Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Qupperneq 22
. Sjávarútvegurinn 1951
Nokkur atriði nr skýrslu Landsbanka fslands
Fyrir skömmu er komin út skýrsla Landsbanka ís-
lands fyrir árið 1951. Er hún allstórt rit og flytur að
vanda mjög yfirgripsmikinn fróðleik um atvinnuvegi
landsmanna. Fara hér á eftir nokkur atriði skýrslunn-
ar, er segja frá hag og afkomu sjávarútvegsins á um-
ræddu ári. — Þess skal getið til skýringar, að tölur
þær, sem hafðar eru í svigum, eru tölur næsta árs á
undan (1950).
Afkoma útvegsins.
Afkoma útgerðarinnar var heldur betri 1951 en und-
anfarin ár. í ársbyrjun var tekið upp hið svokallaða
bátagjaldeyi-isfyrirkomulag, en samkvæmt því fengu
útvegsmenn til ráðstöfunar helming andvirðis útfluttra
bátaafurða, annarra en síldarafurða og þorskalýsis, í
erlendum gjaldeyri. Þrátt fyrir þessar ráðstafanir átti
mikill hluti bátaflotans við erfiðleika að stríða vegna
afiabrests, sem einkum var tilfinnanlegur á Vestfjörð-
um. Meðalafli báta í róðri hefur farið jafnt og þétt
minnkandi hin síðari ár. Skuldaskilasjóður lauk störf-
um á árinu, og var með starfsemi hans ráðin mikil
bót á fjárhag þtirra bátaútgerðarfyrirtækja, sem til
hans leituðu. Útgerð margra togara gekk erfiðlega á
árinu. Markaður fyrir ísfisk var góður, og jókst ís-
fisksútflutningurinn á ný, enda hafði togaraverkfallið
1950 átt meginþátt í því, hve útflutningur var lítill á
því ári. Aðrar helztu breytingar, sem urðu á verkun
aflans á árinu, voru þær, að saltfisksframleiðslan dróst
aftur nokkuð saman og freðfisksframleiðslan jókst,
enda gekk vel með sölu freðfisks erlendis, einkum vegna
hins ágæta markaðs, sem fyrir hann hefur unnizt í
Bandaríkjunum. Herzla á fiski fór mjög vaxandi á
árinu, en sú verkunaraðferð hefur ekki verið notuð að
ráði um langt skeið. — Yfirleitt gekk sala sjávaraf-
urða á erlendum mörkuðum greiðlega á árinu, og var
verðlag hátt. Verð á fiskimjöli lækkaði þó allmikið.
Hins vegar var verð á síldarafurðum afburðagott, og
vegna hins háa verðlags varð afkoma nokkurra síld-
veiðiskipa ágæt um sumarið, enda þótt meðalveiðin
væri rýr.
Þátttaka í útgerö.
Á árinu voru gerðir út á veiðar 46 (45) togarar og
tala úthaldsdaga þeirra á veiðum 13.293 (9.157). Af
gömlu togurunum voru 5 (9) gerðir út á árinu. Meðal-
úthaldstími allra togaranna varð 289 (204) dagar. Það
dró meðalúthaldstímann nokkuð niður, að gömlu togar-
arnir voru aðeins gerðir út nokkurn hluta ársins og
nokkrir hinna sjö nýju togara bættust í flotann, er all-
mikið var á árið liðið. ísfisksveiðar voru mest stund-
aðar, og voru úthaldsdagar 5.929 (3.429). Á veiðum í
salt voru úthaldsdagar 2.012 (2.549) og 4.820 (2.779)
á karlaveiðum. Á síldveiðar fóru 9 (7) togarar, og
voru úthaldsdagar 532 (400). Nokkur línugufuskip voru
gerð út á síldveiðar, en ekki á aðrar veiðar. Þorsk-
veiðar með lóð og netjum voru stundaðar líkt og árið
áður, og varð tala þeirra báta, sem þær veiðar stund-
uðu, hæst í maí. — Dragnótaveiði var stunduð af
líkum fjölda skipa og árið áður, og urðu þau flest
í júní 89 (júní 95). ísfisksflutningur annarra skipa
en veiðiskipa eru nú að mestu úr sögunni. Um þátttölcu
í síldveiðum er getið síðar í kaflanum.
Afli.
Heildaraflamagn ársins 1951 nam 418 (368) þúsund
tonnum, miðað við fisk upp úr sjó, og skiptist þannig
á fisktegundir (í þús. tonna): síld 85 (60), þorskur
182 (186), ufsi 16 (15), karfi 37 (71), ýsa 16 (19),
steinbítur 7 (6), langa 2,8 (3,3), keila 1,3 (1,5), skar-
kofi 3,3 (2,7), heilagfiski 1,9 (0,9), annar flatfiskur
1,0 (1,1) og sundurliðað 65 (-). Heildarafli togaranna,
að undanskilinni síld, nam 204 (155) þús. tonnum, þar
af var þorskur 77 (70) þús. tonn, karli 36 (71) þús.
tonn og ufsi 12 (5) þús. tonn. Heildaraflinn, að undan-
skilinni síld, hefur verið sem hér segir undanfarin ár
(í þús. tonna): 1947: 260, 1948: 317, 1949: 323, 1950:
307, 1951: 333. Hlutur síldarinnar í heildaraflanum
jókst nokkuð, og var hann 20,3% 1951, en 16,5% árið
1950. Skipting aflans á þorskveiðum 1950 var eftir
verkunaraðferðum á þessa leið: ísaður fiskur fluttur
út af skipum, sem veiddu hann, 18,0 (11,4)%, ísfiskur
seldur í flutningsskip 0,3 0,8)%, fiskur til frystingar
32,6 (21,7)%, fiskur til herzlu 2,4 (0,2)%, fiskur til
niðursuðu 0,0 (0,0)%, fiskur í salt 22,0 (37,9)%, fisk-
ur settur í fiskimjölsverksmiðjur 23,6 (27,2% og fiskur
til neyzlu innan lands 1,1 (0,8)%.
FÍ8kiskipa8tóllinn.
í lok ársins 1950 kom til landsins hinn ^yrsti af
nýju togurunum 10, sem samið hafði verið um smíði
á í Bretlandi 1948. Á árinu 1951 komu 7 nýir togarar
til landsins í viðbót. Skip þessi eru 681-732 brúttórúm-
lestir að stærð og innflutningsverð hvers þeirra 8.250
þús. kr. Á árinu 1951 voru keypt til landsins fjögur
hvalveiðiskip frá Noregi, og eru þau öll um 250 rúm-
lestir að stærð, og samanlagt innílutningsverð þeirra
var 2.040 þús. kr. Skip þessi höfðu að undanförnu verið
leigð til hvalveiða hér við land. Loks voru keypt til
landsins 5 mótorskip, 46-82 rúmlestir að stærð, og voru
22
VIKINGUR