Skinfaxi - 01.02.2003, Blaðsíða 31
•Árnór Bcnóiiýsson
„Já það er rétt við erum nú að
láta skrifa fyrir okkur
söngleik sem ber vinnuheitið
„Landsmótið" og gerist á
Landsmóti UMFÍ á sjöunda
áratugnum á Norðurlandi.
Þar takast á borgar- og sveita-
menning og hin gömlu gildi
andspænis bítlamenning-
unni," sagði leikstjórinn og
heldur áfram. „Það er ætlun-
in að koma fyrir sem flestu af
því fjölbreytilega mannlífi
sem einkennir Landsmót.
íþróttakeppni verður áber-
andi (hvernig sem svo gengur
að koma henni til skila á litlu
leiksviði.), síðan svífur róm-
antíkin að sjálfsögðu yfir
vötnum og ungmennafélags-
andinn og vínandinn takast á
um sálirnar," sagði Arnór
sem ekki vildi upplýsa les-
endur Skinfaxa of mikið um
leikritið. „Annars er rétt að
upplýsa ekki of mikið á þessu
stigi málsins enda sitja
höfundarnir þeir Jóhannes
Sigurjónsson ritstjóri og
Hörður Þór Benónýsson múr-
bóndi með sveittan skallann
við skriftir." Þá bera að geta
þess að tónlist Bítlanna verð-
ur áberandi í leikverkinu.
ímyndunaraflinu gefinn
laus taumurinn
„Það er nú svo að útfærsla á henni er í
huglægri vinnslu og best að hafa um það
sem fæst orð á þessari stundu. En það sér
hver maður í hendi sér að t.d. stangarstökk
og spjótkast er ögrandi verkefni í þessu
samhengi," sagði leikstjórinn.
Æfingar í haust - frumsýning
á nýju ári
En endar leikritið vel?
„Þetta gamansöngleikur með raunsönnum
undirtón og sem slíkur endar hann að
sjálfsögðu vel. Að vísu er það svo með
leikverk að endir þeirra er jafnan afstæður,
það sem einum finnst gott líkar öðrum
miður og svo framvegis. En við munum
leggja okkur fram um að fanga og koma til
skila þeirri lífsgleði og þrótti sem jafnan
einkenna Landsmót Ungmennafélags ís-
lands," sagði Arnór að lokum og vildi bæta
því við að æfingar á leikritinu munu hefjast
16. október og stefnt verði að frumsýningu 6.
febrúar á næsta ári.
Nú er handritið að leikritinu
sérstaklega samið fyrir ykkur í Eflingu.
Það hlýtur að vera krefjandi að setja upp
þannig Ieikverk?
„Auðvita er á margan hátt flóknara og
erfiðara að setja upp frumsamið verk, en það
hefur þó einnig þann kost að fyrirmyndir
eru engar og hægt að nýta ímyndaraflið
óhamið af fyrirframgefnum hugmyndum.
En vinnan sem leggja verður fram er
vitaskuld meiri ekki síst við að slípa verkið
og laga það að aðstæðum og einstak-
lingum," sagði Arnór.
Þegar Arnór var spurður að því hvort
leiklistargyðjan lifi góðu lífi í Þingeyjar-
sýslunum sagði hann svo vera.
„Það er óhætt að segja það þar sem hefðin
fyrir leiklist er hér rík. Það á við um alla
sýsluna enda starfa hér þrjú félög af miklum
þrótti."
Eins og áður segir verður keppt í ýmsum
íþróttagreinum í leikritinu og mun það
vera einsdæmi.
Leiklistin innan ungmennafélagsins
hefur heldur betur blómstrað síð-
ustu mánuðina og hafa mörg leik-
ritin litið dagsins ljós og fengið af-
bragðsdóma.
Umf. Vaka sýndi í apríl leikritið
Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson í
Þjórsárveri. Leikarar voru alls 12 og
allir félagar í Umf. Vöku, og leik-
stjóri var Gunnar Sigurðsson.
Leikdeild UMF. Reykdæla sýndi í
apríl farsann, Góðverkin kalla, eftir
þá Armann Guðmundsson, Sævar
Sigurgeirsson og Þorgeir Tryggva-
son. Leikritið fjallar um tvo karla-
klúbba (Dívans og Lóðarís) og
kvenfélagið Sverðliljurnar sem
keppast við að gefa sjúkrahúsi í litlu
þorpi úti á landi sem veglegustu
afmælisgjöfina á 100 ára afmæli þess.
Mikið gengur á og ýmsum brögðum
er beitt til að klekkja á andstæð-
ingum. Verkið er eitt grín frá upphafi
og endar það með mjög svo óvænt-
um og sérstökum hætti. Leikstjóri
var Valgeir Skagfjörð og tóku tíu
leikarar þátt í uppfærslunni. Sýn-
ingin hlaut mikið lof fyrir góðan leik,
skemmtilega umgjörð og framsetn-
ingu.
Umf. Þórsmörk í Fljótshlíð fumsýndi
gamanleikinn GRÆNU LYFTUNA í
félagsheimilinu Goðalandi í Fljóts-
hlíð í lok mars sem tókst vel. Gátu
sýningagestir því kæst með hækk-
andi sól.
Leikdeild UMF Stafholtstungna í
Borgarfirði (UMSB) sýndi í lok mars
leikritið „EF ÉG VÆRl GULLFISK-
UR" sem er stórskemmtilegur farsi
eftir Arna lbsen í leikstjórn Þórunnar
Pálsdóttur og tókst vel til.