Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Blaðsíða 30
25 ára
Slysavarnafélag íslands
Slysavarnafélag Islands heldur um þessar mundir
hátíðlegt aldarf jóröungsafmxli sitt. Má ólisett fullyrða,
að félagið liafi áunnið sér miklar vinsældir og viður-
kenningu, bæði innan lands og utan. Þær vinsseldir eru
fyllilega verðskuldaðar og byggjast á margvíslegum og
gifturíkum störfum félagsins. Um leið og Víkingur
drepur á nokkur atriði í 25 ára starfsögu S.V.F.Í. vill
hann nota tækifærið og óska félaginu til hamingju með
afmælið, þakka unnin afrek félagsins og hinna ham-
ingjudrjúgu slysavarnasveita þess. Megi félagið ævin-
lega vera hinu mikla og göfuga hlutverki sínu vaxið.
* * *
Slysavarnafélag íslands var formlega stofnað
29. janúar 1928. Löngu fyrr höfðu menn þó
fundið nauðsyn þess, að gert væri eitthvað, sem
um munaði til að draga úr hinum ægilegu slys-
förum á sjónum, sem skýrslur sýndu að verið
höfðu margfalt meiri hlutfallslega hér á landi
en meðal flestra eða allra annarra þjóða. Má í
því sambandi minna á stórmerkt brautryðjanda-
starf séra Odds V. Gíslasonar, prests á Stað í
Grindavík, sem á árunum 1888-1892 ferðaðist
um allt land, flutti fyrirlestra, gaf út blað og
bæklinga og stofnaði félög til að vinna að slysa-
varnamálum. Þó að sú starfsemi félli að mestu
niður við brottför séra Odds til Vesturheims,
hafði barátta hans vakið marga til umhugsun-
ar um þessi mál og sum bjargráð hans komu
sjómönnum á áraskipum að miklu liði. All-
löngu síðar hélt Guðmundur landlæknir Björns-
son fyrirlestur og ritaði gagnmerkar greinar um
slysfarir á sjó og eggjaði þjóðina til að taka
upp baráttu gegn þessum geigvænlega voða.
Árið 1918 riðu Vestmannaeyingar á vaðið
og stofnuðu „Björgunarfélag Vestmannaeyja“,
er lét mikið að sér kveða og keypti til landsins
björgunarskipið „Þór“.
Eftir að Fiskifélag Islands var stofnað lét
það slysavarnamálin til sín taka og skipaði
árið 1926 sérstakan erindreka í björgunarmál-
um. Var það Jón E. Bergsveinsson. Beitti hann
sér síðan, ásamt fleiri góðum mönnum, fyrir
stofnun sérstaks félags, er ná skyldi yfir allt
landið og hafa björgunarstarfsemi og öryggis-
mál sjófarenda á stefnuskrá sinni.
Hinn 8. desember 1927 boðuðu Fiskifélag ís-
lands og Skipstjórafélagið Aldan til opinbers
fundar um skipsströnd og drukknanir við strend-
ur landsins og varnir gegn þeim. Á fundinum
var samþykkt tillaga frá Guðmundi landlækni
Björnssyni um kosningu fimm manna nefndaj;
til að undirbúa stofnun björgunarfélags. — í
30
VIKINGUR