Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Page 10
annálum seglskipanna. Það var þýzkt að þjóð-
erni og í saltpétursflutningum milli Hamborg-
ar og vesturstrandar Suður-Ameríku, en á
þeirri leið þarf sífellt að berjast við vestan-
hvassviðrin við Kap-Horn. Árið 1908 var þetta
skip látið fara með olíu-farm frá New-York
til Yokohama í Japan. Seglskipaleiðin milli
New-York og Hong Kong er um 1000 mílum
styttri, en metið á þeirri leið átti Oriental, sem
var 81 dag á leiðinni árið 1850. Þetta l.itla
skip, aðeins 1.000 tonn og 185 fet á lengd, fór
að meðaltali 200 mílur á dag, alla leiðina, en
lengst fór það 302 mílur á einum degi, á 12
dögum fór það 3.119 mílur. Preussen, sem var
þrautlestað, fór áðurnefnda ferð sína frá höfn
til hafnar á 112 dögum, en í vestanveðrunum
við Kap-Horn komst fyrst verulegur skriður á.
Þá fór skipið 341 mílu á einum degi og á ell-
efu dögum fór það 3.019 mílur, næstum 275
mílur a dag.
Metið frá New York að miðjarðarlínu á
skipið Great Republic, sem fór þá leið á 5 dög-
um og 19 tímum. Preussen fór miklu lengri
leið, úr Ermarsundi og að miðjarðarlínu á 13
dögum og 8 tímum. Þá var ferðinni heitið til
Suður-Ameríku, í þessari ferð fór Preussen
368 mílur á einum degi, þar af 67 mílur á 4
tímum.
Þá er vert að nefna Potosi, sem var í sams-
konar ferðum og Preussen, þetta var 5 mastr-
aður Barkur 6000 tonn að stærð, byggður
1895. Stórmastrið var 210 feta hátt, og allur
reiði þannig úr garði gerður, að hægt var að
láta mikið af seglum standa í hinum verstu
veðrum. Lengsta vegalengd sem þessi gríðar-
stóri Barkur sigldi á einum degi, var 378 míl-
ur, og er það 4 mílur meira en það bezta, sem
liggur eftir Flying Cloud, sem var einn hinn
frægasti af öllum hraðsiglurum. Hraðamet
fyrir siglingu á einum sólarhring fyr og síðar
tilheyrir skipinu Lightning, sem fór 436 míl-
Sovereign of the Seas, hafði 105 manna áhöfn.
VfKINGUE
ur á einum sólarhrjng í jómfrúferð sinni frá
Boston til Liverpool. Og hið mikla Línu-skip
Queen-Mary, sem hlotið hefir bláabanaið í
Norður-Atlantsferðum, leikur sér að 700 míl-
um á sólarhring.
Jafnvel nú á síðari árum hafa sjómennirn-
ir komist fram úr fyrri metum. Árið 1938 í
mánuðunum október og Nóvember, sigldi Pri-
wall hlaðinn koksi frá 50° suðurbr. í Atlants-
hafi til 50° suðurbr. í Kyrrahafi fyrir Kap-
Horn á 5 dögum og 14 tímum. Skipið var á
leið frá Hamborg til Valpariso.
Rétt fyrir aldamótin eignuðust kanada-
menn tvö ágæt barkskip, skipin hétu Owee-
nee og Muskotsa, byggð árið 18'91 um 2.400
tonn að stærð, bæði skipin voru ákaflega há-
sigld. Oweenee fór til Suður-Ástralíu frá
Sprawle Point í enska kanalnum á 66 dögum.
Árið 1913 var hún 73 daga á leiðinni frá Dubl-
in til Sidney. Systurskip hennar var þó jafnvel
fljótari í ferðum. Muskotsa fór með steinolíu-
farm frá New York til Nagasaki í Japan á
114 dögum og er það gott þegar litið er á ferð
Preussens. Árið 1898 var hún þó tiltölulega
fljótari, þá fór hún með kol frá Englandi til
Hong Kong á 85 dögum. í kornflutningunum
milli San Francisko og Englands var fljótasta
ferð hennar, 96 dagar árið 1902.
Síðasta skipið sem fór þessa leið var Abra-
ham Rydberg á 125 dögum til Dublin.
Árin 1934—’35 var höfundur þessarar
greinar háseti á hinu 334 feta langa vöru-
flutningaseglskipi Herzogin Cecile, sem
venjulega var kölluð drottning flotans, þar til
hún fórst. Þetta skip, sem var hleypt af stokk-
unum 1902 var byggt rennilegar og meira til
gargs en tíðkaðist á síðari tíma skipum, með-
fram vegna þess, að um leið og henni var ætl-
að að vera verzlunar og flutningaskip, þá var
henni jafnframt ætlað það hlutverk að vera
skólaskip. Þegar búið var að tjalda öllum
seglum á þessu skipi, þá var samanlagt flatar-
mál þeirra um 56.000 ferhyrningsfet. Stór-
mastrið var um 200 feta hátt frá kili talið.
Samanburður á siglingaafrekum nokkurra
seglskipa:
Lengsta vegalengd á sólarhring.
HraSsiglarar (Clippers) : Mílur
Lightning- ............................... 436 (Met)
Flying Cloud ............................. 374
Cutty Sark ............................... 363
Vöruflutningaseglskip (Windjammer) :
Potosi ................................... 378
Preussen ................................. 368
Herzogin Cecile .......................... 365 (1930)
(Framh. á bls. 23)
10