Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1949, Blaðsíða 41
athugaðar á sama tíma eða kl. 17,00 til 18,00,
íslenzkur sumartími.
Öldutíönir:
2545 kc/s 117.9 mtr........... (Vinnubylgja
Dac-Elbe-Weser-radio). Engin milliskipavið-
skipti á tímanum.
2500 kc/s-120.0 mtr........... (Vinnubylgja
Gkr-Wickradio). Öldutíðnin upptekin af milli-
skipaviðskiptum 43 mín. af tímanum. Enskir
togarar við Bjarnarey og í Hvítahafi. (Verða
sennilega kærðir af Wick-radio)).
2300 kc/s. til 2200 kc/s. 130.4 mtr. til 136.4
mtr......... Tíðnissviðið upptekið allan tím-
ann af þýzkum togurum (A. 3).
2160 kc/s. 138.9 mtr...........Tíðnissviðið
upptekið af enskum togurum allan tímann (Aj
2. og A. 3.).
2130 kc/s. til 2060 kc/s. 140.8 mtr. til 145.6
mtr.......Allt sviðið upptekið af enskum tog-
urum allan tímann.
2040 kc/s. 147.1 mtr. 2010 kc/s. — 149.3 mtr.
(Vinnubylgja Reykjavík-radíó fyrir duples við-
skipti). Öldutíðnissviðið upptekið allan tímann
af enskum togurum. (Verða sennilega kærðir
af póst- og símamálastjórn).
2010 kc/s. 149.3 mtr............. (Vinnubylgja
Elbe-Weser-radíó). — Bylgjan upptekin í 17
mín. af þýzkum togurum.
1970 kc/s. til 1930 kc/s. 152.3 til 155.5
mtr....... Öldutíðnirnar úthlutaðar íslenzk-
um togarafarstöðvum. (Ónothæfar suður og
austur af Islandi). 2 talstöðvar viðskipti sim-i
plex norskra farstöðva. Sennilega við norður-
strönd landsins eða við Grænland. (Verður'
sennilega kært af póst- og símamálastjórn).
1810 kc/c. 165.7 mtr.......Sviðið upptekiðl
allan tímann af norskum farstöðvum.
1700 kc/s. 176.5 mtr. . . . (Öldutíðnin bönn-
uð íslenzkum farstöðvum fyrir nokkrum mán-
uðum. Strax tekin í notkun af enskum togur-
um). 2 duplex viðskipti enskra togara og 2
simplex viðskipti. (Verður efalaust kært af
Póst- og símamálastjórn).
1650 kc/s. 181.8 mtr.......(Alþjóða neyð-
ar- og kallbylgja fyrir talstöðvar). 1 simplex
farstöðva innb. viðskipti. Tók 12 mín. Enskir*
fogarar. (Verður eflaust kært af póst- og
símamálastjórn).
1630 kc/s. 184.0 mtr.......(Vinnu-öltiðnis-
svið Gkr. Wick-radíó). Tíðnissviðið upptekið'
meira og minna allan tímann. Innb. viðsk.
enskra togara A. 2.). Verður sennilega kært
af Wick-radíó).
1610 kc/s. 186.3 mtr.......(Vinnubylgja
VÍKIN G U R
Wick-radíó). — Engin millisk. viðskipti far-
stöðva á tímanum.
1590 kc/s. 188.7 mtr........(Bylgjan notuð
af íslenzkum vélbátum til innb. talviðsk.). —<
Upptekin meiri part tímans af færeyskum tog-'
urum.
1571 kc/s. 191,0 mtr........(Stundum not-
uð af Reykjavík-radíó við duplex viðsk.). —
öldutíðnin upptekin 38 mín. af færeyskum
togurum. — (Verður sennil. kært af póst- og
símamálast j órn).
Þessar athuganir eru gerðar 1, 2., 3. og 4.
júní síðastliðinn, kl. 17,00—18,00, eins og fyrr
er sagt.
Það mætti ætla, að íslenzkir loftskeytamenn
væru nokkuð fyrirferðamiklir í loftinu, þeg-
ar nágrannalöndin þurfa að grípa til kæru á
hendur þeim og íslenzka póst- og símamála-
stjórnin býst við „miklum erfiðleikum“ í að
fá rétt til handa íslenzkum fiskiskipum til að
nota loftskeytastöðvar, vegna brota þeirra á
alþjóðareglugerðinni. Sérstaklega þegar tekiðl
er tillit til þess, að hér er aðeins um 30—40
skip að ræða, sem þar að auki eru meiri part
tímans mjög fjarri öllum strandstöðvum ná-
grannalandanna, svo að varla ætti að vera
hætta á að þau trufli viðskipti þeirra þann
tíma. Hitt m'á vel vera, eins og áður er tekið.
fram, að einhverra misbresta hafi orðið vart
í einstaka tilfelli við starfrækslu þessara far-
stöðva, en þá hefur þeim seka að sjálfsögðu
verið gert viðvart, hann fengið tiltal frá rétt-
um aðilum, án allrar viðkvæmni, sem gætir!
svo mjög, er ,,nágrannaland“ á í hlut.
Póst- og símamálastjórnin vill sem fyrst fá
úr því skorið, hvernig þessi tilhögun reynist
í framkvæmd. Það mætti kannske spyrja: —
Hver er reynsla nefndrar stjórnar á nothæfni
þeirra öldutíðna, sem togarafarstöðvar hafa
notað til innbyrðis viðskipta undanfarin ár?
Hvers konar reynsla er það, sem póst- og
símamálastjórnin óskar eftir? Er það kannske
reynsla á því,, hvort stöðvarnar komi að til-
ætluðum notum? Eða reynsla fyrir því, hvort
þessar örfáu íslenzku stöðvar verða ekki fyr-
ir einhverjum hópi farstöðva nágrannalands?
þetta liggur ekki ljóst fyrir, vegna þess að
starfsmenn íslenzkra farstöðva hafa mér vit-
anlega aldrei verið spurðir um árangur af
ráðstöfunum sem þessum.
Að lokum skal það tekið fram, að loft-
skeytamenn á togurunum hafa aldrei haft
neina löngun eða tilhneigingu til afskipta af
ákvörðunum póst- og símamálastjórnarinnar
viðvíkjandi starfsemi farstöðva þessara. En
1B1