Skinfaxi - 01.02.2003, Blaðsíða 24
Hættum að reykja
Upptakan týnd!
Nú var gefinn út geisladiskur
vegna verkefnisins þar sem
stjörnur á borð við Birgittu Hauk-
dal, Jónsa í Svörtum fötum, Hreim
í Landi og sonum og Jóhannu
Guðrúnu syngja. Þú hefur ekki
viljað taka lagið þar sem þú ert nú
„gamall hundur" í tónlistarbrans-
anum?
„I stað þessara söngfugla var ég
látinn syngja með Jóni Kristjáns-
syni heilbigðisráðherra, landlækni,
bæjarstjóranum í Garðabæ og fleira
öndvegisfólki. Það virðist hafa tek-
ist þannig hjá okkur að upptakan er
týnd!," segir bæjarstjórinn í gaman-
sömum tón.
Menningar-, íþrótta- og tóm-
stundadeild Reykjanesbæjar fær
1200 eintök af geistaplötunni,
„Hættum að reykja!" sem gefin er
út sérstaklega í tilefni hvatningar-
átaksins. Upplaginu verður dreift
sem gjöf frá ofangreindum aðilum
til nemendafélaga í grunnskólum
bæjarins. Þau geta nýtt gjöfina til
endursölu til að fjármagna til-
tekin verkefni sem ákveðið er að
vinna að t.d. kaup á tækjum,
skólaferðalag o.þ.h. Menningar-,
íþrótta- og tómstundadeild mun
annast kynningu og dreifingu á
geislaplötunni.
Öflug forvarnarstefna í
Reykjanesbæ
Þegar Arni var spurður að hvaða
árangri hann byggist við stóð ekki
á svörunum.
„Að fleira ungu fólki finnist það
algjör vitleysa að reykja!."
Hvernig er forvarnarstarfi háttað
hjá ykkur í Reykjanesbæ?
„Hér er viðamikið starf unnið.
Sérstakur forvarnarhópur starfar
hér, þar sem við sameinum að-
komu íþrótta- tómstunda og félags-
þjónustunnar með lögreglunni, úti-
deild og heilsugæslu. Við mótum
sameiginlega forvarnarstefnu og
framfylgjum henni. Þetta virkar
vel," segir Arni.
Besta forvörnin í baráttunni gegn
reykingum telur Arni vera þá að
fólk hafi um annað að hugsa en að
styrkja ameríska tóbaksframleið-
endur með því að skemma heilsu
sína. En telur hann ís-
lendinga vera á réttri leið
hvað forvarnarstarf varð-
ar? „Við þurfum að vera
uppfinningasamari! Ungt
fólk verður fljótt leitt á frö-
sum og það þarf því stöð-
ugt að koma að málum frá
nýjum sjónarhóli. Ég tel þó
mest um vert að ungt fólk
fái nóg að starfa í heilbrigð-
um verkefnum. Þá álpast
færri út í reykingar og
vímuefni," segir Árni.
„Hljóta að vera
klökkir"
Þegar Árni var spurður að
því hvort að hann sæi ein-
hverja breytingu á reyk-
ingahegðun íslendinga í
dag og þegar hann var
ungur sagði hann fólk
vera upplýstara í dag en
þá. „Já tvímælaust. Menn
eru upplýstari um skað-
semi reykinga, en ótrúlega
margir láta sig samt hafa að
reykja. Tóbaksframleiðend-
ur hljóta að vera klökkir
yfir þessum einstaka stuð-
ningi, þrátt fyrir vitneskju allra um að þetta er
stórskaðlegt og tóm vitleysa," segir Árni.
Hver er þín skoðun á reykingum?
„Ég borða reyktan mat og þykir góður. En ég
reyki ekki sjálfur! Lengra nær ekki áhugi minn
á reykingum," segir Árni.
„Vinur minn Clint Eastwood, sem hefur
líka verið bæjarstjóri, hvatti mig til að
fara í prufu! Nei annars, eigum við
nokkuð að fara út í þetta. Jú, það má vel
vera að ég birtist í búningi."
Við þurfum að vera uppfinningasamari! Ungt fólk verður fljótt
leitt á frösum og það þarf því stöðugt að koma að málum frá
nýjum sjónarhóli. Eg tel þó mest um vert að ungt fólk fái nóg að
starfa í heilbrigðum verkefnum. Þá álpast færri út í reykingar og
vímuefni
Tókst þú þátt eða tekur þú þátt í starfi
Ungmennafélags Islands?
„Nei, þegar ég var yngri, fannst mér eldri
menn vera í Ungmennafélaginu, svo ég ætlaði
að bíða þar til ég yrði eldri. Nú þegar það er
orðið, virðast yngri menn vera að taka yfir,
þannig að ég er orðinn of gamall," segir hinn
síungi bæjarstjóri.
„Clint Eastwood hvatti mig í prufu!"
Nú sást til þín í lögreglubúningi á hvíta
tjaldinu á dögunum. Hvernig kom það til og
mega íbúar Reykjanesbæjar eiga von á því að
sjá þig í lögreglubúningi þegar það dregur
upp sígarettur?
Þó svo að Árni hafi ekki tekið þátt í
starfi UMFÍ á sínum yngri árum var
hann á fullu í íþróttum.
„Ég var í knattspyrnu, handbolta og
glímu á yngri árum. Á þyngri árum hef
ég ekki stundað íþróttir! Ég hef gaman af
að horfa á íþróttir og veit þá eins og
flestir áhorfendur nákvæmlega hvað þarf
hverju sinni til að skora," segir íþrótta-
kappinn Árni.
Að lokum - er gott að búa í Reykjanes-
bæ?
„Sá sem hefur ekki upplifað að búa í
Reykjanesbæ, veit ekki af hverju hann
missir," segir bæjarstjórinn.