Skinfaxi - 01.04.2003, Blaðsíða 13
A toppnum, Hvitserk ber viö sjomr göngumanns
í ár, ekki síður en í fyrra, og erum við mjög
ánægðir með viðtökurnar. Við sendum bréf til
fjölda ferðaþjónustuaðila, til upplýsingamið-
stöðva um allt land og til allra þjónustumið-
stöðva UMFI sem svo áframsendu það til allra
héraðssambanda og félaga. Því næst ók ég
hringinn og reyndi að hafa tal af sem flestum
sem eru að halda úti þessum gönguleiðum svo
og þeim sem sýndu verkefninu áhuga,“ sagði
Helgi og bætti því við að leiðabókinni verði
dreift um allt land ásamt því að veggspjöldum
verðurkomið upp. „Einnig verður verkefnið vel
auglýst á heimasíðunni okkar sem og í blöðum
og útvarpi," sagði Helgi. Þeir sem hafa áhuga á
að fá nánari upplýsingar um verkefnið er bent á
vefslóðina www.ganga.is.
ÓDÝRASTA OG BESTA LÍKAMSRÆKTIM SEM TIL ER
„Ég hvet fólk til þess að reima á sig skóna og
taka þátt í verkefninu með því að ganga ein-
hverjar af þeim fjölmörgu leiðum sem eru í
verkefninu. Sá útbúnaður sem dugir til að ganga
þessar leiðir kostar ekki mikið. Það er ekki
nauðsynlegt að eiga fullkominn göngubúnað en
kannski verður þátttaka í þessu verkefni til þess
að fólk tekur þátt í lengri göngu sem þá krefst
kannski betri búnaðar. Það ættu flestir að geta
fundið leiðir við sitt hæft í bókinni og rétt er að
benda á að sumar af þessum leiðum eru greið-
færar fyrir hjólastóla, m.a. malbikaður stígur frá
Þjónustumiðstöðinni í Skaftafelli upp að
Skaftafellsjökli.“
Gönguleiðimar í verkefninu eru allar örugg-
ar og margt markvert að skoða á leiðunum.
„Allar þær leiðir sem við bjóðum upp á eru
öruggar og vel merktar. Upplýsingar eru við
hverja leið og eins er hægt að fá göngukort af
mörgum þeirra. Þá eru margar tengdar þekktum
stöðum og ýmsan fróðleik er þannig hægt að fá
í smá göngutúr. Allar leiðirnar er hægt að fara
án leiðsögumanns," sagði Helgi sem sagði
verkefnið fyrst og fremst vera hugsað yfir
sumartímann en þó væri hægt að ganga margar
leiðanna yftr vetrartímann en þá kannski ekki
hægt að treysta á stikur eða skýra stíga.“
SJÁUM MUN Á FERRÐAMANNASTREYMI
Helgi er bjartsýnn á árangur verkefnisins og að
það takist að fá fleira fólk til að ganga. „Verk-
efnið fékk mjög góðar viðtökur og það var
reglulega gaman að fara um og safna saman
nýjum leiðum í bókina því flestir könnuðust við
verkefnið frá því í fyrra og höfðu trú á því. Það
segir okkur að UMFI er á réttri braut með þetta
verkefni því það er í fullu gildi ennþá sem sagt
var fyrir löngu: „Heilbrigð sál í hraustum
líkama“. Þetta á við enn og þeir sem ganga sér
til heilsubótar eru svo sannarlega í þessum
flokki."
Hvenær fer svo verkefnið fornilega af stað í
sumar? „Nákvæm dagsetning er ekki komin
en það verður seinni hluta júnímánaðar. Við
eigum eftir að hnýta örfáa hnúta en við reynum
að láta vel í okkur heyra þegar að því kemur,“
sagði Helgi sem á varla eftir að fara úr göngu-
skónurn í sumar.
En eru gönguleiðirnar miðaðar við sveitirnar
eða eru einhverjar gönguleiðir í bókinni sem
eru á höfuðborgasvæðinu? „Það eru nokkuð
margar leiðir á höfuðborgarsvæðinu, bæði í
Reykjavík og í nágrannasveitafélögunum. Eins
eru margar leiðir sem tengjast þéttbýli víðsvegar
um land, bæði innanbæjar og eins leiðir sem
byrja t.d. á tjaldstæðum bæjanna. Flestar leið-
imar eru þó „úti í sveit“ og þær liggja þá gjaman
að einhverjum markverðum stöðum svo sem
fossum, giljum, hólum, útsýnisstöðum, sögu-
stöðum eða öðru sem áhugavert er að kynnast.
Við viljum líka gjaman með þessu verkefni að
fólk nái að kynnast betur landinu okkar því víða
leynast náttúruperlur sem okkur sést yfir ef við
emm á hraðferð í bílnum.“
HLUTI AF STÆRRA VERKEFNI
Göngum um ísland er í raun hluti af stærra
verkefni, ekki satt? „Jú, Ungmennafélag
fslands hefur til fjölda ára verið nteð Göngudag
fjölskyldunnar einu sinni á ári. Fjölskyldan á
fjallið er verkefni sem Umhverftsnefnd UMFÍ
hóf í fyrra og hún fékk pláss í bókinni hjá okkur
þá og verður áfram með í ár. Þar tilnefna flest
héraðssamböndin áhugavert fjall á sínu svæði
til að ganga á. A döfinni er að
hvetja grunnskóla í landinu til að
fá börn til að hreyfa sig meira og
hugmyndin er að auka fræðslu
unt útiveru og göngu meira hjá
félaginu og svo munum við reyna
að bæta inn fróðleik um göngu á
heimasíðuna www.ganga.is,"
sagði Helgi. „Það er líka ánægju-
legt að Ferðamálaráð hefur haftð
skráningu á öllum þekktum
gönguleiðum í landinu og verður
gott samstarf milli þessa verk-
efnis og þeirra vinnu. Þeir skrá
því allar gönguleiðir yftr 2ja tíma
langar. Er ætlunin að þær leiðir
komi inn á www.ganga.is og
verði þannig aðgengilegar fyrir
alla. Þetta er mikið verk sem
vonandi verður komið vel á veg
fyrir næsta sumar.”