Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Qupperneq 13

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Qupperneq 13
sem sagði í viðtali við blaðamenn í haust, að Englendingar ættu rétt á að fiska við ísland, af því þeir hefðu fyrstir allra byrjað togveiðar á þessum ókunnu miðum. Því skal ég svara. íslendingar komu fyrstir hvítrn, manna til Grænlands og Norður-Ameríku, og hafa ekki gert tilkall til þessara landa ennþá. Hvað við- víkur miðunum, þá voru þau ókunn í augum Breta, en ekki okkar, því hver einasti hreppur á íslandi, sem að sjó liggur, hefur sín eigin fiskimið, og hefur þar verið stundaður sjór í aldaraðir, en náttúrlega varð oft þröngt fyrir dyrum, þegar erlendir yfirgangsseggir þyrptust á smábátamiðin íslenzku, og man ég eftir mörg- um ófögrum yfirgangi brezkra togaraskipstjóra hér við land. Vil ég benda fólki á að lesa bók- ina Formannsævi í Eyjum, eftir Þorstein Jóns- son í Laufási í Vestmannaeyjum, þar sem segir frá viðskiptum hans og Josep Wood skipstjóra frá Hull. Einnig man ég eftir því, að þegar ég var smástrákur, varð slys á Haukadalsbót á Dýrafirði. Sýslumaður Isafjarðarsýslu, Hannes Hafstein, klæddur einkennisbúningi sínum, ætlaði að fara um borð í togara, sem verið hafði að fiska dögum saman inni á firðinum. Þegar bátur sýslumanns nálgaðist togarann, slógu skipverjar úr togblökkinni með þeim afleið- ingum, að vörpustrengirnir færðu bátinn í kaf og drukknuðu þar 2 menn, en sýslumaður komst af við annan mann, þrekaður mjög. Margir minnast þess, þegar brezki togarinn Chieftain, skipstjóri Edward West, var stað- inn að ólöglegum veiðum við Bjarneyjar á Breiðafirði, varði fylgdarmönnum sýslumanns Barnastrandarsýslu uppgöngu á skipið með öxum og bareflum, en sigldi með Guðmund Björnsson sýslumann og Snæbjörn Kristjáns- son hreppstjóra til Englands. — Einnig man ég eftir því, þegar íslenzkt varðskip ætlaði að taka Grimsbytogara í Arnarfirði, og brezki skipstjórinn skipaði svo fyrir, að dælt skyldi heitum sjó og kastað kolum í varðskipsmenn, þegar þeir nálguðust. Sjálfur skipstjórinn, William Loftis að nafni, kastaði vatnsfötu í höfuð íslenzka stýrimannsins, svo hlauzt af talsverður áverki. Þar sem margir íslendingar munu ókunnugir byrjun togveiða hér við land, ætla ég að víkja lítils háttar að því efni. Styðst ég þar að mestu leyti við skýrslu enska fiskifræðingsins Ernest W. Holt. Sumarið 1891 sendu Bretar í fyrsta sinn gufutogara til veiða við Island. Hann hét „Aquarius" og var frá Grimsby. Hann kom upp að Ingólfshöfða. Togaramenn kölluðu höfð- ann „Ingol’s Hoof“, og það festist svo í málinu hjá þeim, að þeir hafa aldrei getað nefnt höfð- ann sínu rétta nafni. Skipið fyllti sig þarna af skarkola, lúðu og ýsu. Öllum öðrum fiski var fleygt. Var togað á 6—7 faðma dýpi, sem er auðvitað alveg upp undir fjöruborði. Næstu sumur sendu Bretar fleiri og fleiri skip til Islands, og færðu þeir sig smám saman bæði vestur og austur með landinu. Alstaðar gerðist sama sagan: Bretar hirtu einungis kola og lúðu, jafnvel ýsu var stundum fleygt. 1895— 1896 munu þeir hafa komið á Faxaflóa innan- verðan. Þá byrjaði nú fyrir alvöru rányrkjan. Varpan fylltist hjá þeim á skömmum tíma, mestmegnis af smáum og stórum þorski, sem þeir þó ekki vildu, en alltaf var mikið af kola, lúðu og ýsu innan um. Auðvitað var þorskur- inn allur dauður, þegar hann fór í hafið aftur. Ég talaði einu sinni við gamlan mann í Grimsby, sem hafði verið háseti á einum þeirra togara, sem fyrstir fóru til veiða við Island. Hann sagði mér margt. Meðal annars sagði hann frá einni ferð, sem þeir fóru til Dyrhóla- eyjar. Þar fylltu þeir skipið á þrem sólarhring- um. Það var mesta erfiðið, sagði gamli maður- inn, að koma öllum þorskinum út aftur, hann var svo stór og feitur. Hann sagði ennfremur, að skipstjóranum hefði verið illa við þetta, því hann heyrði hann segja: „We will soon be glad to get that“. Það kom líka á daginn, að þeir urðu fegnir að hirða þann gula, og reyndist oft erfitt að ná í hann. Ég veit, að mörgum íslendingum hitnar í hamsi vegna hinnar lubbalegu framkomu brezkra togaraeigenda í okkar garð, þar sem þeir víla jafnvel ekki fyrir sér að útbreiða þau ósannindi, að íslenzkum togurum leyfist að fiska innan hinnar nýju friðunarlínu. Ætla ég að lokum að snúa máli mínu til yngri mannanna hér í Reykjavík og öðrum sjávar- þorpum, því ég veit að þeir eru örari en við, sem erum orðnir rosknir. Stillið skap ykkar, ungu menn, og verið ekki með ýfingar, þótt þið hittið fyrir Breta. Slíkt er alveg þýðingar- laust og getur ekki gert annað en skaða okkar góða málstað. I flestum tilfellum myndu það verða alsaklausir menn, sem fyrir því yrðu. I hina náið þið hvort sem er ekki, sem verðskulda flenginguna. _____ STAKA Byrjar stríð með ári enn, ævin líður svona. Einhvers bíða allir menn, óska, kvíða og vona. Páll Ólafsson. V í K I N G U R 13

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.