Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Page 33
Árið 1936 var ráðinn fulltrúi til
að hafa með höndum slysavam-
ir á landi. Hefur Jón Oddgeir
Jónsson gegnt því starfi alla
stund síðan. — Árið 1944 var
Henry A. Hálfdansson ráðinn
skrifstofustjóri félagsins og
gegnir hann enn því starfi. —
Árið 1949 lét Jón E. Bergsveins-
son af erindarekastörfum fyrir
aldurs sakir. Hefur Guðmundur
G. Pétursson verið erindreki fé-
lagsins síðan.
Félagið hefur í tilefni af 25
ára afmæli sínu gefið út allstórt
afmælisrit, 232 blaðsíður að
stærð, þar sem saga félagsins
er rakin og í alllöngum inn-
gangskafla greint frá slysförum
og tilraunum til slysavarna fyrir daga félags-
ins. — Hefur Gils Guðmundsson tekið bókina
saman.
Slysavarnafélagi íslands hafa í tilefni af af-
mælinu borizt margar gjafir og fjöldi heilla-
óska frá fyrirtækjum, stofnunum og einstakl-
ingum. Félagsdeildir víðs vegar um land hafa
haldið samkomur og minnst þessara merku
tímamóta í sögu S.V.F.I. Miðvikudaginn 28.
janúar héldu Reykjavíkurdeildir félagsins sam-
eiginlega samkomu í Sjálfstæðishúsinu og
minntust afmælisins. Sigurjón Á. Ólafsson
stjórnaði samkomunni. Margar ræður voru
fluttar. — Frú Guðrún Jónasson, formaður
kvennadeildarinnar, afhenti forseta félagsins
25 þúsund króna afmælisgjöf frá deildinni og
séra Óskar J. Þorláksson, formaður „Ingólfs“,
afhenti gjafir frá þeirri deild, er námu sam-
tals 45 þúsund krónum.
* * *
Þó að Slysavamafélagið hafi á liðnum aldar-
fjórðungi unnið mikið og þjóðnýtt starf og látið
margt gott af sér leiða, eru verkefnin mörg,
sem við blasa í náinni framtíð. Félagið þarf
því enn að eflast og færast í aukana, ef því á
að reynast kleift að sinna hinum margvíslegu
kröfum, sem til þess munu gerðar í framtíð-
inni. Slysavarnastarfsemin er þess eðlis, að þar
er aldrei nóg að gert, þar getur enginn endir
á orðið. Bezta óskin félaginu til handa er því
sú, að það megi í æ ríkari mæli vera þeim
vanda vaxið, að vinna lið hinu góða málefni,
er það hefur helgað sér.
*
* *
Myndin að ofan til hægri - er af
Henry A. Hálfdanssyni á skrifstofu
sinni. Hann hefur verið skrifstofu-
stjóri félagsins síðan 1944.
Myndin til vinstri er af Guðmundi
G. Péturssyni erindreka S.V.F.I. og
Þuríði Hjörleifsdóttur skrifstofu-
stúlku.
V í K I N □ U R
33