Skinfaxi - 01.02.2003, Síða 28
„Erum búnir að ná milliveginum"
í dag er staðan þannig að undirfyrirtæki Warner
Brothers, sem Hreimur og félagar gerðu samning
við, var lagt niður í kjölfar niðurskurðar eftir
árásirnar 11. september 2001 og hljómsveitin er því
laus allra mála við Warner Brothers.
„Þrátt fyrir að við séum ekki lengur á mála hjá Warn-
er Brothers erum við með umboðsmann úti sem
hefur m.a. unnið með söngkonunni Lauren Hill. Ef
eitthvað hleypur á snærið hjá okkur er það frábært en
annars líður okkur bara vel og erum að vinna að
plötu sem á að koma út núna í júní," segir hann.
„Við teljum að núna séum við búnir að ná milliveg-
inum, frá því að vera bandarískt háskólaband út í
súrt poppband," segir Hreimur aðspurður um nýju
plötuna. „Við erum afskaplega ánægðir með plötuna
og teljum að við séum núna komnir á rétta hillu. Ég
þori að fullyrða að þetta verði okkar besta plata, það
eru góðir textar á henni og ég er virkilega stoltur af
lagasmíðunum," segir söngvarinn, en öll lögin á
plötunni eru eftir hann sjálfan en margir eru kallaðir
til hvað lagasmíðar varðar. „Við erum ekki góðir
textasmiðir og viðurkennum við það fúslega. Við
höfum fengið hjálp frá Andreu Gylfadóttur, Bigga í
Maus, Kristjáni Hreinssyni og einnig ætlar Stefán
Hilmarsson að hjálpa okkur. Við textana sem ég hef
■Hfflttum-oð-foykjfr
verið að bauka við ætlar síðan Bubbi Morthens að hjálpa
mér," segir Hreimur.
Platan Happy Endings gekk ekki nógu vel og ætla
Hreimur og félagar að sýna hvað í þeim býr í sumar
með því að fylgja plötunni vel eftir.
„Það er ekki vanþörf á því sumarið í fyrra gekk ekki
nógu vel hjá okkur. En við ætlum ekkert að leggja árar í
bát heldur að sýna klærnar og koma með almennilegt
efni í sumar," segir Hreimur.
„Alger vitleysa að byrja"
Hreimur tók þátt í verkefninu „Hættum að reykja"
ásamt fleiri tónlistarmönnum, boðskapur verkefnisins er
einfaldur - að það sé algjör vitleysa að reykja. „Það sten-
dur meira að segja á pakkanum að reykingar valda
dauða," segir Hreimur. „Þegar ég var að verða tvítugur
geri ég þau hrikalegu mistök að byrja að reykja og hef
verið að strögla við þennan djöful síðan. Ég ætla mér
auðvitað að hætta en það að reykja er ekki eitthvað sem
ég viðurkenni í mikilli gleði. En ég er á góðri leið með að
hætta og að fá að taka þátt í þessu verkefni hefur haft
góð áhrif á það," segir Hreimur. „Besta ráð sem ég get
gefið unglingum varðandi reykingar er að það er algjör
vitleysa að byrja."
Hreimur hefur einnig komið að forvarnarstarfi varð-
andi eiturlyf og unnið með gítarleikaranum Sigurði
Gröndal sem rekur vorvarnarstarf í Hólaskógi.
„Ég hef farið og spilað þar og talað við krakkana um
fíkniefnadjöfulinn. Ég hef alla tíð beitt mér mikið fyrir
forvörnum í sambandi við fíkniefni og ætla að gera það
áfram," segir Hreimur og bætir við að að vandinn varð-
andi fíkniefnin sé mun meiri en fólk heldur. „Vandinn er
miklu, miklu meiri en fólk þorir að halda. Ég hef séð
ýmislegt í þessum tónlistarbransa og veit að vandinn er
mikill. Ég get ímyndað mér að fíkniefnavandinn eigi
rætur sínar að rekja m.a. til reykinga, því það er náttúru-
lega bara líka fíkn og það veit ég sjálfur," segir Hreimur.
„Hefði orðið æðislegur íþróttamaður"
Hreimur tók á sínum yngri árum mikið þátt í starfi
UMFI með Héraðssambandinu Skarphéðni í Rangár-
vallarsýslu.
„Ætli ég hafi ekki tekið þátt í allri starfsemi sem UMFI
hefur upp á að bjóða. Ég tók þátt í öllum mótum sem
starfsmaður. Þetta var alveg óskaplega gaman en síðan
varð ég að velja og hafna og tónlistin varð fyrir valinu,"
segir hann og bætir við: „En ég hefði án efa orðið
æðislegur íþróttamaður," segir Hreimur og hlær við. En
þrátt fyrir að lifa og hrærast í tónlistinni reynir hann að
hreyfa sig eins og kostur gefst. „Ég stunda að mestu
heilbrigt líferni í dag. Ég er duglegur að hreyfa mig, spila
golf og er í ræktinni," segir Hreimur sem segir að stærsti
sigurinn í lífinu sé að standa þar sem hann stendur í dag,
að vera tónlistarmaður. „Alla tíð hef ég ætlað mér að
verða það sem ég er í dag. Ég ætlaði mér að verða
söngvari og ég ætlaði mér að semja góð lög og ég held að
það hafi tekist. Síðan er ég að verða 25 ára núna 1. júlí og
er afskaplega hamingjusamur maður og bjartur á lífið og
tilveruna," segir Hreimur.