Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1959, Blaðsíða 26
varp hefir einnig dregið mjög úr
bjórdrykkju. Um sterka drykki
er varla að ræða meðal verka-
manna. Það eru þá helzt konur,
sem eitthvað drekka af víni eða
brenndum drykkjum, en þó sjald-
an mikið.
í Grimsby eru líka til veitinga-
hús, sem ekki selja áfenga drykki.
Þau eru flest lítil, en sum mjög
þokkaleg. En fyrst í þeim flokki
skal talið eitt nýtt veitingahús,
enda ber af öðrum. Það er danska
sjómannastofan nýja, sem vígð
var — já, hún var vígð, því þar
er einnig kirkja í sal við hliðina
á höfuðsalnum, en að mínum
dómi eru hvorki íþróttasvæði né
samkomuhús vígð, heldur ein-
göngu átrúnaðarstöðvar, kirkjur,
hof og þessháttar. Þetta er nýtt
hús, sem stendur þar sem áður
stóð bjórstofan Navigation, sem
margir kannast við, er sigldu til
Grimsby fyrir síðari heimsstyrj-
öldina. Nú er þarna ólíkt og var
í gömlu bjórstofunni dönsku.
Bjartur og rúmgóður salur með
einföldum, en þægilegum dönsk-
um húsgögnum. Þar eru bækur
til lestrar og geta menn setið við
lestur án þess að kaupa veiting-
ar. Matur er þar framreiddur,
góður og ódýr danskur matur,
hvort sem menn vilja heitan mat
eða smurt brauð. Kaffibrauð er
þar einnig. Ég vil ráða öllum,
sem til Grimsby koma, að líta
heldur inn í dönsku sjómanna-
stofuna, en í brennivínshúsin, ef
um tvennt er að velja. Hún er í
Victoria Street, skammt frá Riby
torgi.
Nú fer ég að ljúka þessu
spjalli. Enn eitt get ég fullvissað
yður um, góðir fslendingar, að
fiskveiðideilan er ekki það á-
hugaefni alþýðu manna í Eng-
landi og hún er öllum íslending-
um. Fólkið veit sem er, að því er
engin hætta búin eða framtíð
þess, borinna og óborinna,.ef vér
berum sigur úr býtum. Hins veg-
ar veit enska fólkið ekki, að allt
líf vort Islendinga nú og um ó-
komnar tíðir, er undir því komið,
að vér sigrum. Vér fslendingar
skiljum þörfina og þekkjum mál-
stað vorn, en almenningur í Eng-
lahdi veit lítið um málstað stjórn-
ar hennar hátigar, enda er hann
ekki málstaður Englendingsins á
vinnustað eða húsfreyjunnar í
eldhúsi. Sá málstaður er málstað-
ur fárra en fégírugra auðmanna
og nokkurra afturhaldsmanna í
stjórnmálum. Þess vegna getum
vér sigrað, en þeir eigi.
AÐ HALDA FISKINUM
ferskum og óskemmdum svo lengi sem
kostur er á er höfuðatriði. Aluminium og
aluminium blöndur eru æ meira notaðar
við skipabyggingar, og ekki hvað sízt í
lestar á fiskiskipum.
Með því að nota aluminium í
lestar á fiskiskipum vinnst það,
að vegna aukins hreinlætis helst
fiskurinn lengur ferskur.
Auðvelt er að halda aluminium
lestum hreinum, og ryð og tær-
ing er algjörlega útilokuð.
The Adelphi, John Adam Street, London W.C.2.
Umboðsmenn:
eintiig
Reykjavík.
★
Þessi létti málmur er einnig notaður
í æ ríkara mæli í yfirbyggingar
skipa. — Slíkar yfirbyggingar gera
skipið stöðugra og reksturinn þar
með öruggari, að því ógleymdu að
skipið verður léttara.
ALUIUIIMIUIVI UIXIIOIM LIIUITED
242
VÍKINGUR