Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.04.2003, Side 50

Skinfaxi - 01.04.2003, Side 50
FLUGELDASÝIUING VIÐ MÓTSSLIT UNGUNGALANDSMÓTS Á ÍSAFIRÐI ER í BOÐI EFTIRTALINNA AÐILA: V 2003 UNGLINGA LANDSMÓT UMFÍ Miöfell hf. Rækjuvinnsla / Shrimps processing Miðfell hf. var stofnað 31. október 1999 og sama dag keypti fyrirtækið rækjuvinnslu Básafells hf. að Sindragötu 1 á ísafirði. Stofnendur voru Hraðfrystihúsið- Gunnvör hf„ Básafell hf. og Þormóður rammi hf. en núverandi eigendur eru Elías Oddsson, Hraðfrystihúsið - Gunnvör hf og Kagrafell ehf. Miðfell hf. hefur frá stofnun rekið áðurnefnda rækjuvinnslu sem er ein fullkomnasta rækjuvinnsla landsins. Hún er útbúin öllum nýjustu tækj- um og fullkomin pökkunarstöð er einnig til staðar. Fyrirtækið er samþykkt sem framleiðandi fyrir flesta kaupendur I Bretlandi og er framleiðslan allt frá stór- umbúðum, svo kölluðum tröllakössum, til neytenda- pakkninga allt niður í 200 gr poka eða bakka beint til stóru verslanakeðjana í Evrópu, þó sérstaklega Bretlandi sem er aðalmarkaðssvæöið fyrir framleiðslu fyrirtækis- ins. Velta fyrirtækisins hefur verið um 1 milljarður á ári frá stofnun þess og framleiðsla þess árið 2002 nam 2.400 tonnum Starfsmenn eru um 42. Islandssaga h/f Fiskvinnslan íslandssaga hf. á Suðureyri við Súg- andafjörð var stofnuð í desemberárið 1999. Fyrir- tækið er byggt á grunni mikillar hefðar í úrvinnslu sjávarafurða og sérhæfir sig I vinnslu á þorski, ýsu og steinbít. Fyrirtækið framleiðir bæði ferskar og frystar afurðir til útflutnings. Mest er flutt til Bandaríkjanna eða um 60%. Fyrirtækið hefur verið leiðandi í útflutningi á ferskum fiski frá Vestfjöröum og þær afurðir sem íslandssaga vinnur hafa öðlast ákveðinn gæöastimpil hjá dreifingaraðilum og neytendum. Fiskvinnslan er staðsett við höfnina og skapar það hagkvæmni á allan hátt. Nánast allt hráefni fiskvinnslunnar er nýtt til fullnustu og gerir það allan rekstur hagkvæman og ekkert fer til spillis. Hausa- þurrkunarfyrirtækið Klofningur nýtir mikinn hluta afskurðar til vinnslu. Fiskvinnslan Fjölnir hf. á Þingeyri við Dýrafjörð var stofnuð í ágúst 1999 í þeim tilgangi að stuðla að endurreisn og eflingu atvinnulífs á Þingeyri, einkum á sviði fiskvinnslu og annars tengds atvinnu- rekstrar. Helstu eigendur eru Vísir hf. í Grindavík, Byggða- stofnun, Burðarás hf. og Búlandstindur hf. á Djúpavogi. Framleiðsla hófst haustið 19991 fiskvinnsluhúsnæði að Hafnarstræti 9 á Þingeyri og annast Vísir hf. reksturinn sem byggist á verkun saltaðra og lausfrystra flaka sem aðallega eru seld til Spánar. í dag er fyrirtækið að vinna úr um 2.300 tonnum af hráefni á ársgrundvelli og hjá því starfa um 45 manns. FISKVTNNSLAN KAMBURehf Fiskvinnslan Kambur ehf. á Flateyri var stofnuð í desember 1999. Helsta framleiðsla fyrirtækisins er saltfiskflök og létt- söltuð lausfryst þorskflök, auk lausfrystra steinbitsflaka og bita. Kambur gerir út línubátinn Halla Eggerts ÍS 197 og nokkra smábáta. Fyrirtækið gefur einnig verðlaunabikara á Unglingalandsmóti UMFÍ á ísafirði. KLOFNINGUR ehf. Hausaþurrkunarfyrirtækið Klofningurehf. á Suðureyri var stofnað 7. janúar 1997. Fyrirtækið einbeitir sér að nýtingu auka- afurða úr fiski og fær sitt hráefni frá fisk- verkunum á norðanverðum Vestfjörðum. A síðasta ári framleiddi Klofningur yfir 700 tonn af þurrkuðum fiskhausum sem seldir voru á Nígeríumarkað. Fyrirtækið er einn af eigendum Fiskbita ehf. í Bolungarvík sem framleiðir þurrkaðar fiskikökur úr marningi, aðallega fyrir Nígeríumarkað. Nýverið keypti Klofningur hús á Hafnarkantinum á Suðureyri og fer þar fram flokkun á hausum og vinnsla (söltun) fyrir Portúgalsmarkað. í dag starfa um 15-17 manns hjá fyrirtækinu. UNGLINGA LANDSMÓT UMFl 3 FLUGFÉIAG ÍSLANDS V/SA figils 66*N AÐALSAMSTARFSAÐILAR ULM UMFÍ 2003 Bifreiðar og Landbúnaðarvélar hf láta UMFÍ í té bifreið að gerðinni Renault Megane II árgerð 2003. B&L merkja einnig bílinn merki landsmótsins. Framkvæmdastjóri mótsins fær bílinn til afnota vegna verkefna um allt land á vegum unglingalandsmótsins. Flugfélag íslands lætur UMFÍ hafa flugmiða til afnota fyrir starfsmenn og gesti unglingalandsmótsins á leiðinni ísafjörður - Reykjavík. Einnig mun Flugfélag íslands bjóða þátttakendum og þeirra fjölskyldum möguleika á að fljúga til ísafjarðar á góðum kjörum. VISA ísland gefur alla þátttöku- og verðlaunapeninga á 6.Unglingalandsmóti UMFÍ 2003. Ölgerðin Egill Skallagrímsson ehf mun gefa öllum þátttakendum mótsbol ásamt óvæntri gjöf. Einnig mun Ölgerðin láta UMFÍ hafa drykki til að slökkva þorsta hinna fjölmörgu sjálfboðaliða sem munu hjálpa við framkvæmd mótsins. 66°l\lorður útvegar UMFÍ einkennisfatnað fyrir stjórn UMFÍ, stjórn HSV, nefnd og greinastjóra unglingalandsmótsins. Einnig munu starfsmenn mótsins fá fatnað frá 66°Norður. íslandsbanki gefur og kostar merkingu á veglegum bakpoka til allra þátttakenda á unglingalandsmótinu.

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.