Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1959, Blaðsíða 5

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1959, Blaðsíða 5
um algerlega á óvart. Mótstaða fjöldans hefur verið slík, að full ástæða hefur verið til þess að óttast hana. Á fjórða tug aldar- innar voru íbúar í þorpum nærri Wevak í Nýju Guineu hvað eftir annað æstir upp af „svarta kóng- inum“, spámennirnir lýstu því yfir, að Evrópumenn myndu bráðlega fara á brott og eftirláta eigur sínar innlendum mönnum. Þeir hvöttu alla fylgismenn sína til þess að hætta skattgreiðslum, þar sem stöðvar stjórnarinnar mynda brátt sökkva í sæ í mikl- um jarðskjálfta. Þetta tal var hættulegt hinum örfáu stjóm- endum héraðsins. Þeir settu því f jóra af spámönnunum í fangelsi og ráku þrjá í útlegð. Foringi einnar tók upp á því að hafa skrattann fyrir sinn Guð, og lýsti yfir andstöðu hreyfingarinnar við trúboð héraðsins. Hermenn beggja stríðsaðila í síðari heimsstyrjöldinni, sem komu til Melanesíu urðu þess varir, að tilkynnt var um sam- band komu þeirra þangað við spádóma Opinberunnarbókarinn- ar. Þegar bandarísku hermenn- imir komu til Nýju Hebrideseyja á leið sinni til hinna blóðugu bar- daga við Guadalcanal. voru íbú- arnir í óðaönn að undirbúa flug- velli, vegi og bryggju handa töfraskipum og flugvélum, sem þeir héldu að kæmu frá Rusifel (Roosevelt), hinum vinveitta kóngi Ameríku. Á suðurgöngu sinni til Guadal- canal urðu Japanir þess vísari að íbúarnir væntu sér komu þúsund- áraríkis. Einn minniháttar bar- dagi styrialdarinnar átti sér stað í hollenzku Nýju Guineu þegar Jananir börðust við Papúa ná- lægt Geelvinkflóa. Fyrst hafði Janönum verið miög vel fagnað, ekki vegna áróðurs beirra fyrir voldugri og velmegandi Austur- Asíu, heldur vegna þess, að íbú- arnir töldu komu þeirra vera fvrirboða um komu annarsheims. Flótti Hollendinga hafði verið fyrsta markið. töldu þeir. .Guð- inn Mausreu. sá sem skapað hafði eyjamar og íbúa þeirra, myndi nú koma aftur með þá, sem dáið höfðu, sér við hlið. Þetta höfðu Hollendingar vitað, sögðu leiðtog- ar trúflokkanna, en Hollendingar höfðu rifið burt fremsta blaðið úr Biblíunni, þar sem þessi sann- indi voru skráð. Við endurkomu Mausreus yrði öllu rækilega snú- ið við. Hvítir menn yrðu svartir, en Papúar hvítir. Rótarávextir myndu vaxa á trjám, en kókós- hnetur og aðrir ávextir í mold- inni. Nokkuð af eyjaskeggjum safnaðist saman í stærri bæjum, sumir skírðu þorp sín Biblíu- nöfnum, t. d. Jeríkó og Galileu. Þá tóku þeir að klæðast her- mannafötum og halda heræfing- ar. Japanir, sem nú vom orðnir mjög óvinsælir, reyndu að dreifa þeim og afvopna. Við það jókst mótstaða þeirra. Hámarki náðu þessir sorglegu atburðir, þegar nokkrir bátar fullir af æstum mönnum lögðu frá landi til árása á japönsku herskipin, í þeirri trú, að ekkert gæti grandað þeim, því þeir höfðu slett á sig svonefndu heilögu vatni. Japanirnir murk- uðu árásarmennina niður með skothríð úr vélbyssum. Á bak við þessa atburði er löng saga. Árið 1857 höfðu trúboðar á svæðinu við Geelviukflóa skrif- að niður sögnina um Mausreu. Einkennandi fyrir margar goð- sagnir Melanesa, sem blandast hafa kristnum kenningum, er að þær mynda hugsjónagrundvöll trúarhreyfinganna. Sagan segir frá gömlum manni, sem uppi var endur fyrir löngu, hann hét Man- amakreri (kláðagemsi); líkami hans var alþakinn sárum. Mana- makrere þótti pálmavín mjög gott. Á hverjum degi klifraði hann upp í stórt tré, til þess að ná sér í pálmavín úr ávöxtunum. Brátt varð hann var við að ein- hver var búinn að koma þar á undan honum og taka m.jöðinn. Að síðustu gat hann handsamað þjófinn, og reyndist hann vera s.jálf Morgunstjaiman. Til þess að sleppa gaf hún honum töfra- sprota ,sem gat framleitt eins mikið af fiski og honum þóknað- ist, þar að auki gaf hún honum töfratré og töfrastaf. Þó Mana- makeri væri orðinn gamall, kom hann því til leiðar á yfirnáttúr- legan hátt að ung stúlka varð barnshafandi, bai-nið varð undra- bam, það gat talað þegar það fæddist. Foreldrar stúlkunnar fylltust viðbjóði. Þeir ráku stúlk- una, barnið og gamla manninn á dyr. Þremenningin sigldi á brott í bát, sem guðinn Mansreu skap- aði. Gamli maðurinn hafði breytzt í Mausreu. Meðan ferðin stóð yf- ir steig Mansreu inn í eld og kastaði ellibelgnum. Húðin flagn- aði af honum og varð að marg- Víslegum verðmætum. Hann sigldi nú um Geelvink flóa og skapaði eyjar, þar sem hann nam staðar. Síðan reisti hann forfeð- ur nútíma Papúa upp frá dauð- um og lét þá búa á eyjunum. Goðsögnin um Mansreu er sköpunarsaga sem greinilega er full af táknrænum hugmyndum um frjósemi og endurfæðingu. Samanburður bendir til — eink- um hin flagnandi húð að gamli maðurinn sé raun og veru Högg- ormurinn í dulargerfi. Þeir sem skrifa um sálgreiningu seg.ja að hinn mikilvægi þáttur Höggorms- ins í goðafræði þjóðanna sé af því að hann sé tákn um frjósemi. Vel má það vera, en hið táknræna mikilvægi er þó flóknara. Það er endurfæðing hetjunnar, hvort sem hún kallast Mansreu eða Höggoi*mur sem hefur þetta töfravald yfir hugum manna alls staðar í heiminum. Trúboðar 19. aldar héldu, að sögnin um Mansreu, sem segir frá mey.iarfæðingu, upprisu og endurfæðingu myndi greiða fyrir útbreiðslu kristinnar trúar. En árið 1867 var tilkynnt um trúar- flokk sem byggði á sögninni um Mansreu. Þó slíkar goðsagnir væru út- breiddar í Melanesíu og kunni að hafa komið af stað einstökum hreyfingum, þá tóku þær á sig nýja mynd seint á 19. öld. þegar Noi'ðurálfu þjóðirnar höfðu lok- ið við að skipta melaneskum land- svæðum á milli sín. I mörgum strandhéruðum hafði hin langa saga af handtökum innlendra manna á eyjunni til vinnu á Framh. á hls. S2I,. Vf KINGUE 221

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.