Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Blaðsíða 14
Á vertíðinni.
^rimmtu^ur ijómaour:
Jón B. Sigurðsson
Jón B. Sigurðsson frá Súgandafirði átti fimmtugs-
afmæli þann 4. nóvember síðastliðinn.
Jón er fæddur að Tungu í Skutulsfirði, en að mestu
alinn upp í Botni í Súgandafirði. Rúmlega tvítugur
fluttist hann svo til Suðureyrar og tók þá að stunda
þar sjómennsku. Þar var þá mikil aflasæld og engin
verstöð lá betur við til sjósóknar á fengsælustu miðin
— enda fast sóttur sjórinn af framgjörnum formönn-
um. Fékk Jón þá fljótt að reyna karlmennsku sína og
þrek, sem hvorugt brást, enda er maðurinn mikill að
vexti og þar eftir þéttur. Hann hefur ánægju af að
minnast margs frá þessum árum. Árið 1928 fluttist
Jón til ísafjarðar. Hann hefur ávallt stundað sjóinn —
lengst af á línubátum. Lét honum þau störf vel —
þótt vinnudagurinn væri oft í lengra lagi. Náði hann
mikilli leikni og fór saman flýtir og vandvirkni. —
Nokkur síðustu árin hefur Jón átt heima í Reykjavík.
Verið á togurum — er nú á „Pétri Halldórssyni".
Eins og vikið var að, er Jón þéttur á velli. Ber
þá hins að geta, að ekki er hann síður þéttur í lund.
Tryggari maður og traustari á hverju, sem veltur, er
vandfundinn. Sá, sem þessar línur ritar, þakkar Jóni
B. Sigurðssyni framúrskarandi ánægjulega samveru og
gott samstarf í samfleytt 12 ár á sjónum. Veit ég, að
fjölda margir félagar hans að fornu og nýju, enn-
fremur vinir og kunningjar víðsvegar, taka undir með
mér og óska honum til hamingju með fimmtugsafmælið
og gæfu og gengi í í framtíðinni. — R.
14
V I K I N G U R