Skinfaxi - 01.04.2003, Síða 58
Unglingalandsmót UMFÍ 2003 á ísafirði
Orkubú Vestfjarða hóf starfsemi 1.
janúar 1978 með yfirtöku á rekstri
Rafveitu ísafjarðar, Rafveitu Patreks-
hrepps og þeim hluta Rafmagnsveitna
ríkisins er var í fyrrum Vestfjarðakjör-
dæmi. Ári síðar bættust við Rafveita
Snæfjalla og Rafveita Reykjafjarðar
og Ögurhrepps. Fyrirtækið starfaði
sem sameignarfélag sveitarfélaganna
á Vestfjörðum og ríkisins allt til 1. júlí
2001 þegar því var breytt í hlutafélag
í eigu sömu aðila. Ríkið keypti síðan
hlut sveitarfélaganna og hefur frá
aprfl 2002 verið eini eigandi fyrirtæk-
isins. Orkubú Vestfjarða er eitt þeirra
fyrirtækja sem styrkjaUnglingalands-
mót 2003 á ísafirði og af því tilefni var
rætt við Kristján Haraldsson, fram-
kvæmdastjóra Orkubúsins.
„ÁNÆGÐ AÐ GETA LAGT 0KKAR AF MÖRKUM
Hver var aðdragandinn að stofnun Orkubús
Vestfjarða á sínum tíma? „Segja má að það
hafi annars vegar verið hið háa raforkuverð sem
var í kjölfar olíukreppunnar á árunum upp úr
1973. en á þeim tíma urðu mörg byggðarlög að
reiða sig á raforkuframleiðslu frá díselstöðvum.
A þessum tfma var einnig nokkur raforkuskortur
á Vestfjörðum sem menn töldu réttilega geta
hamlað eðlilegri vinnslu sjávarafurða og
byggðaþróun. Af þeim sökum var mikill áhugi
meðal Vestfirðinga á þvf að þeir sjálftr fengju
tækifæri til að leysa orkumál sín og tækju
ábyrgð þeirra í eigin hendur í samvinnu við
ríkið. Þetta sjónarmið varríkjandi víða um land
á þessum tíma, skoðanir allmargra sveitastjórna
voru á þann veg að orkuöflun væri best fyrir
komið sem sameiginlegt verkefni sveitarfélaga
og ríkisins en rekstur dreifi veitna yrði hins vegar
hlutverk sveitarfélaga eða sameignarfélaga
þeirra. Um árangurinn þarf ekki efast og óhætt
að segja að með starfsemi Orkubúsins haft orðið
þáttaskil í fjórðungnum hvað aðgang að hag-
kvæmri raforku varðar.“
Hvert er hlutverk Orkubús Vestfjarða? „Það
er fyrst og fremst að sjá til þess að íbúar Vest-
fjarða og aðrir viðskiptamenn OV eigi greiðan
aðgang að hagkvæmri raforku og er það gert
með því að virkja vatnsafl og jarðhita á Vest-
fjörðum þar sem hagkvæmt þykir. Orkubúið sér
einnig um rekstur vatnsorkuvera og dísilraf-
orkustöðva til raforkuframleiðslu, ásamt mann-
virkjum til raforkuflutnings og raforkudreif-
ingar. Einnig á Orkubúið og rekur jarðvarma-
virki og fjarvarmakyndistöðvarásamt nauðsyn-
legu dreifikerfi. Þá annast það virkjunar-
rannsóknir og aðrar undirbúningsrannsóknir
eftir þvf sem ákveðið erhverju sinni. Samkvæmt
þessu nær hlutverk fyrirtækisins til alls orku-
iðnaðar á Vestfjörðum, h vort heldur orkugjafinn
er vatnsafl, jarðvarmi eða einhver annar.“
Hver eru helstu verkefni Orkubúsins í dag?
„Orkubú Vestfjarða vinnur markvisst að rann-
sóknum á möguleikum til frekari orkuöflunar á
Vestfjörðum. Við vorum að ljúka við nýja
forathugun á Glámuvirkjun sem yrði 67 MW
að stærð. Niðurstaða þeirrar athugunar er að
Glámuvirkjun muni verða nokkuð dýrari en
sambærilegir virkjunarkostir annars staðar á
landinu. Aftur á móti er hafinn undirbúningur
að hönnun á 670 KW virkjun í Tungudal við
Skutulsfjörð er mun að mestu nýta miðlað vatns-
rennsli sem kemur úr Vestfjarðagöngum. Þá
höfum við lokið við endurnýjun Þverárvirkj-
unar og sömuleiðis lokið dýptarmælingum á
vötnum á Ófeigsfjarðarheiði ásamt mælingum
á vetrarrennsli þar í samvinnu við Orkustofnun.
Síðast en ekki síst hefur verið unnið skipulega
að því að styrkja flutningskerfm með því að
leggja jarðstrengi í stað háspennulfna á ísing-
arsvæðum og flytja háspennulínur af svæðum
UMFÍ
þar sem hætta var á snjóflóðum eða styrkja þær
sérstaklega. Þetta hefur haft í för með sér að
verulega hefur dregið úr rekstraráföllum í flutn-
ingskerfum raforkunnar."
Er raforkuverð hjá Orkubúinu svipað því
sem gerist hjá öðrum orkuveitum? „Raunverð
raforku hefur aldrei verið lægra á Vestfjörðum
en nú, allt frá stofnun Orkubús Vestfjarða fyrir
aldarfjórðungi. Almennur taxti er nú um 42,5%
af því sem hann var árið 1978 og samanburður
við orku verð annarra orkuveitna sýnir, að Orku-
búið hefur verið trútt því markmiði sínu að vinna
að lækkun orkuverðs á Vestfjörðum. Þegar
Orkubú Vestfjarða er borið saman við Raf-
magnsveitur ríkisins kemur í ljós, að almennur
taxti Rarik er 22,5% hærri, verð Rarik á orku til
upphitunar íbúðarhúsnæðis 4,5% hærra og
afltaxti Rarik 31% hærri. Gjaldskrár þessara
fyrirtækja voru hliðstæðar og reyndar nánast
þær sömu allt til ársins 1990 en þá tók að draga
í sundur. Þessi árangur, sem náðst hefur, er
verulegur og hefur skilað Vestfirðingum um
1.250 milljónum króna í lækkuðu orkuverði,
miðað við gjaldskrá Rafmagnsveitna ríkisins. Það
má því segja með tilvísun til þessarar staðreyndar,
að Orkubúið skili arðinum af rekstrinum beint lil
hins almenna orkukaupanda."
Orkubú Vestfjarða er eitt þeirra fyrirtækja
sem styrkja Unglingalandsmót 2003 á
ísafirði? „Já, við erum ánægð að geta lagt okkar
af mörkum til að halda megi veglegt unglinga-
landsmót hér fyrir vestan. Það verður gaman
að fá alla þessa gesti í bæinn og sérstaklega að
fylgjast með krökkunum á mótinu. Síðast en
ekki síst er þetta frábær kynning fyrir bæjar-
félagið og Vestfírði alla.“