Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 3

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 3
ar þekkingar, sem hagfræðin hefir aflað sér á orsökum fyrirbrigðanna og afleiðingum, leifast hún einnig við að segja til um, hvað muni eiga sér stað, ef þessi eða hin ráðstöf- unin yrði gerð eða látin ógerð, og hvað sé hægt að gera, ef tilætlunin sé að ná þessu eða hinu markmiðinu. En — og það er kjarni þess máls, sem hér er um að ræða, — sem vísindagrein getur hagfræðin ekkert um það sagt, hvort keppa e i g i að þessu eða hinu markmiðinu. Engin vísindagrein getur svarað spurningum um það, að hvaða markmiðum skuli keppa. Séu slík svör gefin í nafni ,,vís- inda“, er nafn vísindanna misnotað. Og nú er rétt að athuga nánar spurning- arnar, sem ég sagði í upphafi, að ég hefði oft verið spurður: „Hvað viljið þið hagfræðing- arnir eiginlega láta hafast að í þessum dýrtíð- armálum?“, „Hvað á nú að gera samkvæmt kenningum hagfræðivísindanna?“ og „Er ekki vitleysa að láta stjórnmálamennina ráða því, hvað gert er í dýrtíðarmálunum, — á þetta allt saman ekki að byggjast á vísinda- legum, hagfræðilegum útreikningum?“ Svarið við fyrstu tveim spurningunum get- ur ekki orðið annað en þetta: „Sem vísinda- grein getur hagfræðin ekki svarað því al- mennt, hvað á að gera, þegar dýrtíð ber að höndum“. Hvað á að gera, fer auðvitað eftir því, hvort menn óska að vinna gegn dýrtíð- inni eða ekki, því að óski menn þess ekki, á auðvitað ekkert að gera. En nú segir kannske einhver, að það eigi alltaf að vinna gegn dýr- tíð. Þrátt fyrir það, er það engan veginn svo að dýrtíð komi alltaf óboðin, og menn óski að vinna gegn henni. Ægilegasta dýrtíð, sem saga seinni tíma getur um, er dýrtíðin í Þýzka- landi eftir heimsstyriöldina síðustu, þegar pappírspeningarnir urðu beinlínis verðlausir. Sú dýrtíð var ekki óboðinn gestur, sem reynt væri að varna inngöngu, — þar var um vís- vitandi aðgerð að ræða, til þess að eyða ríkis- skuldum Þýzkalands. Þýzka ríkið prcntaði ógrynni seðla og gi’eiddi með þeim skuldir sín- ar, þótt það hafi verið algerlega ljóst, að af- leiðingin yrði ægileg dýrtíð. En þýzka ríkið varð skuldlaust, það hafði velt skuldabyrðinni yfir á borgarana, og hefir þetta atriði, að þýzka ríkið hafði á þennan hátt losað sig við stríðsskuldirnar, tvímælalaust haft mikla þýð- ingu fyrir það, er vígbúnaðarkapphlaupið hófst á ný. Það er ennfremur alkunna, að ýmsar styrjaldarþjóðanna greiddu styrjaldar- kostnaðinn í síðustu heimsstyrjöld að nokkru með aukinni seðlaútgáfu, þótt vitanlegt væri, að það hefði í för með sér dýrtíð. Þá óskuðu ríkisstjórnirnar ekki eftir að vmna gegn dýr- tíðinni, heldur óskuðu beinlínis eftir dýrtíð, til þess að þjóðin minnkaði neyzlu sína og meiri hluta þjóðarteknanna væri hægt að verja til styrjaldarþarfa. Þá var því ekki ósk- að að vinna gegn dýrtíð, og þá átti auðvitað ekkert að gera, sem að því miðaði. Á þessu sést, að ógerningur er að gefa við því algilt svar, hvort vinna beri gegn dýrtíð eða ekki, — hagfræðivísindin sem slík geta ekkert um það sagt, því að það fer eftir því, hvaða markmiðum menn vilja ná að öðru leyti. Og jafnvel þótt allir væru sammála um, að vinna bæri gegn dýrtíð, geta hagfræðing- arnir heldur ekki umsvifalaust sagt, hvað eigi að gera. Það má vinna gegn dýrtíð á margan hátt. Til þess, að það sé hægt, verða einhverj- ir að færna fórnir. Það má vimia gegn dýrtíð mcð því að láta verkamenn eina færa fórnir, bændur eina, iðnaðarmenn, útgerðarmenn, kaupmenn, húseigendur o. s. frv., og það má gera það með því að láta alla færa fórnir. Það er ómögulegt að skera vísindalega úr því, hvaða stétt manna eigi að færa þær fórnir, sem nauðsynlegar eru, — það er ekki hlut- verk hagfræðingsins sem vísindamanns, að fella slíkan úrskurð, hann hefir einungis rann- sakað fyrirbrigði atvinnulífsins, orsakir þeirra og afleiðingar og þekkir lögmál þau, er þar ráða, en það veitir að honum að sjálfsögðu ekkert dómsvald um það, hvort þessi stétt eða hin eigi að bera byrðarnar. Það er ekki hægt að fella úrskurð um það út frá öðru sjónarmiði en því, hvað álitið er ráttmætt og sanngjarnt, en um það getur sitt sýnst hverj- um. Sumir kunna að telja réttlátast, að byrð- unum sé skipt algerlega jafnt eftir höfðatölu, aðrir hlutfallslega jafnt eftir tekjum, aðrir hlutfallslega jafnt eftir eignum, enn aðrir lcunna að telja, að einhver sérstök stétt, t. d. útgerðarmenn eða húseigendur eigi að bera þyngri byrðar en aðrar stéttir, enn aðrir, að sjómenn eigi að taka meira á sig en verka- menn o. s. frv. Með öðrum orðum: Hvað á að gera til þess að vinna bug á dýrtíð, er að veru- legu leyti komið undir því, hvernig þeim byrð- um, sem það hefir í för með sér, á að skipta niður á borgara og stéttir þjóðfélagsins. En hvað menn álíta um það, hlýtur að mestu leyti að fara eftir því, hvaða stjórnmálaskoð- un menn hafa. Til hvaða ráðstafana á að grípa til þess að vinna gegn dýrtíð, er m. ö. o. fyrst og fremst komið undir því, hvaða stjórnmálastefnu á að fylgja. Hagfræðingur- inn sem slíkur hefir ekkert til málanna að leggja um það, hvaða stjórnmálastefnu b e r i VÍKINGUR 3

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.