Sjómannablaðið Víkingur

Árgangur

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1959, Blaðsíða 30

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1959, Blaðsíða 30
" i' 'm3ji£ Takið nú vel eftir hvernig á að hlaupa yfir hestinn og lcoma stand- andi niður. í bænum Nottingham á Englandi er ágætur prestur, sem trúir á mátt aug- lýsinga — líka þegar um trúmál er að ræða. — Og hann hefir fest upp mörg skilti í kirkju sinni. Á einu þeirra stendur: Áfengi er versti óvinur þinn. Það er eðlilegt að prestur tali svo — en það er dálítið einkennilegt að á meðal hinna skiltanna er eitt, sem hljóðar svo: „Gerðu versta óvin þinn að bezta vini þínum". Þessar vísur mun Þorleifur Jónsson útgerðarstjóri hafa kveðið endur fyrir iöngu: Ég er á hausnum hvínandi Hjálp fæst enganvegin Gapir við mér gínandi gjaldþrot, beggja megin. Skal þó, meðan skapa nýt, skulda fylla sekki. Hémamegin hefi ég krít hinumegin ekki. X Alltaf trega ég Austurland örlög vegu skilja. Sættist ég við Suðurland sannarlega án vilja. Hvað á þetta eiginlega að fyrir- stilla? Olaf Poulsen (1849—-1923), danskur leikari. Olaf Poulsen gekk eitt sinn inn á sviðið sem riddari frá miðöldum og hóf eintal sitt: — Hestur minn stendur fyrir utan Haim komst ekki lengra. Vand- ræðaþögn. Hvíslarinn gerði sitt bezta til þess að koma leikaranum á sporið aftur, en það varð til einskis. Hann stóð þarna hinn rólegasti og virtist óanortinn af ástandinu. Að lokum sagði hann: — Það er að líkindum bezt að ég skreppi út sem snöggvast og athugi, hvort klárinn er ekki þama ennþá! Hann kom aftur að vörmu spori og hélt áfram þar sem frá var horfið, eins og ekkert hefði í skorizt! Þú ættir að sjá brjóstkassann og mjaðmirnar á henni í bláa kjólnum. Tveir laxar gengu í Elliðaámar í vor. Annar var lítill en hinn var í góðu meðallagi. Hinn litli fór allt í einu að gráta. — Hvers vegna grætur þú, litli minn, sagði hinn stóri. — Af því ég er svo lítill. — Allt í lagi, vinur. Bíttu bara á krókinn hjá honum Viggó eða Sigur- páli í ísafold, þá verðurðu stór. Það var í lítilli sveitakirkju. Prest- urinn var mitt í hjartnæmri ræðu, þeg- ar hann varð var við óróleika meðal kirkjugesta. Kom hann þá auga á son sinn 10 ára, sem lét hrossatað fljúga í höfuð þeirra. Áður en hann gat á- mint son sinn, hrópaði sá litli: — Allt í lagi pabbi. Haltu áfram með ræðuna. Ég skal halda þeim vakandi á meðan. Stjórnmálamaður er sá maður, sem hefir það hlutverk að leysa allar þær flækjur, sem alls ekki væru til, ef stjórnmálamennimir væru ekki til. Á F R I V A Edmond de Rothschild (1845—1934), franskur Gyðingur, bankastjóri og auðkýfingur. Barón de Rothschild átti ýmsa ætt- ingja, sem höfðu þörf fyrir fjárhags- aðstoð hans, og oft fengu þeir hana, en hann kærði sig ekkert um að þeir kæmu í heimsókn til hans í höllina, þar sem hann bjó. Gestir hans þar voru helztu aðalsmenn og auðkýfingar Ev- rópu. Er sextugsafmæli Rothschilds nálg- aðist, sendu ættingjarnir nefnd manna á fund hans til þess að spyrja um, hvort það væri ekki neitt sérstakt, sem hann langaði til að fá í afmælisgjöf. Jú, Rotschild sagði ,að sig langaði mjög til þess að eignast myndaalbúm, þar sem inn í væru límdar myndir af öllum ættingjunum. Daginn fyrir afmælið fékk Rotschild stóran pakka, og var þar bókin komin. Hann greip hana strax í hönd sér, gekk til dyravarðar hallarinnar og sagði: — Jean, viltu skoða vel þessar myndir! Ef þú hleypir nokkurri af þessum manneskjum hér inn fyrir dyr framar, þá verðurðu rekinn úr vist- inni. Á áruniyn milli heimsstyrjaldanna tveggja kom barónsfrú nokkur, Opp- enheim frá Köln, til Berlínar og fór inn á Hótel Adlon. Er hún skyldi rita í gestabókina, renndi hún augunum niður blaðsíðuna og sá þar m. a. skrif- uð orðin „R. de París“. Þegar hún spurðist fyrir, hvíslaði dyravörðurinn að henni, að þetta væri barón de Ritschild frá París. — Einmitt það já, sagði baróns- frúin, greip gestabókina og skrifaði í hana: — 0. de Cologne. 246 VÍKINGUP

x

Sjómannablaðið Víkingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.