Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.04.2003, Blaðsíða 62

Skinfaxi - 01.04.2003, Blaðsíða 62
Ungiingalandsmót UMFÍ 2003 á ísafirði Hin vinsæla gleðisveit, , verður aðalhljómsveit Ungl ingalandsmóts UMFÍ 2003 sem haldið verður á Isafírði í sumar. Drengirnir í hafa getið sér gott orð fyrir að æra lýðinn með rokki sínu enda láta vinsældinar ekki á sér standa, nóg er að gera í spilamennskunni og aðdáend- ur bíða spenntir eftir næstu plötu. Við tökum Magna söngv ara í stutta yfirheyrslu um hvers sé að vænta af sveitinni í sumar. jj £ rj IUJ UjVJ J\LL\n tíiAJVJilJj UJifiJ'JlSJ'JJ\lfi MAtíiAJ jjj JJ Það er ný plata á leiðinni, ekki satt? „Jú, hún ætti að verða að tilbúin í lok júní. Núna er verið að hljóðblanda hana en það tefst alltaf eitthvað eins og gengur - en hún á að vera komin þá.“ Mega aðdáendur ykkar eiga von á miklum breytingum á næstu plötu? Eru ný stílbrögð eða nýjar hugmyndir í gangi? „í megindráttum er þetta býsna svipuð tónlist og við höfum verið að fást við. Auðvitað er þetta alltaf aðeins öðruvísi í hvert skipti. Við bötnum með hverri plötu eða það finnst mér a.m.k. Við erum alltaf að spila okkur betur saman.“ Verður stíft úthald á ykkur í spila- mennskunni í sumar? „Já, ég held að óhætt sé að segja það. Við erum bókaðir hverja einustu helgi fram yfir verslunar- mannahelgi. Þannig verður nóg að gera.“ Hvar verðið þið að spila? Er kannski allt landið undir í sumar? „Já það má segja það, við förum hringinn nokkrum sinnum. En við erum orðnir býsna vanir þessu út- haldi og það leggst bara vel í okkur, enda þýðir ekkert að leggjast í leti. Við ættum því að vera orðnir býsna vel æfðir þegar við komum vestur á verslunarmannahelginni - ekki það að okkur skorti æfingu. Við eru búnir að spila eins og hundar í þrjú ár.“ Þið kannski kunnið best við ykkur í vinn- unni, á sveitaballarúntinum? „Já eigin- lega, við vorum í smá fríi erlendis í síðasta mánuði og vorum ekki allir í sama útland- inu. Þannig fengum við smá frí hvor frá öðrum sem var mjög gott. Ég fór t.d. til Noregs og slappaði af. Svo byrjuðum við að spila saman aftur núna í byrjun sumars og ég held að það hafi bara verið skemmtilegast ball sem ég hef spilað á lengi. Þetta var svaka erfitt og við spiluðum eins Og brjálæðingar langt fram eftir nóttu, „þegar ég kem heim í Búðardal" og allt saman - en það var svaka stuð. Ég held að þetta verði alltaf skemmtilegra eftir því sem við verðum betri hópur.“ En hvaða væntingar eru þið með til nýju plötunnar? Verður hún „hittari“? „Tsja, við vorum að hlusta á hana í gær, í rútunni. Eigum bara eftir að laga hana aðeins en erum bara ansi inontnir. Það voru yfirlýsingar í gangi. Hún verður betri en sú síðasta sem var nokkuð öflug. Þetta er kannski klisja en eiginlega eru plötumar og lögin á þeim eins og börnin manns. Það er ekkert hægt að útskýra þetta fyrir öðrum. Ég fann þetta ekki fyrr en ég byrjaði sjálfur að semja. Maður semur eitthvað og gerir það sjálfur og þannig verður manni ansi annt um sköpunarverkin. Áttu einhvern uppáhalds stað til að spila á? „Það er rosalega erfitt að svara þessari spurn- ingu, maður er svo hræddur við að móðga einhvern. Þjóðhátíð í Eyjum er náttúrlega rosa- lega sérstök, það er erfitt að útskýra það en þetta er eini staðurinn á landinu sem maður finnur þessa sérstöku stemmningu. Enda byggir Þjóð- hátíð á áratuga hefð, þar hafa margar kynslóðir skemmt sér í gegnum tíðina og umhverfið á sér engan líka. Allir gestirnir eru t.d. samankomnir úti á eyju. Ég held reyndar að unglingalands- mótið verði eitt það skemmtilegasta sem við höfum gert. Mér finnst líka alltaf gaman að spila á Egilsstöðum af því að ég er að austan en annars er hver staður og hver stund sér á parti. Stundum kemur það fyrir að allt gengur upp og þá verður virkilega skemmtilegt. Það getur þess vegna gerst á Gauki á stöng eða einhvers staðar úti á túni en þá liggur einhver sérstök stemmning í loftinu." Hafið þið spilað áður á unglingalandsmóti? „Nei þetta verður í fyrsta sinn. Ég held að við höfum spilað á öllu nema unglingalandsmóti. Ég meina, hver hefur spilað á Kvennahlaupi? En það var líka frábært, þar voru sainan komnar sex þúsund konur og svo við. Þetta verður geysi skemmtileg helgi og ég hlakka mikið til að koma vestur." Munið þið mæta með ungmennafélags- andann í farteskinu þegar þið komið til ísa- Ijarðar?„Já að sjálfsögðu, við erum allir gamlir ungmennafélagsnaglar. Ég er félagi í Ung- mennafélagi Borgfirðinga á Borgarfirði Eystra. Það er nú svosem ekki stórt samband en ég er stoltur af að lilheyra því. Ætli maður verði ekki í treyjunni sinni. Ég á gamla UMFB treyju sem stendur á Magni.“ UNGLINGA LANDSMOT UMFÍ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.