Sjómannablaðið Víkingur

Ukioqatigiit

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Qupperneq 12

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Qupperneq 12
En nú skulum við heyra hvað Kristinn sjálf- ur segir: „Þar sem ég er ekki nema 14 ára gamall, hef ég orðið, til Jþess að leita erindi yðar úrlausnar, að leita til eldri og reyndari sjó- manna og hjá þeim hef ég fengið eftirfarandi upplýsingar: Venjuleg fiskimið með nöfnum eru að mestu innan gömlu landhelgislínunnar og voru notuð af Grindvíkingum austur með Krýsuvíkurbergi og vestur fyrir Reykjanes meðan gerðir voru út árabátar og opnir vél- bátar, en síðan hinir stóru vélbátar komu hér, má heita að engin sérstök mið með nöfnum séu notuð. Þar sem bátarnir róa venjulega í myrkri, ákveða þeir miðin með siglingartíman- um og áttinni, og með línu fara þeir allt austur á Selvogsbanka og vestur í Miðnessjó og til hafs allt að þriggja klukkustunda siglingu, þeg- ar lengst er farið. Aftur á móti eru mið notuð, þegar verið er með þorskanet í saltfiski, þ. e. þegar loðna er gengin á miðin, og er þá venjulega verið grunnt, allt að því sem kallað er „að boðabaki", eða fast utan við brotin. Netjamið Grindvíkinga mega heita á hverri vík austur af Herdísarvík og vestur á Stóru- Sandvík. Um miðin innan hinnar nýju land'helgislínu er lítið að segja. Vanir sjómenn telja engin sérstök mið hafa friðast og fyrir Grindavík ekkert unnizt með hinni nýju landhelgislöggjöf, vegna þess að línan var tekin frá Eldeyjar- drang um Hópsnes og Selvog og þaðan fram fyrir Vestmannaeyjar, þar sem sú sjómíla, sem bætt var við á þessu svæði, sé yfirleitt svo mik- ill hraunbotn, að togarar hafi aldrei reynt að fiska þar. Það hefur verið sjálffriðað svæði fyrir botnvörpu. Sjómenn hér harma það mjög, að línan var ekki tekin frá Geirfuglaskerjum og austur um Vestmannaeyjar og friðaður þannig mikill hluti af Selvogsbanka, sem mun vera einhver mesta klakstöð við íslandsstrendur, sem sést bezt á tilkomu flotvörpunnar, að togararnir geta fyllt trollið á nokkrum mínútum, þegar fiskurinn er kominn upp í sjó að hrygna. Eru sjómenn hér að geta þess til, að hér sé á ferðinni eitt hið mesta eyðincjartæki þorsJcs, þar sem bæði er, að þetta er mjög takmarkað svæði og fram til þessa hefur það verið al- friðaður fiskur, sem hefur sloppið frá botn- inum upp í sjó“. Það sem sagt er um flotvörpuna er mjög athyglisvert og þarf vissulega að stemma á að ósi, ef hún reynist eins skaðleg og hér er gefið í skyn. Gott á landhelgismálið að eiga svona unga Hauka í horni. Verði þeir sem flestir. Niðurstöður. Að hvaða niðurstöðum verður þá komizt eftir skýrslum þeim og upplýsingum, sem að framan eru taldar? 1. Mið þau, sem íslenzkir sjómenn hafa sótt á, en verið hraktir frá vegna yfirgangs út- lendra fiskiskipa, "einkum brezkra togara, liggja mjög drjúgan spöl fyrir utan friðunarlínuna, sem gildi öðlaðist 15. maí 1952. Verður því ekki um hana sagt, að hún sé lengra dregin í haf út en sögulegur og siðferði- legur réttur heimilar. 2. Það er staðreynd, að á undanförnum ára- tugum, svo ekki verði dýpra í árinni tekið, hafa erlend veiðiskip, brezk í broddi fylkingar, fram- ið feimulausa og skefjalausa rányrkju á hinum íslenzku fiskimiðum, bæði djúpt og engu síður í fjörðum inni og jafnvel upp undir harða landi. 3. Grunnmið landsins eru sökum þessa í stór- kostlegri hættu. Fjöldi veiðistöðva um land allt hafa lagzt niður og fiskur gersamlega horfið af miðum, sem áður fyrr aldrei brugðust. 4. Inni í fjörðum og flóum landsins hafa út- lend veiðiskip og hér sem ætíð einkum brezk, framið tillitslausar og óverjandi skemmdir á veiðarfærum innlendra manna og það svo gegndarlaust, að víða hafa menn ekki þorað að leggja lóðir sínar eða net, þó vitað sé um afla, af hræðslu við að missa þau eða fá þau meira og minna sundur tætt. 5. Það er orðið sameiginlegt álit allra þeirra, sem nú stunda útgerð, að meginástæðan fyrir hrakförum útvegsins hér á íslandi sé fiskþurrð- in á hinum íslenzku fiskimiðum. 6. Um íslenzku fiskistofnana er það nú vitað, að þeir þola yfirleitt ekki meiri veiði en þá, sem á þá var sótt fyrir síðustu styrjöld og að við Islendingar erum nú orðnir einfærir um að taka úr þeim þetta magn. 7. Annar aðalatvinnuvegur okkar íslendinga eru fiskiveiðar, og leggist sá atvinnuvegur í rústir, er ekki búandi á íslandi, um það bera íslenzkir annálar vott. Fleiri ástæður má telja, en mér finnst þessar framantöldu sjö nægilegar til þess að sanna, auk þess sem áður er sérstaklega um Faxaflóa sagt, að spurningunni um hinn siöferðilega rétt okkar íslendinga til þess einir að sitja að veið- unum í hafinu kringum ísland, verði að svara hiklaust játandi og annað svar komi ekki til greina. Aukin vernd fiskimiða okkar er stærsta hagsmunamál okkar Islendinga sem stendur. Framh. á bls. 123 1D6 V í K 1 N G U R

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.