Skinfaxi - 01.02.2003, Blaðsíða 23
Hættum að reykja
Reykjanesbær með bæjarstjór-
ann Arna Sigfússon í farar-
broddi hefur stutt myndarlega
við verkefnið „Hættum að
reykja!" sem Ungmennafélag
íslands ásamt öðrum er aðili
að. Ekki alls fyrir löngu spjall-
aði Skapti Örn Ólafsson við
Árna um verkefnið fyrir Skin-
faxa.
„Að fleira ungu fólki finnist það
algjör vitleysa að reykja!“
- segir Árni Sigfússon bæjarstjóri markmiðið vera með verkefninu „Hættum að reykja!“
Óhefðbundin hugmynd verður að
veruleika
Árni er fjögurra barna faðir, fæddur í
Vestmannaeyjum árið 1956 og ham-
ingjusamlega giftur sömu konunni og
sáttur við lífið og tilveruna eins og hann
orðar það. Þegar Árni er spurður út í
menntun þá segir hann menntun vera
þá þekkingu sem situr eftir þegar skóla-
göngu líkur.
„Menntun er enn að safnast fyrir hjá mér.
Ég lauk B.Ed prófi frá KHÍ, fór í nám í
stjórnun og stjórnsýslu við Tennessee
háskóla í Bandaríkjunum og lauk þaðan
Mastersgráðu 1986," segir Árni sem
óhætt er að segja að hafi starfað við
margt. „Ég hef verið sjómaður, verka-
maður, verslunarmaður, deildarstjóri
Fjárlaga- og hagsýslustofnunar, fram-
kvæmdastjóri Stjórnunarfélags Islands,
framkvæmdastjóri Tæknivals, og nú
bæjarstjóri, auk ýmissa hliðaverkefna
eins og aðrir Islendingar. Ég var borgar-
fulltrúi í Reykjavík frá 1986-1999," segir
Árni hokinn af reynslu.
Reykjanesbær ásamt fyrirtækjum og
stofnunum í bænum hafa ákveðið að
taka þátt í verkefninu „Hættum að
reykja" af miklum myndarskap með
fjárframlögum. En hvers vegna tekur
Reykjanesbær þátt í verkefninu?
„Þegar tónlistarathafnamaðurinn Jóhann
G. Jóhannsson ræddi við mig um hug-
mynd sína fannst mér hún góð. Of margir
Islendingar reykja, þótt þeir viti hversu
vitlaust það er. Hið sama gildir hér hjá
okkur! Við þurfum að gera eitthvað í
málinu, eitthvað sem er óhefðbundið.
Hugmynd Jóhanns var óhefðbundin,"
segir bæjarstjórinn.
Margir koma að góðu verkefni
Hvernig er aðkoma ykkar að verk-
efninu?
„Við vorum frumkvöðlar. Með stuðningi
okkar og hvatningu til fyrirtækja í bæn-
um tókst að safna fyrir góðu plötuupp-
lagi, sem var svo gefið til skólakrakk-
anna. Þau hafa selt upplagið að mestu og
fengið dágóðan pening til heilbrigðra
nota," segir Árni.
Auk Reykjanesbæjar styrkja eftirtalin
fyrirtæki hvatningarátakið: Sparisjóð-
urinn í Keflavík, Hitaveita Suðurnesja,
Aðalstöðin, Apótek Keflavíkur, Plastgerð
Suðurnesja, Verslunarmannafélag Suður-
nesja, Sjóvá-almennar, Tryggingamið-
stöðin, Flugstöð Leifs Eiríkssonar, Matar-
lyst-Atlanta og Verkfræðistofa Njarð-
víkur.