„Við erum tiltölulega lánsöm og búum nokkuð vel
hvað íþróttamannvirki snertir. A Sauðárkróki eigum
við mjög gott íþróttahús, þar er skemmtilegur 9 holu
golfvöllur, frábær reiðhöll og aðstaða fyrir hesta-
íþróttir, knattspyrnuvellir og nýr íþróttaleikvangur
sem verið er að vinna við og verður tilbúinn fyrir
Landsmótið. Síðan höfum við fjölmörg svæði sem
sjálfsagt verða nýtt vel og eins búum við afar vel með
glæsilegar skólabyggingar við hlið íþróttaleikvangs-
ins. Sundlaugin okkar, sem er 25 m. útilaug og var
endurbyggð fyrir síðasta Landsmót á Króknum 197,1
er farin að láta á sjá en hún verður tekin í gegn og
mun standa undir nafni á Landsmótinu."
Þurfum að sýna úr hverju við erum gerð
Sauðárkróki var úthlutað Landsmótinu á síðsta ári
þegar ísafjarðarbær helltist óvænt úr lestinni.
Verður ekki erfiðara að vinna þetta með svo stuttum
fyrirvara?
„Jú, vissulega hefði verið gott að liafa betri tíma, það
er alveg klárt en það þýðir ekki að velta sér upp úr því
heldur láta hendur standa fram úr ermum. Það er líka
öflug Landsmótsnefnd sem hefur verið skipuð og nú
er bara að sýna úr hverju við erum gerð."
Fer mótið eingöngu fram á Sauðárkróki, þannig að
hægt verði að fanga þann sérstaka sjarma og því
óvenjulega andrúmslofti sem umlykur mótið m.ö.o.
Landsmótsstemmninguna?
„Ekki hefur endanleg ákvörðun verið tekin um allar
keppnisgreinar og hvar þær verða staðsettar. En það
er ljóst í mínum huga og hefur mikið að segja að hafa
mótið allt á einum stað ef svo má að orði komast.
Þessi sérstaka Landsmótsstemning næst með þeim
hætti og keppendur og gestir geta fylgst mun betur
með öllum hlutum ef mótshaldið verður á einum stað
og utanumhald verður auðveldara. Eg legg mikla
áherslu á að þessi stemning náist því hún er einn af
meginþáttum mótsins."
...það er ljóst í
mínurn huga
og hefur mikið
að segja að
hafa mótið allt
á einum stað
ef svo má að
orði komast.
Þessi sérstaka
Landsmótsste
mning næst
með þeim
hætti og
keppendur og
gestir geta
fylgst mun
betur með
öllum hlutum
ef mótshaldið
verður á
einum stað...
Skagfirðingar
gestrisnir
Hvað gerið þið ráð fyrir
mörgum gestum og hvað
er bærinn í stakk búinn
til að taka á móti mörg-
um?
„Auðvitað er þetta alltaf
ákveðið happdrætti, en
nú er ókeypis inn á Lands-
mótið og við munum aug-
lýsa það sem íþrótta- og
menningarhátíð fyrir alla
fjölskylduna, þar sem allir
geta fundið eitthvað við
sitt hæfi, fylgst með
íþróttaviðburðum og fjöl-
mörgum öðrum dagskrár-
liðum sem munu setja
svip sinn á mótið. Svo er
það blessað veðrið sem
alltaf hefur sitt að segja
þegar svona hátíðir eru
haldnar. En eigum við
ekki að segja að við stefn-
um á að hingað komi á
milli 10.000 til 15.000
manns.
Skagfirðingar hafa alltaf
verið sagðir gestrisnir og
hafa tekið vel á móti þeim
er sækja fjörðinn okkar
heim og svo verður einnig
á Landsmótinu. I Skaga-
firði eru hótel, gistiheimili,
bændagisting víða um
fjörðinn og tjaldsvæði
verða næg."
Landsmót UMFÍ eru mik-
lir íþrótta- og menningar-
viðburðir en er hug-
myndin að hafa einhverja
sérstaka afþreyingu fyrir
landsmótsgesti?
„Já, ég legg mikið upp úr
því að hér verði töluverð
afþreying fyrir alla fjöl-
skylduna, jafnt stóra sem
smáa. Núna eru möguleik-
arnir fjölmargir td. sigling
um Skagafjörð og út í
Drangey, gönguferðir,
heimsóknir á söguslóðir,
hestaferðir og fljótasig-
lingar svo eitthvað sé
nefnt. Ekki væri óeðlilegt
að ætla að söngurinn komi
til með að setja sitt mark á
Landsmótið hjá okkur".
Hvað mun þessi viðburður
kosta sveitarfélagið?
„Þessi viðburður kemur að
sjálfsögðu tii með að kosta
sveitarfélagið töluvert fjár-
magn en ég lít svo á að þeim
peningum sé vel varið því það
sem kemur til baka verður
mun meira og mikilvægara.
Sveitafélagið leggur til ákveð-
ið fjármagn til uppbyggingar
íþróttaleikvangsins og svo er
ekki ólíklegt að ýmsar um-
hverfisframkvæmdir komi til
því áhersla er lögð á að allt líti
vel út þegar flautað verður til
leiks 8. júlí 2004."
Góð fjárfesting til handa
æsku þessa sveitarfélags
Ég heyri að þið gerið miklar
væntingar til mótsins og
þeirra framkvæmda sem
munu eiga sér stað, bæði
þegar til skemmri og lengri
tíma er litið?
„Já, þetta mun vonandi hafa
jákvæð áhrif á allt íþróttalíf í
Skagafirði. Með batnandi að-
stöðu vinnast vonandi fleiri
sigrar en hér verður einn
glæsilegasti leikvangurinn á
landinu þegar honum verður
lokið fyrir Landsmótið. Það er
mikilvægt að fá hingað fleiri
mót bæði stór og smá þannig
að þessi glæsilega aðstaða sem
verið er að byggja upp verði
góð fjárfesting til handa æsku
þessa sveitarfélags."
Mikilvægt að jákvæð
samstaða myndist
heima fyrir
„Ég vil svo í lokin óska eftir
góðu samstarfi við alla Skag-
firðinga því það á eflaust eftir
að verða leitað til fjölmargra
um aðstoð. Það er mikilvægt
að jákvæð samstaða myndist
heima fyrir því framundan er
mikil vinna og fjölmörg verk-
efni bíða.
Einnig hlakka ég til að
kynnast enn fleira fólki um
land allt sem kemur til með að
setja sinn svip á mótið og
vonast eftir að sjá sem flesta á
24. Landsmóti UMFÍ á Sauðár-
króki næsta sumar.