Skinfaxi - 01.04.2003, Blaðsíða 42
Sumarið 2003 verður, líkt og
síðastliðin þrjú sumur, rekin
ferðaþjónusta í félagsheimil-
inu Dalbæ á Snæfjallaströnd.
Boðið er upp á svefnpokagist-
ingu, gistingu í uppbúnu, tjald-
stæði og almenna veitinga-
sölu. Mikil aukning hefur
verið í komu ferðafólks í Dal-
bæ frá því að reksturinn hófst
sumarið 2000. Eins hefur
verið stöðug aukning í þróun
afþreyingar fyrir ferðafólk á
Ströndinni. Eins og áður er það
fyrst og fremst þjónusta við
göngufólk og fólk sem leggur
leið sína út ströndina, en segja
má að ekki sé unnt að aka öllu
lengra en í Dalbæ. Vegurinn
endar tæpum tveimur kíló-
metrum utar, við Tyrðilmýri.
Síðastliðið sumar var opnuð í Dalbæ, á mikilli
rfmnahátíð, byggðasögusýningin „Horfin býli
og huldar vættir í Snæfjalla- og Grunnavíkur-
hreppum hinum fornu“. Um er að ræða yfirlits-
sýningu yfir þá staði sem maðurinn í gegnum
aldirnar hefur reist sér bústað og voru í byggð
um og uppúr aldamótunum 1900. Mikið mynd-
efni og fróðleikur um sögu byggðarinnar er á
sýningunni. Nú er lokið við að þýða sýningar-
skrána á ensku auk þess sem sett verða upp skilti
með upplýsingum um sýninguna á Ströndinni.
Stofnað hefur verið svonefnt „Snjáf]allasetur“,
en tilgangur þess er að safna saman á einum
stað sem mestum fróðleik um Snæfjallströnd
og gera hann aðgengilegan á sem fjölbreyttastan
hátt. Svo sem á sýningunni í Dalbæ, í bókum og
á vefsíðu. Fengist hefur framlag af fjárlögum til
að koma setrinu á laggimar. I tengslum við form-
lega stofnun Snjáfjallseturs verður haldin hátíð í
Dalbæ laugardaginn 12. júlí þar sem gestum
verður boðið upp á ýmsan fróðleik og skemmtan.
Hvað varðar afþreyingu fyrir ferðamanninn
verður líkt og áður unnt að ganga um Ströndina
sér lil heilsubótar og skemmtunar. Eins til
fjögurra daga gönguferðir um Snæfjallaströnd,
Kaldalón í Grunnavík og á Höfðaströnd í Jökul-
fjörðum verða sífellt vinsælli. Dagsferð í Æðey
hefur einnig notið vinsælda, en þá er siglt í Æðey
Svæðið á austanverðum Vestfjörðum,
frá Hrútafirði og alla leið norður á
Hornstrandir, nefna heimamenn
Strandir og sjálfa kalla þeir sig
Strandamenn. Á svæðinu búa tæp-
lega 900 manns, þar af um 400 í þorp-
inu Hólmavík og um 100 á Drangs-
nesi. Bæði þorpin er skemmtilegt að
heimsækja. Margvíslegferðaþjónusta
er á Hólmavík, t.d. veitingastaðurinn
Café Riis sem er í elsta húsi þorpsins,
og á hverju ári halda Drangsnes-
ingar veglega Bryggjuhátíð sem er
skemmtun fyrir alla fjölskylduna.
Þetta árið er Bryggjuhátíðin 19. júlí.
Víða á Ströndum liggur rekaviður í hrúgum í
fjörunni, en hann berst með hafstraumum frá
ströndum Síberíu. Rekadrumbarnir hafa ávallt
verið ein helstu hlunnindi Strandamanna og
hann ásamt mörgum öðrum undrum fjörunnar
getur gert fjöruferð á Ströndum að ógleyman-
legu ævintýri. Strandir eru mikið heimsóttar af
göngu- og útivistarfólki enda eru þar óteljandi
fallegar gönguleiðir við allra hæfi. Gönguleiða-
kort er hægt að nálgast á helstu viðkomustöðum
ferðamanna.
