Sjómannablaðið Víkingur

Årgang

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Side 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.02.1953, Side 37
m 2/12. Vetrarveður hefur verið í Englandi að undanförnu. — Norð- menn gefa Islendingum jólatré. Verður það sent með Gullfossi, sem flytur 13.000 jólatré hingað frá Noregi • 3/12. Átta manns með lömun- arveiki í Grænlandi. — Taft ræðst heiftarlega á stefnu Eisenhowers í verkalýðsmálunum. Eisenhower skipar verkamálaráðherra í trássi við Taft-sinna. — Dauðadómun- um í Prag, yfir hinum 11 komm- únistaleiðtogum, var fullnægt í gær. — Danska skipið Havörnen strandaði við Yarmouth og hefur 13 manns af 25 manna áhöfn ver- ið bjargað. • 5/12. Bonnstjórnin ákveður að fresta atkvæðagreiðslu um Þýzka- landssamningana. Kom það eins og þruma úr heiðskíru lofti. — Eisenhower á heimleið úr Kóreu- förinni. Dvaldi þar þrjá daga og athu&aði vígstöðuna, en annar árangur ekki sýnilegur. • 9/12. Svíar gera tilraun með fiskinet úr nylon. — Fyrirtæki í Nýfundnalandi opnar fiskfrysti- stöð í Þýzkalandi. — Aðalritari í Landssambandi verkalýðsfélag- anna í Túnis var myrtur í gær fyrir utan borgina. Talið er að þetta pólitíska morð spilli sam- komulagi Frakka og Túnismanna. — Hjúkrunargögn handa lömun- arveikisjúklingum í Grænlandi komu með Gullfossi í gær og voru send héðan með Grænlands- fari í gærkvöldi. — Færeyingar hyggja á útvíkkun landhelginnar. • 7/12. 1. desember var lækkuð dýrtíðin í Noregi. Hef*iur verð verið lækkað á 20-30 lífsnauð- synjum fólksins. 9/12. Handtökunum heldur á- fram í Tékkóslóvakíu. Fimm fyrr- verandi ráðherrar handteknir í gær, segir útvarpið í Belgrad. — Eisenhower ræðir við ráðherra sína um Kóreumálin. — Sótsvört Lundúnaþoka lamar allt atvinnu- Iífið þar í borg. Umferðaröng- þveiti og slys tíð. — 50 falla í götubardögum í Casablanca. • 10/12. Mikill skortur er á alls konar matvöru í Austur-Þýzka- landi. Grotewohl rekur birgða- málaráðherrann. — Norðmenn eru á eftir áætlun með landvarnir sinar. — Stjórnarkreppa yfirvof- andi í Bonn í gærkvöldi. Hæsti- réttur dæmir aðild Yestur-Þýzka- lands óheimila samkvæmt stjórn- arskránni. — 1 dag er mannrétt- indayfirlýsingar Sameinuðu þjóð- anna minnzt um allan heim. • 12/12. Truman forseti segir Kóreuför Eisenhowers vera lýð- skrum. Á blaðamannafundi i gær sakaði hann MacArthur um að hafa gefið sér villandi upplýs- ingar. — Samið hefur nú verið um viðskipti milli Breta og Norð- manna fyrir árið 1953. • 13/12. Síldarafli Norðmanna hefur verið meiri nú í ár en nokkurt annað ár. — Erlendir sjómenn þurfa nú vegabréfasárit- un og landgönguheimild i banda- rískum höfnum. • 14/12. Fundur Atlantshafsráðs- ins hefst í París á morgun. — 20 ríki sækja um upptöku í S. þ. • 16/12. Gin- og klaufaveiki herj- ar í Finnlandi. — Nýtt úr, sem getur gengið öldum saman. Stór- kostleg uppfinning svissneskra vísindamanna. — 82 fangar skotn- ir í uppþoti í fangabúðum S. þ. í Kóreu. Sumir þessara fanga stóðu fyrir uppreisninni á Kojeey. • 17/12. Ismay lávarður vill flytja verkafólk milli Atlantshafsbanda- lagsríkjanna eftir þörfum. Bar hann tillöguna fram á Atlants- hafsbandalagsfundi. — 4 milljónir krabbameinssjúklinga hafa fengið aðhlynningu í krabbameinssjúkra húsi New York borgar. Er sjúkra- húsið 70 ára um þessar mundir. — Mountbatten lávarður liefur verið skipaður yfirmaður varna við Miðjarðarhaf. — Styrjöldin í Indó- Kína er Frökkum dýr. — Vaxandi andúðar í garð íslands gætir í umræðum danskra blaða um handritamálið. Er nú forðast að tala um íslenzku handritin og þykir hentara að kalla þau nor- ræn. Hvaða skuld höfum við ís- landi að gjalda? er spurt í Dan- mörku. • 18/12. Eden varar við hervæð- ingu Austur-Þýzkalands. — Tító slítur stjórnmálasambandi við páfastól. • 20/12. Hvalkjöt er mikilsverð eggjahvítuefnislind. — 12 þúsund smálesta bandrískt farþegaskip strandaði undan ströndum Liban- on. 500 farþegar eru um borð. • 24/12. Ein stjórnarkreppa enn í Frakklandi. — Bretar óttast út- færslu á landhelgi Irlands og Grænlands. • 28/12. Churchill fer væntanlega á fund Eisenhowers í byrjun næsta árs. — Spilling meðal opin- berra starfsmanna erfitt vanda- mál í Sovétríkjunum. — Naguib tekur stórjarðir eignarnámi. — Nylonvörpurnar hafa gefið þre- fallt betri veiðiárangur heldur en hamp- og bómullarvörpur. — Alexandrine drottning er mikið veik. — Stalin segist ekki ófús að ræða við Eisenhower, og segir styrjöld milli Sovétríkjanna og Bandaríkjanna ekki óumflýjan- lega. 30/12. Alexandrine drottning andaðist á sunnudagsmorgun. — JúgósIavar.Tyrkir og Grikkir und- irbúa varnarbandalag. VIKINGUR 37

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.