Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1959, Blaðsíða 18

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1959, Blaðsíða 18
Sunnudaginn 6. okt. kom bingað til Reykjavíkur nýtt flutningaskin kæliskipið Langjökull, eign Jökla h.f. Skipstjóri á þessu flaggskipi fyrirtækisins er Ingólfur Möller. Kjölurinn að ms. Langjökli var lagður í skipasmíðastöðinni Aarhus Flydedok og Maskinkompagni A/S í Árósum 26. sept. 1958. Aðalmál skipsins eru: Lengd 88,00 m., breidd 12,25 m., dýpt 4,90 m„ og gefur það „deadweight" 2063 longton, við 16 feta djúpristu. Skipið, sem er frystiskip, er byggt eftir ströngustu krfrfum Lloyd’s til skipa, sem sigla eiga á öllum höfum og auk þess er skin- ið styrkt til siglingar í ís. Skipið hefur Lloyd’s vottorð, um að það haldi 20 gráðum á celsius við +25 gráða sjávarhita og + 35 gráða loft- hita. Skipið, sem hefur þrjár Sabro- Að ofan: Langjökull á ytri höfninni í Reykjavík. T. v. 1. stýrimaður Július Kemp, en t. h. 1. vélstjóri Höskuldur Þórðarson. Að neðan t. v.: Aðalsteinn Björnsson, eftirlitsmaður með byggingu skipsins; Ingólfur Möller, skipstjóri; Ólafur Þórðar- son, forstjóri Jökla h.f., og Christensen, forstjóri Aarhus Flydedok. frystivélar, þarf aðeins tvær þeirra til þess að halda þessu frosti. í skipinu eru fjórar lestar, sem hver um sig getur haldið því hita- stigi, sem óskað er, innan þeirra takmarka, sem áður getur. Rúm- mál lestanna er 87,000 teningsfet. Lestaropin eru fjögur og er þeim lokað með lúguhlemmum af allra nýjustu gerð. Allar aflvélar skipsins eru diesel- vélar af Deutz-gerð: aðalvél 2000 hestöfl við 275 snúninga á mínútu 2 hjálparvélar sem drífa 165 kw raf- ala og ein, sem drífur 110 kw rafal. í skipinu eru vistarverur fyrir 28 menn. — Allar vistarverur stjórnpallur, kortaklefi, loftskeyta- klefi, eldhús, búr, kæligeymslur og birgðagevmslur eru aftur á skipinu. Vistarverur mjög rúmgóðar o^ vandaðar. Björgunarbátar eru geymdir í uglum af allra fullkomnustu gerð, og tekur aðeins um 25 sekúndur að sjósetja þá. Öryggisútbúnaður er að sjálf- sögðu eins og frekast er krafizt. Skipið er búið öllum nýtízku sigl- ingatækjum og ganghraði þess um 13,5 sjómíla á klukkustund. Sem fyrr segir er Ingólfur Möller skipstjóri á hinu nýja skipi. en fyrsti stýrimaður er Júlíus Kemn og fyrsti vélstjóri er Höskuldur Þórðarson. 234 VÍKINGUR

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.