Skinfaxi - 01.04.2003, Side 10
Sumarið 2002 fór Ungmennafélag
Islands af stað með verkefnið Fjöl-
skyldan og fjallið. Hugmyndin á
bak við verkefnið er að fá fjöl-
skyldur í fjallgöngur. Verkefnið
tókst með eindæmum vel og verð-
ur framhald á í sumar.
er formaður um-
hverfísnefndar UMFÍ sem heldur
utan um verkefnið auk þess sem
hún er í stjórn og fræðslunefnd
UMFÍ. Valdimar Kristófersson
náði tali af henni og spurði hana
m.a. nánar um verkefnið Fjöl-
skyldan ogfjallið.
Asdís Helga Bjarnadóttir.
Þið hafið ákveðið að hafa framhald á verk-
efninu Fjölskyldan og fjallið. Gekk verkefnið
vel síðasta sumar?„Verkefnið gekk mjög vel.
A fimmta þúsund manns skrifuðu sig í gesta-
bækurnar sem við fórum með upp á 21 fjall á
landinu, en alls tilnefndu 18 aðildafélög UMFÍ
fjöll í verkefnið. Verkefnið var síðan rætt á Sam-
bandsráðsfundi síðastliðið haust og samþykktu
þá öll aðildafélögin að halda þessu verkefni áfram
með svipuðu sniði og verið hafði.“
Hver er hugsunin á bak við þetta verkefni og
af hverju urðu fjallgöngur fyrir valinu? „Árið
2002 var tileinkað fjöllum af Sameinuðu þjóð-
unum, og vildum við því vekja athygli á þeim
með því að hvetjafólk til fjallgöngu. Við gerðurn
þó þá kröfu að öll væru fjöllin frekar fjölskyldu-
væn og létt til göngu. Hugsunin var sú að breyta
síðan um áherslur en þar sem þetta fékk svo góðar
undirtektir var ákveðið að halda þessu áfram með
sama sniði. Enda fréttum við líka af fólki sem
komst bara upp á eitt eða tvö fjöll í sumar og því
nokkur eftir til að taka alla toppana. Af einni
fréttum við sem hafði farið upp á um sjö fjöll -
geri aðrir betur í sumar! Nú í lok júní mun koma
út svokölluð Leiðabók - Göngttm um Island og
þar verða tilgreindar styttri gönguleiðir um allt
land sem og upplýsingar um þau fjöll sem eru til-
nefnd í ár, en nokkuð er um það að aðildafélögin
hafi flutt til gestabækumar og komið fyrir á öðmm
fjöllum en í fyrra. Leiðabækurnar munu liggja
frammi á Esso bensínstöðvum, hjá ferðaþjón-
ustumiðstöðvum og hjá aðildafélögum UMFÍ.“
ÍJ0L3KYLUM ÐöUMLJí)
í fyrra voru þið með ákveðna gulrót fyrir þá
sem skráðu sig og tóku þátt. Verður því
framhaldið í sumar? „Já, við munum endur-
heimta upplýsingar úr gestabókunum í lok
september og draga út tíu heppna vinningshafa.
Þeir rnunu hljóta útivistartengda vinninga eins
og í fyrrahaust. Það þarf þó að leggja ríka áherslu
á það að fólk skrifí nafn, heimilisfang og síma-
númer í bækurnar því annars getum við ekki haft
upp á vinningshöfunum!"
Ottuðust þið það ekkert í fyrra að erfitt mundi
reynast að fá fjölskyldur til að ganga á fjöll?
„Nei, alls ekki. Það vom margir sem tóku þátt í
verkefninu og ég hef trú á því að fjölskyldur rnuni
halda uppteknum hætti í sumar. I mínum huga
er það engin spurning að fólk er farið að sækja
miklu meira út í náttúruna en verið hefur. Það er
auðvitað góð heilsubót í því að fara út að ganga
og getur verið fræðandi fyrir börnin ef foreldr-
arnir eru vel að sér í plöntu- og fuglaheitum eða
þá staðháttum og örnefnum í náttúrunni. Þar sem
núna er til hefti með merktum gönguleiðum um
land allt ætti fólki ekkert vera að vanbúnaði að
skella sér í smá göngutúr,” sagði Ásdís Helga og
vonaðist til þess að fjölskyldan tæki vel í verkefnið
Fjölskyldan og jjaUið í sumar.
Nú er verkefnið að fara af stað um þessar
mundir. Hvað verður hægt að ganga á mörg
fjöll og hvaða fjöll eru það sem þið mælið með?
