Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1942, Blaðsíða 23
í skýrslu Hagtíðinda um skipastól landsins
í árslok 1941, eru talin 419 skip yfir 12 smál.,
en 181 undir 12 smál. í skipaflota landsins
voru því samtals 600 skip, sem voru 41.233
smálestir brúttó og 19.789 smál. nettó.
Af 65 gufuskipum — samtals 25.880 smál.
br. — eru 50 milli 100 og 499 smál., sjö eru
1000'—1999 smál., sex 50—99 smál. og tvö
frá 500—999 smál.
Mótorskipin yfir 12 smál. eru 352 að tölu
og flest — 236 — eru innan við 30 smál. að
stærð, sextíu eru 30—49 smál., en að eins eitt
(Esja) er yfir 1 þús. smálestir.
Allur þorri þessara 600 skipa, eða samtals
578, eru fiskiskip, annars skiptast þau þannig.
eftir notlcun þeirra:
33 botnvörpungar,
545 önnur fiskiskip,
9 farþegaskip,
8 vöruflutningaskip,
3 varðsldp,
1 björgunarskip og
1 dráttarskip.
Af farþegaskipum eru sex guf uskip: Brúar-
foss, Dettifoss, Goðafoss, Gullfoss, Lagarfoss
og Súðin, en þrjú eru mótorskip: Esja, Fagra-
nes og Laxfoss. Vöruflutningaskipin eru: Sel-
foss, Hermóður, Fjallfoss og Katla (gufu-
skip) og Arctic, Skeljungur, Skaftfellingur og
Baldur frá Stykkishólmi (mótorskip). Varð-
skipin eru: Þór (gufuskip), Ægir og Óðinn
(mótorskip). Björgunarskipið er Sæbjörg og
dráttarskipið er Magni, eign Reykjavíkur-
hafnar.
Frá næsta hausti á undan hefir skipum
fækkað um 2, en lestatalan lækkað um 2,243
lestir. Hinsvegar hefir gufuskipunum fækkað
um 13 og lestatala þeirra lækkað um 3.502
lestir. Reyndar hefir 1 gufuskip bætzt við, sem
var keypt í útlöndum (Snæfell), en aftur á
móti hafa 14 fallið í burtu. Eitt þeirra er selt
til útlanda (Sæfell), 5 hafa farizt (Gullfoss,
Pétursey, Reykjaborg, Hvassafell og Hekla),
en 8 hefir verið breytt í mótorskip, og hefir
eitt þeirra farizt (Jarlinn). Þó að mótorskip
unum hafi fjölgað, hafa líka mörg þeirra
fallið burt á árinu. Ellefu þeirra hafa strand-
að eða farizt á annan hátt, en 2 verið rifin.
★
Á árinu sem leið fórust 5 vélbátar og með
þeim samtals 20 menn, 2 línuveiðarar og með
þeim 21 maður, 3 botnvörpungar, Gullfoss,
með 19 mönnum, Reykjaborg með 13 mönn-
um og Sviði með 25 mönnum, eða samtals 57
Til loftskeytamanna:
Nokkrir loftskeytamenn hafa snúið sér til
F.F.S.Í. með umkvörtun yfir því, að radiovit-
inn á Dyrhólaey, sendi ekki svo vel og reglu-
lega sem ætlast er til.
P’.F.S.Í. hefir snúið sér til Vitamálastjóra
viðvíkjandi þessu og lofaði hann að láta strax
aðgæta þetta. Að öðru leyti sagði hann, að
þar sem senditæki vitans væru frá Þýzkalandi
og þaðan fengjust nú engir varahlutir lengur,
væri ekki hægt að endurbæta slit á lömpum
og öðru svo vel sem þörf væri á. Annars bað
hann þess, að ef menn yrðu varir við óreglu á
útsendingu vitans, að skrifa niður klukku-
stund og dagsetningu þegar hún ætti sér stað
og koma svo umkvörtuninni, sem allra fyrst á
framfæri, er komið væri í land.
F. F. S. í.
(Framh. af bls. 10)
Frá Englandi til Ástralíu.
HraSsiglarar (Clippel's) :
Dagar
James Baines ............................. 63
Hurmopylae .............................. 63
Vöruflutningaseglskip (Windjammer) :
Padua .................................... 67
Priwall .................................. 67 (1933)
Frá Ástralíu til Englands.
Lightning. Hraðsiglari (Clipper) ......... 63 (Met)
Vöruflutningaseglskip (Windjammer) :
Swanhilda ................................ 66
Parma .................................... g3 (1933)
Hraðamet.
Hratisiglarar (Clippei's) :
James Baines ....................... 21 sjóm. Met
Vöruflutningaseglskip (Windjamers) :
Herzogin Cecile ............... 20% sjóm. (1931)
(Þýtt úr ,,The Motor Boating“).
mönnum. Ennfremur eimskipið Hekla með 14
mönnum.
Á ofangreindum skipum hafa því farizt 112
sjómenn.
Auk þessa hafa svo 26 íslenzkir sjómenn
farizt af ýmsum öðrum skipum, innlendum og
erlendum, og margir þeirra af völdum stríðs-
ins.
Á þessu ári hafa því samtals 138 íslenzkir
sjómenn látið lífið við störf sín og stór hluti
þeirra af völdum stríðsins.
Á sama tíma hefir 291 útlendum sjómönn-
um verið bjargað hér við land.
23
VÍKINGUR