Skinfaxi - 01.04.2003, Page 9
tilviki er því að fá miklu, miklu meira fyrir pen-
ingana heldur en að setja þá í eitthvað takmarkað
starf t.d. innan ríkisstofnana. Að mínu viti snýst
forvamarstarf um að virkja grasrótina, almenn-
ing í landinu, ekki bara sérfræðinga.“
Þannig að þú hefur trú á því á næstu árum
að frjáls félagasamtök og UMFí m.a. verði
metin meira að verðleikum og fái meiri
stuðning frá hinu opinbera? „Það vona ég svo
sannarlega það blasir við að það þarf að efla
þetta starf. Það er einfaldléga besta og ódýrasta
leiðin,“ sagði Þórólfur að lokum.
eitt sem við höfum nt.a. rekið okkur á í sam-
bandi við unglinga að verslunarmannahelgar
hafa haft mikil áhrif á neyslu þeirra. Það eru
margir unglingar sem lenda í óreglu í fyrsta
skipti um verslunarmannahelgi. Þannig að við
byrjuðum fyrir nokkru að reka áróður fyrir því
að foreldrar hugsuðu sig tvisvar um áður en þau
gæfu ungum börnum sínum lausan tauminn um
verslunarmannahelgi. Þegar UMFI ákvað að
halda vímuefnalausa íþrótta- og fjölskylduhátíð
um verslunarmannahelgina, þá töldu margir
sérfræðingar sem við ræddum við að þetta yrði
vonlaus tilraun hjá UMFI -barnaleg bjartsýni.
Þeir töldu að það væri komin svo mikil hefð
fyrir verslunarmannahelgunum að það þýddi
ekkert að bæta við unglingalandsmóti. Sem
betur fer hlustaði UMFI ekkert á þessar úrtölu-
raddir og hélt þetta glæsilega landsmót í fyrra á
Stykkishólmi sem tókst frábærlega. Þarna held
ég að UMFí hafi brotið blað í sögunni. Ég tel
að það sé afskaplega mikilvægt að UMFI haldi
þessu starfi áfram, til lengri tíma og gefi þá ungl-
ingunum og foreldrum tækifæri á að skemmta
sér með öðrum hætti en verið hefur um verslun-
armannhelgar. Þessum peningum sem Afengis-
og vímuvarnaráð ver til styrktar UMFÍ er vel
varið og sérstaklega þeim pening-
um sem er veitt til styrktar Ungl-
ingalandsmóti UMFí um versl-
unarmannahelgina."
TÓKU AF SKARIÐ HVAÐ VARÐAR
FORVARNARSTEFIUU
Nú hefur Afengis- og vímu-
varnaráð átt gott samstarf við
UMFí í gegnum árin. Hvernig
stendur á þessu mikla samstarfi? „Þetta hefur
frá upphafi verið gagnkvæmt samstarf. UMFí
tekur t.d. fyrst af skarið af þessum stóru félög-
um og tekur upp forvarnastefnu sem er sam-
þykkt er á þingi UMFí. Þar með tók UMFÍ ákv-
eðna forystu í þessum málaflokki. Við verðum
að hafa það í huga að íþróttahreyfingin er afar
mikilvæg í öllu forvamastarfi hvort sem mönn-
um líkar betur eða verr. Því innan UMFI og ISÍ
eru þegar mest er uppundir 70% barna og
unglinga úr hverjum árgangi sem tekur þátt í
starfi þeirra. S vo hel'ur komið í ljós við rannsóknir
að krakkar sem eru í íþróttastarfi á þessum aldri
skemmtilegt. í annan stað þá vegur þjálfurnar-
þátturinn meira máli en margan grunar. Líkam-
leg þjálfun hjálpar krökkunum heilmikið. Hún
styrkir þau og eflir sjálfið. Að auki hjálpar
reynslan af að taka þátt í ieik og keppni ein-
staklinginn og kennir þeim að takast á við verk-
efni og taka áskorun. Svo er það Ifka þetta
fyrirbæri sem erlendir fræðimenn kalla „Time
out“, þar sem einstaklingurinn getur skipt um
umhverfi þ.e.a.s. farið úr skólanum eða öðru
umhverfi þar sem pressan er oft mikil og skipt
yfir í annan heim og leikið sér þar sem leik-
gleðin fær notið sín.“
STARF UMFÍ HEFUR MIKLA ÞÝÐINGU GAGNVART
ÞJÓÐFÉLAGINU
Nú er UMFí fjölmenn og öflug hreyfing sem
stendur fyrir fjölda verkefna sem hafa mikið
forvarnagildi og má m.a. taka nokkur nýleg
dæmi eins og Unglingalandsmótið, Fíkn er
fjötur og Hættum að reykja. Hvaða þýðingu
hefur þetta framtak UMFÍ gagnvart þjóð-
félaginu? „Mjög mikla þýðingu. Við verðum
að gera okkur grein fyrir því að í dag eru stjórn-
málamenn og fræðimenn að átta sig á því að
þessi frjálsu félagasamtök eru mikilvæg ekki
bara fyrir uppeldisstarf og félagslegan þroska
heldur líka fyrir félagskerfið í lýðræðisþjóðf-
élögum. Ég vona að á næstu árum þá munu
menn í vaxandi mæli átti sig á mikilvægi þessa
grasrótastarfs frjálsu félagasamtakanna, samtaka
foreldra og frjálsra samtaka eins og UMFÍ. Ég
held að á næstu árum verði hlutur þessara félaga
meiri þegar úthlutað verður fjármagni til for-
vamarstarfs. Þegar við í Afengis og vímuvarnar-
ráði úthlutum UMFÍ og öðrum félagasamtökum
fjármagni þá erum við að fá heilan herskara af
góðu fólki í sjálfboðavinnu. Og með þessum
litlu peningum sem við erum að úthluta erum
við að virkja mjög stóran hóp. Ríkið í þessu
Hefur UMFÍ með Ungling-
Iandsmótinu því tekist að koma
af stað hátíð með allt öðrum
formerkjum en gengur og gerist
um verlsunarmannahelgar? „Já,
svo sannarlega, UMFÍ kom af stað
allt öðruvísi hátíð með allt öðrum
forsendum en gengur og gerist.
Og það sem meira var að UMFí
hélt þetta mót í Stykkishólmi með
glæsibrag þar sem ungir og aldnir
komu sainan og skemmtu sér kon-
unglega þrátt fyrir rigninguna. Þar
með var sýnt fram á að hægt sé
að skemmta sér vel án þess að allir
séu á hvolfi, sem er að sjálfsögðu
ákaflega mikilvægt.“
þ.e.a.s. 13-16 ára eru ólíklegri til að reykja,
drekka og neyta annarra vímuefna en þeir sem
ekki stunda íþróttir. Það blasir því við að við
eigum að efla þetta starf.“
Hvað er það innan íþróttafélaganna sem
veldur þessu - er það félagsskapurinn, meira
sjálfstraust? „Ég hef eytt miklum tíma í að
rannsaka þetta og reyna að átta ntig á þessu.
Vísbendingarnar sem við höfum eru nokkuð
sterkar. í fyrsta lagi erþað einfaldlega mikilvægt
að gefa krökkunum tækifæri til að koma saman
að leika sér gera eitthvað sem þeim finnst
Ég trúi því að á næstu árum muni
ráðamenn í vaxandi mæli átta sig
á mikilvægi grasrótastarfs frjálsu
félagasamtakanna, samtaka for
eldra og frjálsra samtaka eins og
UMFÍ. Ég vona að næstu árum
verði hlutur þessara félaga meiri.