Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1954, Blaðsíða 37

Sjómannablaðið Víkingur - 01.07.1954, Blaðsíða 37
33. Óskar Frímannsson, Hrísey................. 6,49 34. Pálmi Héðinsson, Húsavík.................. 5,64 35. Ragnar Jóhannesson, Hafnarfirði .......... 6,55 36. Ríkarður Kristjánsson, Hafnarfirði ....... 6,83 37. Sigurður Guðmundsson, Reykjavík........... 6,53 38. Sig-urður Gunnarsson, Flatey, Suður-Þing. . . 6,80 39. Sigurjón Jónsson, Akureyri ............... 4,38 40. Sigursveinn Ingibergsson, Reykjavík ...... 6,09 41. Stefán Stefánsson, Vestmannaeyjum ........ 7,02 42. Sverrir Sveinbjörnsson, Dalvík ........... 5,50 43. Torfi Jónsson, Patreksfirði .............. 7,17 44. Torfi Sölvason, Flateyri ................. 5,89 45. Trausti Sigurðsson, Vestmannaeyjum........ 5,64 46. Tryggvi Valsteinsson, Glæsibæjarhreppi ... 6,83 47. Vöggur Jónsson, Eskifirði................. 5,83 48. Þorsteinn Þórisson, Hvalfirði ............ 4,67 Farmenn: 1. Einar Eggertsson, Borgarnesi .............. 5,01 2. Garðar Bjarnason, Reykjavík ............... 6,40 3. Gísli Guðbrandsson, Reykjavík.............. 7,08 4. Guðmundur Andrésson, Reykjavík ............ 5,75 5. Guðni Hákonarson, Reykjavík................ 4,83 6. Helgi Hallvarðsson, Reykjavík.............. 5,54 7. Helgi Ólafsson, Þórshöfn .................. 5,59 8. Hjalti Ólafsson, Reykjavík................. 5,18 9. Jóhann Haulcur Jóhannesson, Reykjavík .... 7,22 10. Jónas Þorsteinsson, Hveragerði ........... 6,92 11. Karl Guðmundsson, Reykjavík............... 7,25 12. Leifur S. Einarsson, Reykjavík ........... 5,17 13. Óskar Gunnarssson, Reykjavík ............. 5,83 14. Rögnvaldur Bergsveinsson, Reykjavík ...... 6,02 15. Sverrir Guðmundsson, Reykjavík............ 7,13 16. Sverrir Guðvarðsson, Reykjavík ........... 6,68 17. Sæmundur Sveinsson, Reykjavík............. 6,18 18. Úlfljótur Jónsson, Reykjavík ............. 5,51 19. Valgeir Valdimarsson, Reykjavík .......... 4,90 20. Þór Elíasson, Reykjavík .................. 6,68 21. Þorkell Pálsson, Reykjavík................ 6,34 22. Þorlákur Þórarinsson, Reykjavík........... 5,53 23. Þröstur Sigtryggsson, Reykjavík........... 7,27 Fimmtugur: Gísli Eggertsson Hinn 17. apríl síðastliðinn varð Gísli Eggerts- son að Krókvelli í Garði fimmtugur. Gísli er fæddur og uppalinn að Kothúsum í Garði, son- ur hjónanna Eggerts Gíslasonar bónda þar og konu hans Guðríðar Jónsdóttur. Öldugjálfrið í Kothúsavörinni heillaði snemma hinn unga svein, a. m. k. mun hann aðeins hafa verið 11 ára gamall, þegar sjósókn hans hófst á árabát heiman frá sér á sumrin, fram á hin lokkandi fiskimið í Garðsjó. Á vetrarvertíð réð- ist hann fyrst 14 ára gamall á vélbát frá Sand- gerði, en þaðan átti hann síðar eftir að leggja upp í marga sjóferðina, sem og frá ýmsum öðrum verstöðvum suðvestanlands. Skipstjórn sína hóf Gísli 21 árs og hafði hana á hendi í 25 ár. Lengstan tíma var hann skip- stjóri á útveg Lofts Loftssonar eða óslitið í 18 ár, bæði frá Sandgerði og Keflavík. Þá var Gísli og um tveggja ára skeið á enskum togur- um. Alla sína skipstjórnartíð hefur Gísli verið aflasæll og lánsamur og jafnan í fremstu röð með aflamagn. Það lætur"að líkum, að margir hafa samtíðarmennirnir verið og mun þeim öll- um hugsað með hlýju til samverustundanna undir skipstjórn hans, því vinsæll er hann í hópi sjómanna og annarra, er hann hefur um- gengizt, fyrir mannkosti sína. Gísli er kvæntur Hrefnu Þorsteinsdóttur, og eiga þau þrjá sonu, Eggert skipstjóra, Þorstein kennara við barnaskólann í Gerðum og Þorstein Árna, sem enn er ungur að árum. Gísli hefur nú fyrir skömmu látið af sjó- mennsku sökum heilsubrests og stundar nú fisk- mat. Þannig er hugur og starf enn í nánum tengslum við sjóinn og mun svo lengst af. Ég mæli áreiðanlega fyrir munn allra þeirra, er til Gísla Eggertssonar þekkja, er ég óska honum og fjölskyldu hans allra heilla og farsældar á ókomnum æviárum í trausti þess, að hans megi enn lengi njóta. Heill þér fimmtugum! E. G. Þ. VÍKINGUR 163

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.