í hugum fólks hafa Strandir gjarnan á sér dul-
úðugan blæ. Strandamenn voru taldir að búa
yfir kunnáttu til að beisla náttúruöflin sér til hags-
bóta og landslagið allt gerir ferðamönnum auð-
veldara að setja sig inn í heim þjóðsagna og
trúa sem aldrei fyrr á til vist drauga, álfa og trölla.
Á Ströndum hefur verið settur upp fyrsti áfangi
Galdrasýningar sem er staðsettur á Hólmavík.
Margir af gestum Strandamanna heimsækja
Ámeshreppinn reglulega, enda er hann sann-
kölluð perla Strandasýslu. í Tékyllisvík kíkja
menn við í handverkshúsinu Kört og heimsækja
kirkjumar í Ámesi. Þaðan er stutt í sund í Kross-
neslaug sem er sérstök upplifun og gönguferð
á Reykaneshyrnu svíkur engan.
Þeir sem bregða sér í Árneshrepp í sumar ættu
að gefa sér góðan tíma til að stoppa og skoða
sig unt í Djúpavík, þar sem risavaxin aflögð
og gengið um eyna undir leiðsögn eyjarskeggja.
í sumar verður í fyrsta sinn boðið upp á siglingu
frá fsafirði að Bæjum á Snæfjallaströnd, sem er
steinsnar frá Dalbæ. Þaðan verður ekið inn Kalda-
lón og gengið fram að Drangajökli með stað-
kunnugum aðila. Eftir gönguferð verður ekið í
Dalbæ þar sem til reiðu verður súpa og brauð og
að lokum siglt aftur til ísafjarðar. Lagt er af stað
frá ísafirði klukkan 17:00 alla fimmtudaga frá
og með 26. júní. SjóferðirHafsteins og Kiddýar
sjá um bátsferðina og unnt er að afla sér nánari
upplýsinga og panta hjá Vesturferðum á ísafirði.
Síminn í Dalbæ er 455 2660 en einnig 897 6872
eða 697 7818. Netfangið er dalbaer@eldhom.is
eða inkjar@eldhorn.is.
Veffangið er www.eldhom.is/dalbaer.
síldarverksmiðja í ægifögru umhverfi hefur
heillað margan manninn í gegnum tíðina. Saga
Djúpavíkur við Reykjarfjörð á Ströndum er
ævintýraleg í meira lagi og í sumar gefst gestum
færi á að kynnast henni töluvert nánar en verið
hefur. Þann 7. júlí, þegar nákvæmlega 68 ár eru
liðin frá því að síldarverksmiðjan var fyrst gang-
sett, verður opnuð sögusýning í einum sal
verksmiðjunnar.
Önnur sýning sem nýlega var opnuð á Ströndum
og nýtur mikilla vinsælda er Sauðfjársetrið í
félagsheimilinu Sævangi við sunnanverðan
Steingrímsfjörð. Þar er fjallað á skemmtilegan
og lifandi hátt um sauðfjárbúskap fyrr og nú,
með sérstakri áherslu á hlut Strandamanna.
Mikil áhersla er lögð á að allir aldurshópar finni
eitthvað við sitt hæfi. Heimalningar sem eru í
fóstri á setrinu eru líka eitt aðalaðdráttarafl
sýningarinnar. Handverks- og minjagripasala
er einnig í Sævangi og síðast en ekki síst skal
nefna kaffistofuna sem þar er starfrækt og er
opin á sama tíma og sýningin, frá 10-18 alla
daga. Þar geta menn gætt sér á kaffi, heitu
súkkulaði og heimilislegu meðlæti, óháð því
hvort þeir skoða sýninguna eða ekki.
Nánari upplýsingar um Strandir má finna á
vefnum www.strandir.is og tengdum vefum.
Upplýsingamiðstöð ferðamála á Hólmavík sem
er staðsett í félagsheimilinu við tjaldsvæðið
svarar einnig öllum fyrirspurnum greiðlega -
jafnt á staðnum, í síina 451 3111 og í töl vupósti
info@holmavik.is.