Skinfaxi - 01.04.2003, Blaðsíða 21
Unglingalandsmót UMFÍ 2003 á ísafirði
og hversu vel hefur tekist til. VáVest hefur mælt
stöðu mála varðandi vímuefnaneyslu og fleiri
þætti á undanfömum ámm og staðfesta þær mæl-
ingar að verulegur árangur hefur náðst. Það er
ánægjulegt en á um leið að vera okkur öllum
áminning um það er ekki staða sem er komin lil
að vera nema við séum meðvituð um að vera
sífellt á verði í forvömum. VáVest er í samstarfi
við fleiri um uppbyggingu og rekstur Gamla
apóteksins, kaffihúss og félagsaðstöðu fyrir ungt
fólk. Gamla apótekið hefur verið öðmm fyrir-
mynd og er tekið sem dæmi um vel heppnað starf
af þessu tagi.“
Nú stóð ísafjarðarbæ til boða að halda 24.
landsmót UMFÍ árið 2004 en tók umdeilda
ákvörðun um að Iáta það frá sér? „Það hefði
verið gaman að halda landsmótið að ári en við
urðum einfaldlega að horfa á kostnaðarhlið-
ina og átta okkur á því að svo mikil uppbygg-
ing sem þurfti á svo stuttum tíma sem var
ætlaður gekk einfaldlega ekki upp. Það var
áætlað að hlutur Isafjarðarbæjar yrði 282
milljónir og þá er ég búinn að draga frá áætlað-
an hlut ríkisins. Það þarf að vinna svo ótal mörg
önnur verkefni að við verðum ávallt að sníða
okkur stakk eftir vexti.“
Hvernig hefur verið búið að íþróttafólki í
bæjarfélaginu? Er í gangi markviss upp-
bygging í íþrótta- og æskulýðsmálum? „Það
er að mörgu leyti vel búið að íþróttafólki í Isa-
fjarðarbæ. Hér eru ótrúlega mörg íþróttafélög
með fjölbreytta starfsemi. Mig minnir að innan
HSV séu rúmlega tuttugu íþróttafélög. Innan
Isafjarðarbæjar eru fjögur íþróttahús og í undir-
búningi bygging íþróttahúss á Suðureyri, fjórar
sundlaugar, íþróttavellir, glæsilegt skíðasvæði,
Homsírandir.
tveir golfvellir, aðstaða fyrir hestamenn, skot-
svæði og nú bætt aðstaða á Torfnesi. Þó alltaf
megi gera betur þá verður að segja að miðað
við stærð Isafjarðarbæjar er í raun ótrúlegt að
við skulum reka svona mikið af íþróttamann-
virkjum sem veita fulla þjónustu. Ástæðan er
miklu leyti sú hversu margir byggðakjarnar eru
innan bæjarfélagsins. Fyrir nokkrum árum var
unnin sérstök stefna í íþrótta- og æskulýðsmál-
um. Vinnan var að mestu í höndum Janusar
Guðlaugssonar í samstarfi við fræðslunefnd og
íþrótta- og æskulýðsfulltrúa. Eftir kosningar í
fyrra var verkefnum fræðslunefndar breytt
þannig að íþrótta- og æskulýðsmálin voru færð
í sérstaka nefnd. Þannig er málaflokknum gefið
aukið vægi og mikil vinna framundan í nefnd-
inni m.a. við endurskoðun stefnu í málaflokkn-
um. Það er vissulega mikil uppbygging í þessum
málaflokki í Isafjarðarbæ enda eigum við fjölda
glæsilegra fulltrúa í íþróttum. Það er góð tilfrnn-
ing þegar maður fylgist með sínu fólki í keppni
af stolti og ánægju.“
En er ennþá einh ver landsmótshugur í mönnum?
„Já það er mikill landsmótshugur í okkur vegna
unglingalandsmótsins í sumar og svo samgleðj-
umst við Skagfirðingum með landsmótið á
næsta ári og munum örugglega stefna þangað
miklu liði. Við erum ekkert að velta landsmótinu
2004 frekar fyrir okkur eftir að ákvörðun hefur
verið tekin. Hvað varðar gestafjölda á þessum
mótum má gera ráð fyrir svipuðum fjölda á þau
bæði ef markmið um fjölda gesta og þátttakenda
ná fram að ganga í sumar. Eg trúi reyndar að
svo verði því það er spennandi kostur að koma
vestur til Isafjarðar á landsmót og miklu minna
mál en margir halda að aka vestur á ísafjörð.“
Hvað væntingar gera heimamenn til ungl-
ingalandsmótsins til skemmri og lengri tíma?
„Við höfum þær væntingar að við fáum fjölda
gesta og þátttakenda og að okkur takist að þjón-
usta þá vel þannig að þeir fari héðan með góðar
minningar. Varðandi framtíðina þá fylgir lands-
mótinu betri aðstaða á Torfnesi. Það þýðir von-
andi fleiri iðkendur í ýmsum íþróttagreinum.
Þannig vonumst við til að öflugt íþróttalíf hér á
svæðinu verði enn kraitmeira vegna landsmótsins."
Vestfirðir eru utan við þjóðveg 1 og því liggur
beinast við að spyrja hvort þeir séu afskekkt-
ari en aðrir landshlutar og vegalengdir þar
meiri en annars staðar? „Best að byrja á því að
segja að vegalengdin og aksturstíminn milli
Isafjarðar og Reykjavíkur er minni en margir
halda. Eg sjálfur ek nokkuð oft á rnilli. Það er
ekki óalgengt yfir veturinn að ef ég þarf að mæta
á fund snemma morguns í Reykjavík en þarf að
vinna fram yfir kvöldmat, t.d. vegna bæjarráðs-
fundar, að þá ek ég um kvöldið suður. Það er
miklu minna mál en fólk almennt heldur. Þar sem
Vestfirðir eru utan við þjóðveg nr. 1 gæti það haft
áhrif þannig að fólki finnst svæðið vera afskekkt.
Það er samt ekki afskekktara en svo að ef þú beyg-
ir til vinstri við Brú í Hrútafirði í stað þess að
halda áfram norður í land, ertu kominn til fsa-
fjarðar 3 Vi-A klst. síðar. Við höfum lengi kvaitað
undan slæmum vegum Vestfirðingarog vissulega
eru víða óunnin verk en framfarimar hafa verið
mjög miklar og er svo komið að um 80% leið-
aiinnar milli fsatjarðar og Reykjavíkur um ísa-
fjarðardjúp og Strandir er lögð bundnu slitlagi."
Sú nýbreytni verður tekin upp á mótinu í
sumar að foreldrar geta skráð sig til keppni
þar sem þeir fá að spreyta sig á ýmsum
spennandi þrautum. Má búast við að sjá
bæjarstjórann þar meðal keppenda? „Ein-
hver var að tala um glímu milli bæjarstjórans og
formanns bæjarráðs og mun ég ekki skorast und-
an því. Hins vegar rnundi ég frekar vilja fara í
vítakeppni í körfubolta eða einhverja slíka grein
sem krefst minni átaka. Ef einhveijar aðrar þrautir
verða sem ég get tekið þátt í sem foreldri væri
það gaman.“
Og veðrið ... „Ég er vanur góðu veðri hér á
þessum tíma. Vonandi verður það eins og best
verður á kosið, það vinnur alltaf með svona
mótshaldi. Rey ndar er ég sannfærður unt að það
verður gott veður. Og muna...sól í sinni."