Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1945, Síða 23

Sjómannablaðið Víkingur - 01.03.1945, Síða 23
tmdir af gúmmí, trjám og lyfjum og hafa stór- griparækt og akuryrkju í stórum stíl. Þarna er líka lykillinn að vatnavirkjun til framleiðslu ódýrs rafmagns á mælikvarða, sem fer fram úr Öllu, sem áður hefur þekkzt á því sviði, en það 6r grundvollurinn fyrir stórfelldum iðnaði. Verkfræðingar hersins framkvæmdu mæl- ingar sínar á fljótaleiðinni frá Ciudad Bolivar í Venezuela. Hún er 354 km. frá mynni Orinoco- fljótsins — lengra komast hafskip ekki upp eftir fljótinu — til borgarinnar Manaus í Bra- ziliu. Hún er 1574 km. frá mynni Amazonfljóts og sú hafskipahöfn, sem stendur lengst upp með fljótinu. Hin náttúrlega skipaleið milli þessara tveggja borga er upp Orinocofljót, um Casi- quiarekanalinn, niður Rio Negro til Amazon- fljótsins. Sú fljótaleið er 2964 km. á lengd. En öll lengd vatnaleiðarinnar milli ósa hinna sam- tengdu fljóta er 4891 km. eða 917 km. lengri en aílt Missisippifljót. Verkfræðingarnir mældu aðeins það svæði, sem hindranir frá náttúrunnar hendi voru þró- un landsins til fyrirstöðu. Hér um bil 500 þús. ferkm. hins mælda lands milli Ciudad Bolivar og Manaus eru í Venezuela, Columbiu og Bra- ziliu. Þetta eru víðáttumiklar hitabeltissléttur og skógar. Þetta land er sömu tegundar og allur hinn fimm millj. ferkílómetra stóri Orinoco- Amazondalur. Þetta er stærsta landssvæði jarð- arinnar, sem unnt er að líta á sem eina heild, þar sem sams konar skilyrði ríkja í stórum dráttum. Meðalhiti loftsins er 23—31° á Celsíus, en það er alveg sérstakt við Miðjarðarbaug. Á nótt- unni er venjulega svo svalt, að oft er æskilegt að breiða ofan á sig teppi. Úrkoman er mikil, 70—105 þumlungar á ári, og loftið er rakt. Á þessu 500 þús. ferkílómetra svæði, sem mælt var, búa hér um bil 6000 manns. Af þeim eru hinir 5000 siðuðu íbúar búsettir á mjórri landræmu meðfram vatnaleiðinni. Sú landræma er um 2500 ferkm. að flatarmáli. Á öllu hinu svæðinu búa aðeins um 900 ósiðaðir, flakkandi villimenn. Þeir sjást aðeins endrum og eins, þeg- ai' þeir ráðast á og drepa hópa ógæfusamra ferðamanna, sem fara um skurðinn. Ef til vill lifir fólk hvergi annars staðar í heiminum við annan eins skort, sjúkdóma og framaleysi og þessir vesalingar, sem hafast við á bökkum hinnar gleymdu vatnaleiðar. Aðal- orsakirnar til vesaldóms fólksins er skortur á fæði og heilbrigðisráðstöfunum. Þó er landið ákaflega vel til ræktunar fallið og fljótt að gefa arð, sé nokkur minnsta viðleitni sýnd, og hinar smávægilegustu heilbrigðisráðstafanir mundu óðara hafa í för með sér bætt heilsufar svo undrum sætti, því loftslagið er í raun og veru heilnæmt, og landlæga sjúkdóma er auðvelt að Helztu skipaleiSir jrá ósum Orinoco-fljótsins. ráða við. Malaría, blóðkreppusótt, ormaveiki og fæðuskortur lamar og veiklar fólkið og rænir það áhuga og viljaþreki til þess að bæta kjör sín og hrinda í framkvæmd ráðstöfunum, sem duga mundu til að losa það við þrældómsok sjúkdóma og sultar. Þótt fólkið sé siðlátt og skírlíft, — kynferðis- sjúkdómar eru sjaldgæfir —, hefur það samt enga hugmynd um sjálfsagðar heilbrigðisvenjur og þróun heilbrigðismála um síðustu hundrað árV Skolpræsi og salerni eru því nær óþekkt. Sagt er, að aðeins tvær fjölskyldur á öllu landssvæð- inu búi í húsum, sem varin eru með flugnanet- um, og aðeins örfáir hvítir menn nota kínín til þess að lækna malaríu. Herlæknirinn, sem var með mælingamönnunum, komst að þeirri niður- stöðu, að engin ástæða væri til verra heilsufars á þessu landssvæði, ef nauðsynlegra heilbrigðis- reglna væri gætt, en t. d. í Charleston, Savannah, Mobile eða New Orleans. Fólkið, sem þarna hefst við, heldur því fram, að heilnæmara sé að búa þar, sem vatnið er svart, en þar sem það er ljósleitt, og þetta er venjulega satt. Svarta vatnið er súrt, og talið er, að sýrurnar í því komi í veg fyrir flugnaklak VÍKINGUR 63

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.