Sjómannablaðið Víkingur

Volume

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1959, Page 8

Sjómannablaðið Víkingur - 01.10.1959, Page 8
Melanisía... Framh. af bls. 221. plantekrum Ástralíu og Fijieyja skapað andúð í garð Norðurálfu- manna. Annars staðar var koma hinna hvítu manna látin afskipta- laus, jafnvel tekið með velþókn- un, hún hafði í för með sér að- gang að nautakjöti, sígarettum, skyrtum, olíulömpum, whisky og hjólhestum, með þeim kom líka margs konar þekking; þeir komu með skóla og trúboða. ' Næstum öll fræðsla, sem inn- lendir menn fengu um líf Norð- urálfuþjóða, kom frá trúboðun- um, en þeir lögðu aðal áherzluna á trúarbrögðin. Melanesar höfðu þegar þá trú, að öll starfsemi manna, svo sem garðrækt, sjó- mennska og barneignir, þyrftu að styðjast við töfra. Trú án verka var ekki nóg, og verkin ekki heldur án trúar. Þetta við- horf studdu trúboðarnir með kenningum sínum. Hinn upphaflegi áhugi fyrir stjórn Norðurálfumanna varð fljótlega að engu gerður. Hin ört vaxandi akuryrkja tæmdi þorpin að mestu af verkfærum mönnum, konum; börn og gamalmenni urðu að sjá um sig sjálf. Hin fagra hugsjón kristninnar um bræðra- lag allra manna fölnaði óneitan- lega all verulega þegar litið var á viðhorf hvítra manna til lit- aðra, hinna mörgu trúboðsflokka sem kepptu hver við annan og opinskátt trúleysi margra hvítra manna. Lengi töldu innlendir menn trúboð Norðurálfumanna vera tæki, sem að síðustu myndi færa þeim varning hvítra manna (Car- go) upp í hendurnar. En þeir komust að raun um, að það eitt að taka kristna trú færði þeim ekki varninginn; hins vegar myndu hinir dauðu forfeður gera það. Fólki sem ekkert þekkti til verksmiðjuframleiðslu þótti þetta trúlegt. Hvítir menn unnu ekki, þeir skrifuðu einungis leyndar- dómsfull merki á pappírssnepla. Fyrir þetta voru þeim gefnir skipsfarmar af varningi. En Mel- anesar unnu baki brotnu viku eftir viku fyrir aumlega borgun. Greinilegt var að varningurinn hlaut að vera búinn til handa Melanesum, einhvers staðar, ef til vill í landi hinna dauðu. Hinir hvítu menn, sem þekktu leyndar- málið um vaminginn, hindruðu það, að hann kæmist í hendur eyjarskeggja, en til þeirra var hann þó sendur. Eftir 40 ára sam- skipti við trúboðana í Medang á Nýju Guineu, fóru innlendir menn í hópgnögu, með kröfu um að þeim yrði sagt leyndarmálið um varninginn, þar sem þeir væru nú búnir að sýna mikla þolinmæði! Trú þeirra á, að til sé leyndar- mál varðandi varning Norður- álfumanna er sterk. Trúflokkam- ir telja, að leynilegir helgisiðir séu lykillinn að hinu óhemju mikla valdi,sem Norðurálfumenn hafa yfir mönnum og vamingi. Þessum meintu siðum þeirra reyna þeir að líkja eftir. Hinir trúuðu sitja umhverfis borð með blómsturpotta fyrir framan sig, klæddir fötum hvítra manna. Þannig bíða þeir og vona að vamingsskip eða flugvél komi í ljós. Aðrir flokkar fást við leynd- ardómsfulla skrift á töfrapapp- írsmiða. Margir snúa baki við fortíðinni og eyðileggja helga muni eða skilja þá eftir, þar sem unglingar og konur geta horft á þá, aðeins að líta á slíka hluti varðaði áður þungri refsingu, j afnvel dauða. Trú þeirra, að þeir væru sérstaklega útvaldir menn, styrktist við lestur Biblíunnar, því líf og venjur manna Gamla Testamentisins líktist þeirra eig- in fremur en Norðurálfumanna. I Nýja Testamentinu voru spá- dómar Opinberunarbókarinnar um eyðileggingu og upprisu frá dauðum sérstaklega aðlaðandi. Trúboðar sem leggja áherzlu á yfirvofandi komu endurlausnara eru oft sakaðir um að örva til myndunar safnaðar, sem vænta sér þúsundáraríkis. Sannleikur- inn er sá að Melanesar sjálfir hagræða kenningum trúboðanna, og velja það úr Biblíunni, sem þeir telja sér henta. Slíkar hreyf- ingar hafa myndazt í héruðum, þar sem ólík trúboð hafa starfað allt frá Rómversk kaþólsku trú- boði til Aðventista. Ástæðan fyr- ir myndun þessara trúflokka liggur auðvitað miklu dýpra í lífsreynslu fólksins. Efnahagsástand flestra eyj- anna er mjög á eftir tímanum. Akuryrkja innlendra manna gef- ur lítið af sér af heimsmarkaðs- vörum, jafnvel akrar og námur Norðurálfumanna gefa af sér fábreytt hráefni. Helzt þeiira eru kopar, gúmmí og gull. Melanesar skilja ekki, hvers vegna verðið á einu tonni af kopra er stundum 30 pund en stundum aðeins 5 pund. Innlendir menn vita ekk- ert um heimsmarkað, en reka sig á óræktaða akra, minnkuð laun og atvinnuleysi. Þeir hafa til- hneigingu til að kenna duttlung- um og illsku einstaka atvinnurek- anda um öryggisleysi sitt. Fleira hefur valdið áföllum en atvinnuástandið. Stjómarvöld hafa komið og farið, sérstaklega í tveimur heimsstyrjöldum. Þýzk, hollenzk, brezk og frönsk stjórn- arvöld hurfu á einni nóttu. Síðan komu Japanir, en voru flæmdir burt af Bandaríkjamönnum, sem áður voru þarna óþekktir. Meðal Bandaríkjamanna sáu Melanesar negra, sem líktust þeim sjálfum. Þeir lifðu í munaði á jafnréttis- grundvelli við hina hvítu menn. Leiðtogar margra vamings-trú- arflokkanna töldu spádómana vera að rætast. Ekki má gleyma, hversu stórfelld innrásin var. Um það bil ein milljón bandarískra hermanna fóru um Admiraleyj- arnar og yfirskyggðu algerlega hina innlendu menn. Allt var fullt af tilgangslausum, mglings- legum breytingum. Nýjar hug- myndir bárust til eyjanna, og var þeim hagrætt á ýmsan hátt. Ibú- ar Loyaltyeyjanna vonuðu að franski kommúnistaflokkurinn myndi færa þeim þúsundáraríkið. Engar sannanir eru fyrir áhrif- um kommúnista á trúarflokkana. Þrátt fyrir fullyrðingu plant- ekrumanna á Salomonseyjum, sem segja að nafn hinnar inn- VÍKINGUR 224

x

Sjómannablaðið Víkingur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sjómannablaðið Víkingur
https://timarit.is/publication/335

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.