Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Blaðsíða 31
nefndina voru kosnir: Geir Sigurðsson, skip-
stjóri, Guðmundur Björnsson, landlæknir, Jón
E. Bergsveinsson, erindreki, Sigurjón Á. Ólafs-
son, formaður Sjómannafélags Reykjavíkur og
Þorsteinn Þorsteinsson skipstjóri, þáverandi for
maður Skipstjórafélagsins Öldunnar.
Stofnfundur.
Þá er nefndin hafði lokið undirbúningi og
samið uppkast að lögum fyrir hið væntanlega
félag, boðaði hún til aðalfundar, stofnfundar,
er haldinn var í Bárubúð 29. janúar 1928. Þar
var félagið stofnað með 126 félögum. — í
fyrstu stjórn félagsins voru kosnir: Guðmundur
Björnsson, landlæknir, forseti; Magnús Sigurðs-
son, bankastjóri, gjaldkeri; Geir Sigurðsson,
skipstjóri, ritari. Meðstjórnendur: Þorsteinn
Þorsteinsson, skipstjóri og Sigurjón Á. Ólafs-
son, alþingismaður. Hefur hinn síðarnefndi átt
sæti í stjórninni óslitið frá stofndegi og verið
varaforseti félagsins síðustu 12 árin.
Þróun félagsins.
Fyrsta félagsdeildin, sem stofnuð var úti
á landi, var slysavarnadeildin „Sigurvon" í
Sandgerði. Deildum félagsins hefur farið sí-
fjölgandi ár frá ári og er nú svo komið, að
varla er sú byggð á landinu, sem ekki hefur
slysavamadeild innan sinna vébanda. Eru deild-
ir félagsins nú 195 (fjórar deildir hafa verið
stofnaðar eftir áramót, allar í Húnavatnssýslu)
og félagar S.V.F.I. eru nú rétt um 28 þúsund.
* * *
Myndirnar á þessari opnu: Neðst á fremri síðu sjást
skipbrotsmenn af „Cap Fagnet", er björgunarsveitin í
Grindavlk bjargaði 2j. marz 1931. Á fremri síðu til
hsegri er mynd af Jóni E. Bergsveinssyni, fyrsta erind-
reka félagsíns og starfsmanni um langt skeið. — Á
þessari síðu efst til vinstri er mynd af „Skúla fóyeta“
strönduðum og efst til hægrí frá björgun skipverja af
„Trocadero". Neðst til hægrí er mynd af nokkrum björg-
unarmanna frá Látrabjargi.
VÍKINGUR
Árið 1929 eignaðist Slysavamafélagið fyrsta
björgunarbátinn, brimróðrabátinn Þorstein. —
Síðar lét það smíða innlands litla brimróðra-
báta, sem hafðir eru í ýmsum brimasömum
verstöðvum. Þá lét félagið smíða björgunarskip-
ið Sæbjörgu og átti hlut að smíði björgunar-
skipsins Maríu Júlíu. Þegar félagið var 10 ára
hafði það komið upp 32 björgunarstöðvum víðs
vegar um landið. Á 15 ára afmælinu voru þær
orðnar 45 og á 20 ára afmælinu 60. Nú, þegar
félagið er 25 ára, á það og annast 92 björg-
unarstöðvar. Þar af er 51 1. flokks fluglínu-
björgunarstöð, með línubyssu, líflínu, tildrátt-
artaug, björgunarstól og öðrum tilheyrandi út-
búnaði. 15 stöðvarnar eru 2. og 3. flokks stöðv-
ar, en 26 eru skipbrotsmannaskýli með vistum,
fatnaði og hvíluútbúnaði.
Björgunarsveitir félagsins víða um land eru
alkunnar fyrir björgunarafrek sín. Má þá sér-
staklega nefna Grindvíkinga, Siglfirðinga, sveit
irnar austur við sandana, Snæfellinga og síð-
ast en ekki sízt Barðstrendinga.
31