Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Síða 29

Sjómannablaðið Víkingur - 01.05.1953, Síða 29
Rýmkun landhelginnar . . . Framh. af bls. 106. Þetta verðum við bæði að skilja sjálfir og koma öðrum þjóðum í skilning um. Um landhelgina verður ekki samið. Næsta átakið er landgrunnið og djúpmiðin. Landhelgisgæzlan. Það er nú búið að leysa landhelgisgæzluna úr þeim læðingi niðurlægingar, sem hún var í hjá Skipaútgerð ríkisins og er það vissulega spor í rétta átt, en betur má ef duga skal. Það er upplýst orðið, sem ég hef haldið fram, að hún auðveldast með hinni nýju varn- arlínu og að til hennar þarf stærri skip og gangmeiri en litlir mótorkoppar, sem virtust uppáhald Skipaútgerðarinnar. Vísa ég að öðru leyti um fyrirkomulag hinn- ar íslenzku landhelgisgæzlu til þess, sem ég hef áður ritað í bæklingnum „Landhelgin", bls. 100 til 117. Eftirmáli. í ritum mínum um landhelgismálið hef ég haldið því fram og fært að því rök, að höfuð- óvinur okkar að fornu og nýju sé Bretinn. Fyrstir útlendinga sóttu þeir á hin íslenzku mið, eftir að þeir voru búnir að ganga svo frá Norðursjónum, að hann var orðinn hálfgerð eyðimörk, og áleitnastir hafa þeir verið allra veiðiþjófa við strendur Islands. Skal ég nú enn betur finna orðum mínum stað með því stuttlega að vitna í „De Lamar“, fyrirlestra forstjóra fiskirannsóknanna í Bret- landi, E. S. Russels, sem magister Árni Frið- riksson hefur þýtt, en fáir hér heima kynnt sér. Annað erindið nefnir hann „Eyðing eldri miða“, og segir þar m. a.: „I erindi þessu ætla ég fyrst og fremst að gera grein fyrir, hvaða áhrif hinar áköfu botnfiskveiðar, sem staðið hafa síðan um aldamót, hafa haft á fiskstofn- ana í Norðursjónum. Ýmsar spurningar hljóta að koma upp í hug- um okkar um þessi mál. Hvaða áhrif hafa veið- arnar á fiskstofninn ? Hefur heildaraflinn minnkað? Eins og drepið var á í fyrsta erindi mínu, fæst nú aðeins lítill hluti af afla Breta úr Norðursjónum, og fer sá hluti stöðugt minnkandi. Á árunum 1903—05 nam Norður- sjávaraflinn um það bil 50%, en hlutdeild þessa svæðis minnkaði stöðugt og ört niður í 16% árið 1935 og 12% 1936—37. Aðalorsök þessara miklu breytinga er sú, að fjarlægari miðin eru miklu arðbærari, stofn- inn er meiri og aflinn þá tiltölulega meiri líka, miðað við fyrirhöfn. Það er mjög eftirtektar- vert, hversu meðaldagaflinn frá fjarlægu mið- unum er miklu meiri miðað við hvern dag, sem skipið var úr höfn, en frá heimamiðum eða jafnvel miðmiðum, þrátt fyrir miklu lengri veiðisókn“. Hann gerir svo töflu yfir meðaldagveiði enskra togara af botnfiski úr Norðursjónum 1906—1937, þ. e. meðalveiði hvern dag, sem skipið hefur verið úr höfn. Taflan sýnir að dagveiðin 1906 var 17,6 vætt- ir, en 1937 aðeins 13,3. Dagafli af ýsu í Norðursjónum yfir nefnt tímabil var 7,8 vættir 1906, en aðeins 2,6 vættir 1937. Um skarkolann, sem hann telur mikilvægasta flatfiskinn í Norðursjónum, segir hann m. a.: „Meðalstærð fisksins á miðunum hefur því minnkað mjög og getur helzta orsök þess aðeins verið aukin fiskisókn“. Þegar hann er búinn nægilega að rökstyðja arðránið í Norðursjónum segist hann ætla að snúa sér að öðru mikilvægu fiskisvæði, sem um langt áraskeið hefur verið nýtt, sem sé ís- landsmiðum. Um þau segir hann: „Þau liggja flest frekar nálægt ströndum Islands, því að sjórinn dýpkar ört út frá landgrunninu, strax og nokkuð dregur frá landi. Þau hafa alltaf verið mjög fiskisæl, einkum af þorski, skarkola, lúðu og ýsu. Fiskstofnarnir við Island eru að miklu leyti sjálfstæðir og einangraðir, enda þótt á síðari árum hafi verið samgöngur milli stofn- anna við Island og Grænland. Við suður- og suðausturhluta landsins, þar sem Golfstraumurinn kemur upp að ströndinni, eru hrygningarstöðvar fyrir þorsk, ýsu og skar- kola. Síðan eftir stríðið 1914—18 hefur gildi Is- landsmiðanna aukizt og nú veiða Bretar þar meira en á nokkru öðru svæði, sem tilgreint er í hagskýrslunum. Togaraveiðar Englendinga hafa aukizt þar stórum síðan um 1925, og var fjöldi veiðistunda árið 1937 nærri orðinn tvöfalt meiri en 1925. Með því að ensku togararnir veiða bróður- partinn af afla sínum við ísland, þá má full- yrða, að sóknin þangað hefur aukizt hin síðari ár. Við viljum nú virða fyrir okkur ýsuna. Ýsu- aflinn er sýndur á 5. mynd og ná línuritin einnig til áranna fyrir stríð. Aðalniðurstaðan, sem fæst af línuritinu, ef borin eru saman tímabilin 1920—25 og 1932— 35, er sú, að fisksókn eykst um 100%, en heild- V I K I N □ U R 123

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.