Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1946, Page 15

Sjómannablaðið Víkingur - 01.01.1946, Page 15
# og heimili um langan tíma alltaf lakara en ann- arra vinnandi stétta. Það væri því einnig at- hugandi fyrir þjóðina að tryggja sjómönnum sínum á þeim einum til tveimur mánuðum árs- ins, sem þeir eru lausir við fiskiveiðar, dvöl á sérstökum hvíldarheimilum, sem þjóðin kæmi upp beinlínis fyrri þá og með nokkru millibili veitti þeim kost á að komast til annarra landa í sama skyni, þannig að sjómannastéttin finndi, að þjóðin vildi verðlauna hana fyrir framlag hennar til þjóðarbúsins. En jafnframt því sem íslendingar á öllum sviðum sj ávarútvegsins verða að grípa það tækifæri, sem þeim nú gefst, þá ber þeim og að reyna að tryggja framtíð sjávarútvegsins, þessa atvinnuvegar þjóðarinnar. Svo sem gefur að skilja eru sjálf fiskimiðin grundvöllur þessa alls. Og þar sem fsland á komandi öldum á fyrst og fremst að byggja velgengni sína á auði þessara fiskimiða, þá verður að vernda þau og stilla í hóf nýtingu þeirra. Þess vegna er samkomulag við aðrar þjóðir um verulega stækkun landhelginnar íslenzku og friðun á- ákveðinna svæða þýðingarmesta framtíðarmál fslendinga og eitt veigamesta utanríkispólitíska samningamálið nú. Vér vitum það, íslendingar, að það eru Bretar, sem raunverulega ráða því, hve lítil landhelgi vor er og hafa staðið hart á móti því, að hún fengist stækkuð. Jafnframt vitum við, að Bretar skoða okkur sem allhættu- lega keppinauta um markaðinn á meginlandinu og virðast nú gera ráðstafanir til þess að verða okkur sterkari í þeirri samkeppni. Það þýðir það, að til þess að ná fram þessu máli, sem svo mikið veltur á, stækkun landhelginnar, þá verðum við íslendingar að afla þeirri hugsun fylgis meðal þeirra þjóða, sem ýmist sjálfar hafa nú þegar stærri landhelgi en við, svo sem Sovétríkin og Bandaríkin, svo og hinna, sem eru neyzluþjóðir fisksins og viðskiptaþjóðir vorar og hafa því hagsmuna að gæta í því, að ekki sé fiskistofninn þannig eyddur hér í Norð- ur-Atlantshafi, að komandi kynslóðir geti ekki haldið áfram að fá þessa vöru. Og samhliða þessu verðum við að leggja stund á samstarf við þjóðir, sem þarna hafa sömu hagsmuna að gæta og við og þá sérstaklega frændur okkar, Norðmenn, þannig, að þessar tvær þjóðir komi sem mest sameiginlega fram til þess að tryggja hagsmuni og framtíð fiskimanna í viðskiptum við aðrar þjóðir. Efling sjávarútvegsins, stærsta málið í at- vinnulífi íslendinga, krefst því nú stórtækra aðgerða á öllum sviðum þjóðlífs vors, sviðum tækni og vísinda, sviðum fjármála og viðskipta, sviðum félagsmála og utanríkismála. Og þessar aðgerðir þurfa að vera samstilltar í heilsteypt- um framkvæmdum á samfelldri áætlun, sem í skjótri svipan gerbreytir atvinnuháttunum og leggur grundvöll að öruggari og betri afkomu og aðbúnaði fyrir fiskimenn vora og þjóðina sem heild en oss hefur áður þorað að dreyma um. Einar Olgeirsson. C^fni blaöáinó Eins og frá var skýrt í síðasta blaði, hefur Víkingurinn snúið sér til fjögurra manna, eins frá hverjum stjórnmálaflokki, og beðið þá að rita greinar um íslenzkan sjávarútveg og framtíð hans. Tvær fyrstu greinarnar birtust í jólablaðinu. Voru það greinar Albýðuflokksmannsins Ósk- ars Jónssonar og Framsóknarmannsins Ey- steins Jónssonar. Grein Einars Olgeirssonar er prentuð hér að framan, en síðasta ritgerðin, í-itgerð Sigurðar Kristjánssonar, mun koma í næsta blaði. Margvíslegt efni, sem ekki var rúm fyrir í þessu blaði, bíður febrúarblaðsins. Þar á meðal er merkileg frásögn eftir Guðmund Jónsson, fvrrverandi skipstjóra á Skallagrími og skemmtilegur þáttur eftir Guðm. G. Hagalín, rithöfund. Af öðru efni, sem bíður vegna rúm- leysis, má nefna þetta: Á ferð um eyðisanda Vestur-Skaftafellssýslu, eftir Jón Otta Jónsson; grein um afstöðu ís- lendinga til Grænlands, eftir Ragnar Sturluson, frásögn um tundurduflaveiðar; minningar- grein um Gunnar Bóason, útgerðarmann á Reyð- arfirði, sönglag eftir Salómon Heiðar, kvæði eftir Gísla á Eiríksstöðum o. fl. Víkingurinn hefur í huga að birta framvegis mvndir af gömlum skipum og skipshöfnum, ásamt stuttorðum upplýsingum. Þeir, sem kvnnu að eiga slíkar myndir og vildu lána þær til birtingar, gerðu blaðinu mikinn greiða ef beir hefðu samband við skrifstofu þess, bréf- lega eða símleiðis. arauarp Jafnframt óslc um hamingjuríkt nýtt ár, þakka ég félögum mínum stórhöföinglega jóla- gjöf, fulltrúum 9. þings F. F. S. 1. hlýjar JcveSj- ur, ennfremur öll slceyti og hréf, velvild og drengskap. Vífilstöðum, 31. des. 1945. Eyþór Hallsson. V I K I N G U R 15

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.