Skinfaxi - 01.02.2003, Page 30
Arnór Benónýsson
Viljum fanga og koma til skila þeirri
lífsgleöi og þrótti sem jafnan
einkenna Landsmót UMFÍ
- segir Arnór Benónýsson leikstjóri sem ætlar að færa Landsmót UMFÍ upp á leiksviðið
Ungmennafélagið Efling skrifaði
í mars sl. undir samning við
leikstjóra og handritshöfunda að
leikritinu „Landsmót" sem fé-
lagið ætlar að taka til sýninga
næsta vetur. Arnór sér um að
leikstýra verkinu en þeir Jóhann-
es Sigurjónsson og Hörður Ben-
ónýsson eru handritshöfundar að
leikverkinu. Skinfaxi hafi sam-
band við leikstjórann og forvitn-
aðist aðeins um „Landsmótið."
Öflugt leiklistarstarf
hjá Eflingu
Arnór Benónýsson er menntaður
leikari og hefur starfað sem kennari
við Framhaldsskólann á Laugum
undanfarinn sjö ár. Samhliða því
hefur hann unnið sem leikstjóri,
aðallega hjá Umf Eflingu, en einnig
hjá Leikfélagi Húsavíkur. Eins og
aðrir sveitungar byrjaði hann ungur
að starfa í Ungmennafélaginu
Eflingu og var þar um tíma
formaður. Þá hefur hann setið í
stjórn HSÞ og UMFÍ og starfað
sem framkvæmdastjóri HSÞ og
UMSK.
Arnór sagði að starf Ung-
mennafélagsins Eflingar væri
sjálfsagt keimlíkt starfi ung-
mennafélaga í landinu.
„íþróttir skipa veglegan sess hjá
félaginu, en þó hef ég þá
tilfinningu að leiklistarstarf hér
sé öflugra heldur en í öðrum
félögum. Það helgast sjálfsagt
ekki síst af því að hér er
aldargömul
leiklistarhefð.
Þannig má
lesa það í
fundargerðum
félagsins að
algengt var á
fundum að
leikþætti sem
fundarins
aldargömul leiklistarhefð. Þannig má lesa
það í gömlum fundargerðum félagsins að
algengt var á fundum að setja upp leik-
þætti sem hluta af dagskrá fundarins,"
sagði Arnór.
Borgar- og sveitamenningin
takast á í leikritinu
Nú er þið í Eflingu að fara að setja á
fjalirnar leikritið „Landsmót", segðu inér
aðeins frá tilurð þess að þið setjið
leikritið á svið og um hvað herlegheitin
fjalla?