Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.04.2003, Qupperneq 34

Skinfaxi - 01.04.2003, Qupperneq 34
 ÍÞRÚTTAGREIIMAR Á 6. Ui\IGLII\IGALAI\IDSMÓTI UMFÍ ÍSAFIRÐI 1.-3. ÁGÚST 2003 KNATTSPYRNA Knattspyrnan verður spiluð á nýjum gervigrasvelli á Torfnesíþróttasvæðinu, einnig verður notast við aðalvöllinn sem er á sama svæði. Keppt verður í 7-manna liðum eftir reglum KSÍ. Einstaklingar sem skrá sig í knattspyrnuna lenda í safnliðum með einstaklingum frá öllu landinu, þeim liðum verður úthlutað liðstjóra sem stjórnar liðinu. Keppt verður í knattspyrnu frá kl. 12:00 á föstudeginum og frá kl. 08:00 á laugar- og sunnudegi og fram til kl. 17:00. Keppt verður í 5, 4, 3 og 2.fl. karla og kvenna. FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR Á ísafirði verður gerð aðstaða af fullkomnustu gerð (tartan-efni) fyrir þær greinar sem keppt er í. Stökk, hopp og kastsvæði ásamt fjórum 120 m hlaupabrautum verður lagt á íþróttasvæðið á Torfnesi. Keppt verður í 60 og 100 m hlaupi, langstökki, hástökki, kúluvarpi og spjótkasti. Þar sem ekki er hlaupahringur kringum völlinn þá munum við keppa í víðavangshlaupi sem verður um 1 .OOOrn fyrir yngri og 2.000 m fyrir eldri. Boðhlaup verða einnig en óhefðbundin, þannig að hlaupið verður á nýstárlegan hátt! Spennandi! Keppni í frjálsum íþróttum verður frá kl. 12:00 á föstudeginum og frá kl. 08:00 á laugar- og sunnudegi og lýkur kl. 17:00 alla dagana. Keppt verður í öllum aldursflokkum frá 11-18 ára karla og kvenna. KÖRFUKNATTLEIKUR Körfuknattleikskeppnin fer fram í íþróttahúsinu á Torfnesi á tveimur völlum. Keppt verður eftir reglum KKÍ og hefst keppni kl. 12:00 á föstudeginum og kl. 08:00 á laugar- og sunnudeginum til kl. 17:00 alla dagana. Keppt verður í aldurflokkunum 11-12,13-14,15-16 og 17-18 ára. HANDKNATTLEIKUR Ekki hefur verið keppt í handknattleik áður á unglingalandsmótinu. Þannig að við höfum ákveðið að prufukeyra einn flokk og varð 5. flokkur fyrir valinu. Aldurhópurinn er því 12-13 ára karla og kvennaflokkar. Keppt verður eftir reglum HSÍ og áætlað er að spila utanhúss á tartansvæðinu sem verið er að byggja. Þetta er beint framan við stúkuna þannig að mikil stemmning verður örugglega í kringum handknattleikinn. Tímasetning er óákveðin en verður sett inn á heimasíðu mótsins www.ulm.is þegar það verður Ijóst. SUND Sundkeppnin fer fram í sundlaug bæjarins sem staðsett er inn í miðbæ ísafjarðar u.þ.b. 700 m frá Torfnesi. Sundlaugin er 16 1/3 m löng og mörg góð afrek hafa verið unnin þar. Keppni byrjar kl. 08:00 á laugar- og sunnudeginum og lýkur kl. 17:00 báða dagana. Keppt verður í 50 m og 100 m skrið- og bringusundi, 200 m fjórsundi og 4x50 m skriðsundi. Keppt verður í öllum aldurhópum 11-18 ára karla og kvenna. SKÁK Keppni í skák verður í Stjórnsýsluhúsinu á ísafirði sem er í miðbæ ísafjarðar u.þ.b. 750 m frá keppnissvæðinu. Keppt verður í opnum flokki en verðlaun verða veitt þremur bestu í aldurflokkunum 11-12, 13-14, 15-16 og 17-18 ára karla og kvenna ásamt sigurvegaranum í opna flokknum. Keppni í skák hefst kl. 10:00 á laugardeginum og verður klárað sama dag. Einnig mun Jóhann Hjartarson tefla fjöltefli við þátttakendur á sunnudeginum kl.13:00. GLÍMA Glímukeppnin er fastur liður eins og lög gera ráð fyrir. Keppnin verður úti á grasvellinum Torfnesi og hefst kl. 15:00 á föstudeginum og hefst aftur kl.10:00 á laugardeginum og klárað sama dag. Keppt verður í aldursflokkunum 11-12,13-14,15-16 og 17-18 ára karla og kvenna. GOLF Golf verður fyrsta keppnisgreinin sem keppt verður í, en kl. 09:00 á föstudeginum verður farið af stað og spilað til kl. 17:00. Á laugardeginum byrjar keppni kl. 08:00 og verður klárað sama dag. Keppt er samkvæmt móta- og keppnisreglum GSÍ um opin mót. Keppnisflokkar eru 11 -12, 13-15 og 16-18 ára karla og kvenna. Leiknar verða 36 holur með og án forgjafar, 18 holur hvorn dag. Golfvöllurinn er í Tungudal u.þ.b. 3 km frá Torfnesíþróttasvæðinu. UNGLINGA LANDSMÓT
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.