Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Page 40
þar með taldir togararnir „okkar“, sem og
öll annarra þjóða fiskiskip, þar með talin ná-
grannaþjóðanna, nota stöðvarnar sér til að-
stoðar við veiðarnar. Meðal annars á þann
hátt, að afla sér sem gleggstra upplýsinga um
fiskgengd og veiðihorfur á fjarlægum sem.
nærliggjandi veiðisvæðum, markaðsmöguleika,
o. s. frv., o. s. frv. Sem sagt, allt, sem að gagni1
má koma í þessari mikilsverðu atvinnugrein.
Þetta virðist póst- og símamálastjórn ísiands
ekki vita, þar sem hún efast um að geta kom-
ið með frambærileg rök fyrir því á alþjóða-
vettvangi, að nauðsyn sé á þessum viðskiptum.
Bretinn virðist vita betur. En að því kem ég
síðar.
Póst- og símamálastjórnin lofar (í skeytinu
til skipstjóranna), að reyna að vernda þær
öldutíðnir, sem hún hefur ákveðið að íslenzkir
togarar skuli nota. Takk! Það er alveg nýtt
fyrirbrigði. Islenzkum loftskeytamönnum er
kunnugt um, hvernig nefndri stjórn hefur tek-
izt að vernda starfrækslu íslenzkra strand-
stöðva, hvað þá heldur farstöðva, fyrir trufl-
unum frá erlendum farstöðvum. En það hef-
ur tekizt þannig, að þeir, sem hafa fylgzt með
starfsemi strandstöðvanna, hafa ekki öfundað
starfsmenn þeirra af þeim vinnuskilyrðum,
sem þeim hafa verið búin. En það er aðeins
og eingöngu vegna þess, að liprir, duglegir og
hæfir loftskeytamenn hafa valizt til þessa
starfa, að hægt hefur verið að afgreiða þau
viðskipti,. sem til hafa fallið, þrátt fyrir frá-
munalega slæmar aðstæður og léleg tæki, sem;
þeim hafa verið fengin í hendur til starfsins,
auk mannfæðar, sem stafar sennilega af fá-
tækt þessa fyrirtækis, þrátt fyrir hið alkunnaj
okur á öllu því, sem þessi stofnun hefur með
að gera. Menn hafi í huga, að strandstöðin
Tfa, er t. d. ein af mikilsverðustu stöðvunum
við norðanvert Atlantshaf.
,,þær öldutíðnir, sem ákveðnar eru í nefndri
tilkynningu, munu vera nálægt því, sem frek-
ast má búast við að unnt verði að fá til milli-
skipaviðskipta togaranna „okkar“. Munu vera
nálægt því, sem frekast má búast við. —
Hvernig getur nú póst- og símamálastjórnin,
gizkað á, að þetta muni vera nálægt því, sem
frekazt má búast við að unnt verði að fá fyr-
ir togarana ,,okkar“? Ég efast um (og lái mér;
það hver sem vill), að nlargnefnd stjórn hafi
nokkurn tíma gert nokkra tilraun til að út-
vega íslenzkum togurum heppilega öldutíðni;
til innbyrðis viðskipta. Ef svo hefði verið,
hlytu starfsmenn þessara farstöðva að hafa
orðið þess varir á annan hátt en þann, að við-
skipti þessi hafa ekki fengið að vera í friði
á neinni öldutíðni stundinni lengur. Heldur
hafa þessar örfáu farstöðvar, sem hverfa í
fjölda hinna erlendu, verið hraktar af einni
öldutíðninni á aðra, þangað til svo er komið,
að starfsmenn þeirra sjá sér ekki fært að
starfrækja þær með þeim árangri, sem til er
ætlazt. það mætti kannske nefna þá staðreynd
í þessu sambandi, að jafnskjótt og íslenzku
togararnir hafa hætt að nota einhverja öklu-
tíðni, samkvæmt boði póst- og símamála-
stjórnarinnar, hafa erlendar togarafarstöðvar
samstundis tekið þær í notkun og bætt þeim
við hin mörgu vinnusvið, sem þær hafa fyrir.
Þessar erlendu farstöðvar, sem oftast eru af-
ar fjölmennar hér við strendur landsins, virð-
ast hafa aðrar alþjóðareglur til að fara eftir'
en þær íslenzku. Eða kannske bara öðruvísf
yfirstjórn?
Eins og áður er tekið fram, má það vel vera
rétt, að kæra hafi borizt póst- og símamála-
stjórninni frá einhverju nágrannalandi út af
truflun, sem íslenzk farstöð hefur valdið í
einstaka tilfelli. En hversu oft hefur sama
stjórn ekki orðið að kæra erlendar farstöðvar
fyrir slík brot? Eða hefur hún kannske aldrei
haft framtak í sér til þess? Allir íslenzkir
strandstöðvastarfsmenn, sem og togaraloft-
skeytamenn, vita, að erlendar farstöðvar hafa
leyft sér þann yfirgang og yfirtroðslur á al-
þjóðareglugerðinni um starfrækslu farstöðva
hér við strendur landsins, sem hvergi eiga
sinn líka, og íslenzkum loftskeytamönnum
myndi aldrei detta í hug að leyfa sér, enda
ekki liðið stundinni lengur. Hitt er svo alveg
víst, að ef íslenzkir togarar verða neyddir til
að nota ofangreindar öldutíðnir, sem þeim.
hefur verið úthlutað, þá mun ekki standa á
kærum á hendur loftskeytamönnunum fyrir,
truflanir, og þær kærur munu koma frá ná-
grannalöndunum, Danmörku- og Stóra-Bret-
landi, eða nánar tiltekið frá strandstöðvum.
þessara landa. Sé ég þá ekki að annað liggi
fyrir en að banna hreinlega starfsemi þessaraí
togarastöðva.
Til fróðleiks fyrir póst- og símamálastjórn-
ina skal ég nú lofa henni að sjá dálítið sýnis-
horn af því, sem gerizt á lágbylgjusvæðinu
daglega. Getur hún svo, ef hún nennir, borið
saman öldutíðnir þær, sem brezka póst- og
símamálastjórnin leyfir sínum togarafarstöðv-
um að nota, við vinnusvið hinna íslenzku. Því
ekki verður í efa dregið, að ensku farstöðv-
arnar fari eftir boði og banni sinnar póst- og
símamálastjórnar.
Eftirfarandi athuganir eru gerðar á fjórum
dögum, vegna þess að allar öldutíðnirnar eru
1BO
V I K I N G U R