„í sumar verður komið fyrir gestabókum í
tengslum við þetta verkefni á 22 fjöllum en þau
eru tilnefnd af 20 aðildafélögum UMFÍ. Við
mælum að sjálfsögðu með öllum þeim fjöllum
sem tilnefnd eru, en þau eru eftirfarandi: Reykja-
borg nálægt Mosfellsbæ (UMSK), Hestfjall í
Andakíl (UMSB), Eldborg í Kolbeinsstaðahrepp
(HSH), Kollar við botn Hvammsfjarðar (HSH),
Lómafell (HHF), Ekkjuskarð inn af Bolungarvík
(HSB), Mýrafell í Dýrafirði og Miðfell á Selja-
landsdal (HSV), Kálfanesborgir við Hólmavík
(HSS), Þrælsfell við Hvammstanga (USVH),
Mælifellshnjúkur (UMSS), Staðarhnjúkur við
Möðruvelli (UMSE), Þingmannavegur yfir
Vaðlaheiði (UFA), Nykurtjörn í Geitafellshnjúki
(HSÞ), Eyjan í Ásbyrgi (UNÞ), Goðatindur við
Oddsskarð (UÍA), Ketillaugarfjall (USÚ),
Hjörleifshöfði (USVS), Ingólfsfjall í Árnessýslu
og Þríhyrningur í Rangárvallarsýslu. (HSK),
Eldfell (UMFÓ) og Þorbjöm (UMFG).“
Hvernig geta fjölskyldur tekið þátt í þessu
verkefni? „Það er nú lítið mál. Best er að byrja
á því að renna inn á næstu Esso bensínstöð eða
miðstöð ferðamála og næla sér í eintak af Leiða-
bókin - Göngum um Island (kemur í lok júní).
Þar er að finna upplýsingar urn fjöllin og í mörg-
um tilfellum er greint frá því hvaðan best sé að
hefja gönguna. Svo er bara að fara í þægilega
skó, góðan fatnað og taka með nesti, - mæli með
íslensku vatni, heitu kakói og samlokum með osti
og fersku íslensku grænmeti. Léttan bakpoka
með nestinu er því æskilegt að hafa og ekki er
verra að hafa með sér landakort af viðkontandi
svæði!"
En er Ásdís sjálf dugleg að ganga um ísland og
gekk hún á flest fjöllin sem voru tilgreind í fyrra?
„Því miður verð ég að svara þessu neitandi, ég
fór á eitt fjall sem var tilnefnt - ætlaði á tvö önnur
en missteig mig svo illa að ég treysti mér ekki til
þess. Þau bíða mín í sumar. Eg hef annars verið
dugleg að mæta í kvöldgöngur á vegum Ung-
mennasambands Borgarfjarðar. Nú annað hvert
fimmludagskvöld á að ganga með helstu ám
héraðsins og fræðast í leiðinni um vatnalífið og
nýtingu ferskvatnsins. Þar ætla ég helst ekki að
láta mig vanta. Ég hef líka sett mér það markmið
að ganga að minnsta kosti sex styttri gönguleiðir
úr Leiðabókinni sem og á sex lilnefnd fjöll. Ég
vona að fleiri setji sér slík markmið í sumar!“
Eins og áður kom fram er Ásdís formaður
umhverfisnefndar UMFÍ. En hvert er hlut-
verk nefndarinnar? „Hlutverk nefndarinnar er
að móta áherslur og verkefni er tengjast umhverf-
ismálum. Áður fyrr vomm við með mörg hreins-
unarverkefni en sem betur fer er fólk farið að
ganga betur um náttúru fslands þannig að nú
höfum við einbeitt okkur að því að vekja áhuga
fólks á umhverfinu, m.a. með göngu- og fjalla-
ferðum. Nú í sumar raunum við einnig hefja
verkefni sem nefnist Spor ungmennafélaga. Það
gengur út á það að skrá menninganninjar er tengj-
ast starfi ungmennafélaganna í gegnum tíðina.
Þar er af mörgu að taka því víða hafa ungmenna-
félagar markað spor í samfélaginu, m.a. stíflað
skurði og útbúið sundaðstöðu, byggt upp félags-
heimili, skóla og söfn, útbúið frjálsíþróttaað-
stöðu, útihátíðasvæði, skógarlundi, grætt upp
land og margt fleira. Starfsmaður þessa verkefnis
verður Jón M. ívarsson góðkunnur glímukappi