Skinfaxi - 01.04.2003, Blaðsíða 34
ÍÞRÚTTAGREIIMAR Á 6. Ui\IGLII\IGALAI\IDSMÓTI UMFÍ
ÍSAFIRÐI 1.-3. ÁGÚST 2003
KNATTSPYRNA
Knattspyrnan verður spiluð á nýjum gervigrasvelli á Torfnesíþróttasvæðinu, einnig verður notast við aðalvöllinn sem er á sama
svæði. Keppt verður í 7-manna liðum eftir reglum KSÍ. Einstaklingar sem skrá sig í knattspyrnuna lenda í safnliðum með
einstaklingum frá öllu landinu, þeim liðum verður úthlutað liðstjóra sem stjórnar liðinu. Keppt verður í knattspyrnu frá kl. 12:00
á föstudeginum og frá kl. 08:00 á laugar- og sunnudegi og fram til kl. 17:00. Keppt verður í 5, 4, 3 og 2.fl. karla og kvenna.
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
Á ísafirði verður gerð aðstaða af fullkomnustu gerð (tartan-efni) fyrir þær greinar sem keppt er í. Stökk, hopp og kastsvæði
ásamt fjórum 120 m hlaupabrautum verður lagt á íþróttasvæðið á Torfnesi. Keppt verður í 60 og 100 m hlaupi, langstökki,
hástökki, kúluvarpi og spjótkasti. Þar sem ekki er hlaupahringur kringum völlinn þá munum við keppa í víðavangshlaupi sem
verður um 1 .OOOrn fyrir yngri og 2.000 m fyrir eldri. Boðhlaup verða einnig en óhefðbundin, þannig að hlaupið verður á nýstárlegan
hátt! Spennandi! Keppni í frjálsum íþróttum verður frá kl. 12:00 á föstudeginum og frá kl. 08:00 á laugar- og sunnudegi
og lýkur kl. 17:00 alla dagana. Keppt verður í öllum aldursflokkum frá 11-18 ára karla og kvenna.
KÖRFUKNATTLEIKUR
Körfuknattleikskeppnin fer fram í íþróttahúsinu á Torfnesi á tveimur völlum. Keppt verður eftir reglum KKÍ og hefst
keppni kl. 12:00 á föstudeginum og kl. 08:00 á laugar- og sunnudeginum til kl. 17:00 alla dagana. Keppt verður í aldurflokkunum
11-12,13-14,15-16 og 17-18 ára.
HANDKNATTLEIKUR
Ekki hefur verið keppt í handknattleik áður á unglingalandsmótinu. Þannig að við höfum ákveðið að prufukeyra einn flokk og varð
5. flokkur fyrir valinu. Aldurhópurinn er því 12-13 ára karla og kvennaflokkar. Keppt verður eftir reglum HSÍ og áætlað er að spila
utanhúss á tartansvæðinu sem verið er að byggja. Þetta er beint framan við stúkuna þannig að mikil stemmning verður örugglega
í kringum handknattleikinn. Tímasetning er óákveðin en verður sett inn á heimasíðu mótsins www.ulm.is þegar það verður Ijóst.
SUND
Sundkeppnin fer fram í sundlaug bæjarins sem staðsett er inn í miðbæ ísafjarðar u.þ.b. 700 m frá Torfnesi. Sundlaugin
er 16 1/3 m löng og mörg góð afrek hafa verið unnin þar. Keppni byrjar kl. 08:00 á laugar- og sunnudeginum og lýkur kl. 17:00
báða dagana. Keppt verður í 50 m og 100 m skrið- og bringusundi, 200 m fjórsundi og 4x50 m skriðsundi. Keppt verður í öllum
aldurhópum 11-18 ára karla og kvenna.
SKÁK
Keppni í skák verður í Stjórnsýsluhúsinu á ísafirði sem er í miðbæ ísafjarðar u.þ.b. 750 m frá keppnissvæðinu. Keppt verður í
opnum flokki en verðlaun verða veitt þremur bestu í aldurflokkunum 11-12, 13-14, 15-16 og 17-18 ára karla og kvenna ásamt
sigurvegaranum í opna flokknum. Keppni í skák hefst kl. 10:00 á laugardeginum og verður klárað sama dag. Einnig mun Jóhann
Hjartarson tefla fjöltefli við þátttakendur á sunnudeginum kl.13:00.
GLÍMA
Glímukeppnin er fastur liður eins og lög gera ráð fyrir. Keppnin verður úti á grasvellinum Torfnesi og hefst kl. 15:00 á föstudeginum
og hefst aftur kl.10:00 á laugardeginum og klárað sama dag. Keppt verður í aldursflokkunum 11-12,13-14,15-16 og 17-18 ára
karla og kvenna.
GOLF
Golf verður fyrsta keppnisgreinin sem keppt verður í, en kl. 09:00 á föstudeginum verður farið af stað og spilað til kl.
17:00. Á laugardeginum byrjar keppni kl. 08:00 og verður klárað sama dag. Keppt er samkvæmt móta- og keppnisreglum GSÍ um
opin mót. Keppnisflokkar eru 11 -12, 13-15 og 16-18 ára karla og kvenna. Leiknar verða 36 holur með og án forgjafar, 18 holur
hvorn dag. Golfvöllurinn er í Tungudal u.þ.b. 3 km frá Torfnesíþróttasvæðinu.
UNGLINGA
LANDSMÓT